Fræðslu- og tómstundanefnd
49. fundur
17. október 2018
kl.
16:30
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Samir Mesetovic
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Sundlaug: Viðhaldsþörf búnaðar
Farið var yfir minnisblað um viðhald tækja og búnaðar í sundlaug og kostnaðaráætlun. Ljóst er að ekki verður komist hjá því að endurnýja ýmsan nauðsynlegan búnað,annars vegar búnað sem hefur ítrekað verið að bila og hins vegar búnað sem orðinn er úreltur, uppfyllir ekki kröfur um starfsleyfi. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur bæjarráð til að veita aukið fjármagn á þessu ári í samræmi við kostnaðaráætlun til að sinna nauðsynlegum viðgerðum. Áætlun um aðrar viðgerðir fari í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir næsta ár.
2.
Starfsemi Vöruhúss
Vilhjálmur kynnti námskeið og aðra starfsemi sem er á dagskrá Vöruhússins í haust.
3.
Skólaakstur: 2018-2019
Breytingar á akstursskrá fyrir yfirstandandi skólaár lagðar fram til afgreiðslu. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir nýja akstursskrá.
4.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 36
Hafinn er undirbúningur að ungmennaþingi sem haldið verður í Nýheimum þann 29.október n.k. kl.13.00-16.00. Á þinginu verður m.a. kosið í nýtt Ungmennaráð.
Sigríður Þórunn sagði frá dagskrá ungmennaþings og málstofur. Fundargerð 36. fundar lögð fram og samþykkt.
5.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 37
Fundargerð 37. fundar lögð fram og samþykkt. Fræðslu- og tómstundanefnd tilnefnir Sóleyju Lóu Eymundsdóttur sem varafulltrúa ungmenna á vinnumarkaði í Ungmennaráð.
6.
Unglingalandsmót 2019
Níunda fundargerð landsmótsnefndar lögð fram.
7.
Skipulag: Skóla-, íþrótta- og útivistarsvæði
Fundargerð stýrihóps frá 17. sept. lögð fram til umræðu.
8.
Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna
Rannsóknir benda til þess að móðurmálskennsla barna með annað móðurmál en íslensku skipti miklu máli fyrir þroska barna, námsferil og árangursríka þátttöku í samfélaginu. Í Sveitarfélaginu Hornafirði hefur ekki verið mörkuð stefna um móðurmálskennslu nemenda af erlendum uppruna en í ár eru um 50 grunnskólanemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.
Umræður urðu um móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna og gildi hennar fyrir íslenskunám og annað nám. Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra að afla upplýsinga um fjölda nemenda af hverju þjóðerni í leik- og grunnskóla. Ennfremur að kanna bjargir skólanna til að styrkja stöðu móðurmáls og byggja undir stolt barna á menningu sinni og tungumáli.
9.
Menntun fyrir alla
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að setja af stað mótun menntastefnu til 2030.Leiðarljós nýrrar menntastefnu á öllum skólastigum verður gæðamenntun fyrir alla. Eitt af markmiðum nýrrar menntastefnu verður að tryggja að allir í skólasamfélaginu líti á skólastarf ánaðgreiningar sem grundvöll gæðamenntunar fyrir alla nemendur í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.Á haustmánuðum 2018 verða haldnir 23 fræðslu- og umræðufundir um allt land. Tveir fundir verða haldnir á hverjum stað, hvor fyrir sinn markhóp, sem boðaðir eru sérstaklega til fundar og því er ekki um opna fundi að ræða. Fundurinn á Hornafirði verður 31. okt. n.k.
Dagskrá funda um menntun fyrir alla lögð fram til kynningar.
10.
Dagur ísl. tungu og heimsókn ráðherra
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur hug á því að halda hátíðardagskrá í tilefni af degi íslenskrar tungu í Hornafirði þetta árið og nýta daginn jafnframt til að fara í heimsóknir í skóla og menningarmiðstöðvar í sveitarfélaginu.
Hugmyndir ráðherra að hugsanlegri dagskrá heimsóknar kynnt.
11.
Styrktar- og afrekssjóður USÚ
Fræðslu- og tómstundanefnd tilnefnir Írisi Heiði sem fulltrúa nefndarinnar í Styrktar- og afrekssjóð USÚ út þetta kjörtímabil.