Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

51. fundur
19. desember 2018 kl. 16:30 - 19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Kolbrún Reynisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Hreyfing á vinnutíma
Málsnúmer 201812035
Undir liðum 1 - 3 sitja fulltrúar GH: Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri og Steinunn Hödd Harðardóttir fulltrúi foreldra. Guðlaug Úlfarsdóttir fulltrúi kennara boðaði forföll.
Þórgunnur óskar f.h. starfsmanna Grunnskóla Hornafjarðar eftir að starfsmenn fái að vinna þróunarverkefni um hreyfingu á vinnutíma.Hreyfingin yrði skipulögð í samráði við skólastjóra og skipulagt eftirlit yrði haft með árangri með skráningu fyrir og eftir verkefnið sem áætlað er að hefjist í febrúar og standi út maí. Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar verkefninu og hvetur til þess að skólinn geri þessa tilraun. Nefndin óskar eftir að fá kynningu á árangri verkefnisins þegar því er lokið í vor. Beinn kostnaður fyrir sveitarfélagið verður enginn.
2.
Samræmd próf í 4.og 7. bekk 2018
Málsnúmer 201812067
Þórgunnur fór yfir niðurstöður samræmdra prófa. Fram kom að í verkefninu "Leið til árangurs" hefur verið lögð áhersla á lestur í íslensku og reikning og aðgerðir í stærðfræðikennslu og það virðist vera að skila árangri.

3.
Ályktun SKAUST um kjaramál stjórnenda í grunnskólum
Málsnúmer 201812069
Skólastjórar grunnskóla á Austurlandi; SKAUST, lýsa yfir áhyggjum af alvarlegri stöðu vegna kjaramála stjórnenda. Fram kom að þann 14. desember var gengið frá breytingu á gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands þar sem komið er lítillega til móts við menntunarkröfur þær sem SKAUST lýsir í erindi sínu. Laun stjórnenda við GH hækka á bilinu 0,2 - 2,2% við þessa breytingu skv. upplýsingum Þórgunnar skólastjóra. Kennslureynsla er ekkert metin til launa skólastjórnenda og þegar kennari með langa kennslureynslu fer í stjórnunarstöðu hækka laun hans sáralítið ef nokkuð. Samningar stjórnenda eru lausir í lok júlí 2019. Fræðslu- og tómstundanefnd vonar að komið verði til móts við óskir skólastjórnenda í næstu kjarasamningum.
4.
Leikskólinn Sjónarhóll: Læsisstefna
Málsnúmer 201812062
Undir þessum lið sitja Maríanna Jónsdóttir leikskólastjóri, Elínborg Hallbjörnsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, Þóra Jóna Jónsdóttir og Svava Kristín Þorsteinsdóttir fulltrúi starfsmanna.
Elínborg Hallbjörnsdóttir og Þóra Jóna Jónsdóttir fylgdu læsisstefnunni úr hlaði. Stefnan hefur verið unnin með starfsmönnum leikskólans undir stjórn þeirra undanfarna mánuði í samvinnu við Elsu Pálsdóttur læsisráðgjafa hjá Menntamálastofnun. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með stefnuna og samþykkir hana. Næsta verkefni er að semja læsisstefnu fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð en það verður gert með fulltrúum skólaskrifstofu, leik- og grunnskóla undir handleiðslu Menntamálastofnunar.
5.
Færni til framtíðar
Málsnúmer 201812066
Lengi hefur verið rætt um að foreldrar ungra barna í sveitarfélaginu fái ekki nægan stuðning við að sinna uppeldishlutverki sínu. Á síðasta ári tóku sjö fagmenntaðir sérfræðingar í leik- og grunnskóla og hjá HSU leiðbeinendanámskeið um að halda uppeldisnámskeið fyrir foreldra ungra barna. Fyrsta námskeiðið sem kallast "Færni til framtíðar" var haldið í okt./nóv. sl. og var gerður að því góður rómur.
Skólastjórar leik- og grunnskóla á Höfn hvetja til þess að sveitarfélagið bjóði öllum foreldrum á Hornafirði upp á uppeldisnámskeiðið "Færni til framtíðar" á fyrstu tveimur árum barnsins, þeim að kostnaðarlausu. Á námskeiðinu er lögð er áhersla á að kenna foreldrum leiðir til að vera samtaka í uppeldinu og skapa góð uppeldisskilyrði. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur undir erindi skólastjóranna um mikilvægi þess að bjóða foreldrum ungra barna upp á ókeypis uppeldisnámskeið. Slík námskeið styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu. Nefndin vísar ákvörðun um málið til bæjarráðs.
6.
Yfirlýsing um uppsögn samnings
Málsnúmer 201808070
Fræðslustjóri og forsvarsmenn Fallastakks hafa átt í viðræðum um viðauka við samning um skólaakstur. Á fundinum kynnti fræðslustjóri forsendur samningsins og þær humyndir sem Fallastakkur hefur til að vega upp forsendubrest. Að mati nefndarinnar ber það mikið í milli að eðlilegt sé að efna til nýs útboðs á skóla- og frístundakstri til að gæta jafnræðis. Fræðslustjóra er falið að vinna að útboði á vorönninni. Skóla- og fimleikaakstur helst óbreyttur út þetta skólaár.
7.
Stefna í íþrótta-,æskulýðs-og tómstundamálum.
Málsnúmer 201203073
Komið er að endurskoðun stefnu sveitarfélagsins frá árinu 2012 í íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að endurskoða og vinna nýja stefnu á árinu 2019 og felur fræðslustjóra að vinna að undirbúningi málsins.
8.
Unglingalandsmót 2019
Málsnúmer 201605078
Ellefta og tólfta fundargerð landsmótsnefndar lagðar fram til kynningar, þar kom fram að undirbúningur fyrir landsmótið er í fullum gangi.

9.
Frumvarp um samskiptaráðgjafa
Málsnúmer 201812068
Með frumvarpinu er lagt til að stofnað verði tímabundið til starfs samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Markmiðið er að umhverfi íþrótta- og æskulýðsstarfs verði öruggt og að börn og fullorðnir, óháð kyni eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir eða æskulýðsstarf og leitað aðstoðar vegna atvika og misgerða sem þar koma upp án ótta við afleiðingarnar. Þolendur eiga jafnframt að geta leitað réttar síns án þess að óttast að slíkt geti haft neikvæðar afleiðingar. https://www.althingi.is/altext/149/s/0558.html
Frumvarpið lagt fram til kynningar.
10.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 38
Málsnúmer 1811008F
Fundargerð 38. fundar Ungmennaráðs lögð fram.

Minnt er á sameiginlegan fund Ungmennaráðs Hornafjarðar, Ungmennaráðs SASS, fræðslu- og tómstundanefnd þann 22. janúar n.k.