Fræðslu- og tómstundanefnd
50. fundur
21. nóvember 2018
kl.
16:30
-
19:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Samir Mesetovic
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Skólavogin 2018-2019
Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri,Guðlaug Úlfarsdóttir fultrúi kennara og Gunnhildur Imsland fulltrúi foreldar sitja undir liðum 1 - 3.
Þórgunnur fór yfir nemendakönnun í 6.-10. bekk. Þar kom m.a. fram að nemendur meta skóla- og bekkjaranda góðan og reglubundin hreyfing er langt yfir landsmeðaltali. Skólinn vildi sjá tíðni eineltis lægri en könnunin gefur vísbendingar um en mikil vinna hefur verið lögð í jákvæð samskipti undanfarin ár. Skólinn vildi einnig sjá trú á eigin námsgetu og seiglu í námi vera meiri. Spurning er hvort miklar fjarvistir nemenda sé einn af áhrifaþáttunum þar.
2.
Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna
Athugun á fjölda nemenda af erlendum uppruna leiðir í ljós að stærsti hópurinn er af pólskum uppruna; 3 í leikskóla og 13 í grunnskóla á aldrinum 7-14 ára. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að byrjað verði að athuga með móðurmálskennara fyrir þennan hóp. Nefndin felur fræðslustjóra í samvinnu við verkefnastjóra fjölmenningar og starfsfólk í leik- og grunnskólum að kanna með kennaraefni meðal íbúa af pólskum uppruna í sveitarfélaginu. Fræðslustjóra einnig falið að kanna með fjármögnun á kennslunni ef af verður.
3.
Rekstrarkostnaður leik- og grunnskóla
Farið var yfir rekstrarupplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga yfir leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu.
4.
Unglingalandsmót 2019
Fundargerð undirbúningshóps vegna unglingalandsmóts 2019 og umsókn um styrk til Uppbyggingarsjóðs mennta- og menningarmálaráðuneytisins lagt fram til kynningar.
5.
Aukafundur með Ungmennaráði
Fimmtudaginn 29.nóv. verður sameiginlegur fundur bæjarráðs, fræðslu- og tómstundanefndar með ungmennaráði. Dagskrá: Fulltrúar frá Ungmennaráði Suðurlands munu kynna handbók fyrir ungmennaráð á Suðurlandi. Kynntar verða niðurstöður af ungmennaþingi sem haldið var í Nýheimum 29. okt. sl.
6.
Baðvörður í Mánagarði
Rætt var um notkun, umgengni og ástandið á húsnæðinu í Mánagarði. Mánagarður er nú í daglegri notkun síðdegis vegna fimleikaiðkunar. Auglýst hefur verið eftir baðverði til starfa í húsinu í 25% starf en engin umsókn hefur borist. Áfram verður unnið að lausn þessa máls.