Fræðslu- og tómstundanefnd
53. fundur
20. febrúar 2019
kl.
16:30
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Fjölmenning
Hildur Ýr fór yfir starf verkefnastjóra fjölmenningar á síðasta ári. Í máli hennar kom m.a. fram að hún telur mikilvægt að hafa á bak við sig hóp sem hún getur átt samtal og samráð við um fjölmenningarmál. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að stofnaður verði fjölmenningarhópur sem sinni þessu hlutverki og til að vinna markvisst að framgangi fjölmenningar í sveitarfélaginu. Nefndin leggur til að hópurinn verði skipaður fulltrúum úr fræðslu- og tómstundanefnd, félagsmálanefnd, atvinnumálanefnd, menningarmálanefnd, heilbrigðis- og öldrunarnefnd og ungmennaráði. Hugmyndinni er vísað til nánari umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarráði.
2.
Skyldur og ábyrgð skólanefnda vegna leikskóla
Í yfirliti og leiðbeiningum um skyldur og ábyrgð skólanefnda vegna leikskóla er unnið út frá lögum um leikskóla frá 2008 nr. 90 12. júní https://www.althingi.is/lagas/nuna/2008090.html
Farið var yfir ábyrgð og skyldur fræðslunefnda samkvæmt lögum um leikskóla og gátlista þar um. Fram kom að vinna við skólanámskrá er í fullum gangi og áætlað er að hún verði tilbúin í vor. Ákveðið að leggja drög af námskránni fram til umfjöllunar á fundi nefndarinnar í júní.
3.
Skyldur og ábyrgð skólanefnda vegna grunnskóla
Í yfirliti og leiðbeiningum um skyldur og ábyrgð skólanefnda vegna grunnskóla er unnið út frá lögum um grunnskóla frá 2008 nr. 91 12. júní https://www.althingi.is/lagas/nuna/2008091.html
Farið var yfir ábyrgð og skyldur fræðslunefnda samkvæmt lögum um grunnskóla og gátlista þar um. Fram kom að skólanámskrá er endurskoðuð árlega. Starfsáætlun er gefin út árlega. Ákveðið að fara yfir það á skólastjórafundi hvaða atriði eiga heima í starfsáætlun sem lögð er fyrir nefndina og hversu ítarleg hún ætti að vera. Rætt var um húsnæði Kátakots og að það stefni í að það verði of lítið miðað við vaxandi aðsókn. Starfsmönnum falið að kanna reglur um fjölda barna á fermetra í frístund.
4.
Norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi.
Sveitarfélagið Hornafjörður er þátttakandi í Norrænu samstarfsverkefni um sjálfbæra bæi þar sem markmiðið er að vinna drög að skipulagi fyrir opin svæði, hjóla- og gönguleiðir á Höfn, m.t.t. innleiðingar sjálbærnimarkmiða í skipulagsferlið og hagnýtingar til framtíðar. Verkefnastjórar verkefnisins eru Árdís Erna Halldórsdóttir, atvinnu- og ferðamálafulltrúi, auk Hugrúnar Hörpu Reynisdóttur, forstöðumanns Nýheima Þekkingarseturs.
Árdís fór yfir aðdraganda og þróun verkefnisins sem unnið er í samvinnu við Ystad í Svíþjóð, Sönderborg í Danmörku og Narvik í Noregi. Yfirskrift verkefnisins er innleiðing heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Áhersla sveitarfélagsins er uppbygging grænna svæða, göngu- og reiðhjólastíga á Höfn og íbúalýðræði. Í tengslum við verkefnið er verið að útbúa rafræna könnun sem kynnt verður fyrir íbúum í vor. Bartek fór yfir drög af könnuninni. Rætt var um leiðir til að ná til allra aldurshópa með könnunina.
5.
Umf. Sindri: Ósk um sundkort fyrir meistaraflokka
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að veita einstaklingum 18 ára og eldri, sem skráðir eru í
meistaraflokka og afrekshópa hjá Umf. Sindra og keppa á Íslandsmótum, gjaldfrjálsan aðgang í
sundlaug Hafnar til reynslu út árið 2019. Aðgangurinn er gjaldfrjáls á undirbúnings ? og keppnistímabili íþróttagreina og gildir því ekki allt árið um kring. Skilyrði fyrir gjaldfrjálsum aðgangi þessa hóps er að Umf. Sindri útbúi nafnalista fyrir starfsmenn sundlaugar ásamt afmörkun á undirbúnings- og keppnistímabili íþróttagreina. Ekki verða gefin út sérstök sundkort af þessu tilefni heldur veitir sundlaugarstarfsmaður viðkomandi íþróttamanni aðgang á yfirstandnandi undirbúnings ? og keppnistímabili og merkir við hann á nafnalistanum. Forstöðumaður íþróttamannvirkja fer reglulega yfir nafnalista og nýtingu. Fræðslustjóra falið að innkalla áður útgefin sundkort sem Umf. Sindri hefur til umráða.

6.
Styrkir fræðslu- og tómstundanefndar
Umsóknir bárust frá þremur aðilum, Hestamannafélaginu Hornfirðingi, Hafnarkirkju og Fimleikadeild Umf. Sindra, um styrki fræðslu- og tómstundanefndar samtals að upphæð kr. 1.100.000-. Nefndin hefur kr. 500.000- til úthlutunar. Ákveðið var að veita eftirfarandi styrki: Hafnarkirkja kr. 50.000 til kaupa á föndurefni og hljóðfærum til styrktar æskulýðsstarfi. Fimleikadeild Umf. Sindra kr.300.000- til kaupa á æfingaáhöldum fyrir yngri iðkendur kr. 30.000 og kr. 270.000- til styrktar kaupum á svampgryfju. Hestamannafélagið Hornfirðingur kr. 150.000- til styrktar reiðnámskeiði fyrir börn og ungmenni.
Í umfjöllun um styrki kom fram að sveitarfélagið er eigandi að reiðskemmunni við Stekkhól en enginn samningur er í gildi milli Hestamannafélagsins Hornfirðings og sveitarfélagsins um samstarf eða afnot félagsins að skemmunni. Starfsmanni er falið að vinna að gerð samstarfssamnings milli aðila. Íris vék af fundi undir umfjöllun um umsókn Hestamannafélagsins Hornfirðings.

7.
Stefna sveitarfélagsins í íþrótta- æskulýðs- og tómstundamálum
Stefna sveitarfélagsins í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum er frá árinu 2012 og unnið er að undirbúningi endurskoðunar.
Föstudaginn 15. febrúar s.l. var haldið málþings um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og sveitarfélögin. Á þinginu var fjallað var um innleiðingu markmiðanna og samþættingu við stefnur sveitarfélaga. Bæjarstjórn mun í framhaldinu marka nánari stefnu um innleiðingu heimsmarkmiðanna og samþættingu við stefnur sveitarfélagsins og verða frekari skref í að endurskoða stefnu í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundamálum tekin þegar sú ákvörðun liggur fyrir.
8.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2019
83. fundargerð velferðarteymis lögð fram til kynningar.
9.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 40
40. fundargerð Ungmennaráðs lögð fram. Fram kom að Nemendafélag FAS ætlar að nýta sér opnunardaga ungmennahúss til að koma saman. Formaður hvatti til þess að hafa opnunarviðburð í tilefni af því að heimasíða Ungmennaráðs fer í loftið.