Fræðslu- og tómstundanefnd
48. fundur
19. september 2018
kl.
16:30
-
18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Kristján Örn Ebenezersson
3. varamaður
Þórey Bjarnadóttir
1. varamaður
Grétar Már Þorkelsson
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Skólagjöld Tónskóla 2019
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til 5% hækkun skólagjalda Tónskólans á árinu 2019 til þess að ná því markmiði að skólagjöld standi undir rekstrarkostnaði þegar laun og innri leiga eru undanskilin. Með því er náð markmiðum 11. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla.
2.
Gjaldskrá sundlaugar 2019
Fræðslu- og tómstundanefnd
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að hækka staka tíma úr kr. 900 í kr. 950, barnagjald úr kr. 200 í kr. 250, fjölskylduverð úr kr. 2.000 í kr. 2.200- og árskort fullorðinna úr kr. 29.800 í kr. 31.000- Aðrir liðir verði ekki hækkaðir.
3.
Sundlaug: Viðhaldsþörf búnaðar
Farið var yfir minnisblað um nauðsynlegar framkvæmdir vegna viðhalds og endurnýjunar búnaðar í sundlaug. Starfsmönnum falið að leggja fram kostnaðaráætlun vegna viðgerðanna á næsta fundi.
4.
Yfirlýsing um uppsögn samnings
Í greinargerð Fallastakks með uppsögn samnings um skólaakstur koma fram nokkur atriði um breyttar aðstæður sem valda forsendubresti s.s. að skólaakstur í Öræfin hefur fallið niður, nemendum í skólaakstri hefur fækkað og rekstrarkostnaður vegna akstursins hefur hækkað umfram hækkun vísitölu þeirrar sem útreikningar eru miðaðir við.
5.
Erindi vegna skólaaksturs
Rætt var um fram komna ósk um breytingar á akstursskrá. Erfitt er að koma til móts við sjónarmið allra um styttingu á þeim tíma sem börnin þurfa að vera í skólabíl. Stytting á annarri leiðinni veldur lengingu á hinni. Ef þriðja bílnum yrði bætt við yki það kostnað umtalsvert. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að endurskoða akstursáætlun með forsvarsmönnum Fallastakks samhliða endurskoðun samnings um skólaakstur. Í þessari vinnu verði ennfremur skoðað hvort þörf sé fyrir auka bíl seinni hluta dags vegna tómstunda og íþróttaiðkunar barna búsettum í dreifbýli.
6.
Ósk um skólaakstur
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir framlagða ósk um skólakstur frá Hæðum í Skaftafelli í Grunnskólann í Hofgarði á umræddum tímum.
7.
Ósk um endurskoðun samnings V.fimleikaiðkunar í Mánagarði
Iðkendur á vegum fimleikadeildar Sindra voru á síðasta ári 165 talsins. Stjórn fimleikadeildar Sindra óskar eftir ráðningu starfsmanns í hlutastarf í Mánagarð til að sinna eftirliti og ræstingum fyrir komandi starfsár.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að auglýst verði í starf baðvarðar til að sinna gæslu og þrifum í Mánagarði á meðan fimleikaæfingar yngri barna standa yfir.
8.
Skipulag: Skóla-, íþrótta- og útivistarsvæði
Fundargerðir stýrihóps lagðar fram til kynningar.
9.
Staða nemenda- og starfsmannamála í skólum.
Yfirlit yfir fjölda og menntunarstig starfsmanna leik- og grunnskóla sveitarfélgsins lagt fram til upplýsingar.
10.
Menntun fyrir alla
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur kjörna fulltrúa til þess að sækja fund með stýrihópi mennta- og menningarmálaráðuneytisins um menntun fyrir alla, sem lið í mótun nýrrar menntastefnu. Leiðarljós nýrrar menntastefnu á öllum skólastigum verður gæðamenntun fyrir alla. Fundurinn verður haldinn í Nýheimum þann 31. október n.k.
11.
Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands
Afmælisnefnd forsætisráðuneytisins um fullveldið Íslands 2018 hvetur til þess að leik- og grunnskólar líti til afmælisársins í störfum sínum og nýti sér fræðsluefni það sem til reiðu er á vefsíðunni https://www.fullveldi1918.is/. Jafnframt er hvatt til þess að 1. des verði haldinn hátíðlegur þar sem áhersla verði lögð á ungt fólk og framtíðina.
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur leik- og grunnskóla til þess að nýta sér fræðsluefni síðunnar.
12.
Leikskólinn Sjónarhóll: Formleg opnunarhátíð
Ákveðið hefur verið að halda opnunarviðburð fimmtudaginn 11. október n.k. Viburðurinn verður auglýstur er nær dregur.