Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

52. fundur
24. janúar 2019 kl. 16:30 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Kolbrún Reynisdóttir 1. varamaður
Þórey Bjarnadóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Hofgarður: Skólastarf 2019-2020
Málsnúmer 201901092
Magnhildur Gísladóttir skólastjóri samrekins Leik- og grunnskóla í Hofgarði hefur sagt starfi sínu lausu. Næsta skólaár mun vanta skólastjóra og kennara við grunnskólann og nú þegar vantar leikskólakennara til starfa í leikskólanum.
Magnhildur fór yfir starf Leik- og grunnskólans í Hofgarði frá því hún tók við stjórn skólans haustið 2017. Skólastarfið sem slíkt hefur gengið mjög vel en það sem hefur valdið erfiðleikum og gerir enn eru húsnæðismál fyrir starfsmenn skólans. Eins og staðan er í dag verða væntanlega sex nemendur í grunnskólanum og fimm í leikskólanum haustið 2019. Ákveðið að auglýsa stöðu skólastjóra og leikskólakennara helgina 1. febrúar með umsóknarfresti til 20. febrúar.
2.
Sjónarhóll: Ósk um aukið starfshlutfall í stoðþjónustu
Málsnúmer 201901073
Erindi um aukið starfshlutfall í stoðþjónustu leikskólans var tekið fyrir og rætt. Fræðslu- og tómstundanefnd styður ósk leikskólan um 50% aukningu á starfi í stoðþjónustunni.
3.
Læsisstefna Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 201901072
Þórgunnur kynnti lokaútgáfu af læsisstefnu Grunnskóla Hornafjarðar hvernig hún er uppbyggð og benti á viðmiðin fyrir hvern bekk. Fram kom að aukin áhersla er lögð á lesskilning og að hann skipti meira máli við að tileinka sér nám heldur en leshraði, þótt hann skipti líka máli. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir læsisstefnu grunnskólans.
4.
Læsisstefna Sveitarfélagsis Hornafjarðar
Málsnúmer 201805064
Leikskólinn Sjónarhóll og Grunnskóli Hornafjarðar hafa báðir fullunnið sínar læsisstefnur. Næsta skref er að vinna eina heildstæða læsisstefnu sveitarfélagsins.Með undirritun þjóðarsáttmála um læsi gekkst sveitarfélagið við því verkefni að setja sér markvissa læsisstefnu í samræmi við ákvæði í aðalnámskrá leik- og grunnskóla.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að myndað verði teymi fjögurra fulltrúa úr leik- og grunnskóla á HÖfn um að semja heildstæða læsisstefnu fyrir sveitarfélagið. Haft verður náið samstarf við Leik- og grunnskólann í Hofgarði og leitað ráðgjafar Menntamálastofnunar. Fræðslustjóri kemur vinnunni í farveg. Áætlað er að stefnan verði fullunnin og lögð fyrir nefndina til samþykktar á fundi í júní.
5.
Stefna sveitarfélagsins í íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum
Málsnúmer 201901093
Umræður urðu um endurskoðun stefnunnar og hvað ný stefna eigi að innihalda. Fundarmenn voru sammála um að það sé mikil skörun í stefnum um íþrótta- æskulýðs- og tómstundamál, forvarnarstefnu og áherslum í verkefninu um Heilsueflandi samfélag. Fræðslustjóra falið að gera tillögur að verkáætlun til umfjöllunar á næsta fundi.
6.
Skipulag: Skóla-, íþrótta- og útivistarsvæði
Málsnúmer 201806028
Fundargerð lögð fram til kynningar. Umræður urðu um aðstöðu til líkamsræktar fyrir almenning. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að farið verði að huga að lausn fyrir þá starfsemi sem fyrst.
7.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 39
Málsnúmer 1901004F
Í umræðum um fundargerðina kom fram að Ungmennaráð er að útbúa könnun til að senda eigendum veitingahúsa í sveitarfélaginu. Markmið með könnuninni er að fá upplýsingar um hvað fyrirtækin eru að gera varðandi flokkun á úrgangi og rusli.
8.
Umf. Sindri: Ósk um sundkort fyrir meistaraflokka
Málsnúmer 201901101
Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra að afla upplýsinga um hvernig þau sundkort sem UMf. Sindri hefur nú þegar samkvæmt samningi eru nýtt og hvernig þeim er úthlutað. Nefndin fjallar aftur um málið að þeim upplýsingum fengnum.