Fræðslu- og tómstundanefnd
54. fundur
20. mars 2019
kl.
16:30
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Þórey Bjarnadóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Baðvörður í Mánagarði
Ingibjörg og Einar fóru yfir óásættanlegar aðstæður til fimleikaþjálfunar og færðu rök fyrir ráðningu starfsmanns.
Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með því að ráða baðvörð í Mánagarð í 50% starf þann tíma dagsins sem fimleikaæfingar standa yfir eða frá ca. 14:00 - 18:00 virka daga. Hlutverk hans væri m.a. að gæta öryggis barna, líta til með umgengni og annast ræstingar. Mælt er með því að ráðið verði í starfið frá 1. sept. 2019.
Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með því að ráða baðvörð í Mánagarð í 50% starf þann tíma dagsins sem fimleikaæfingar standa yfir eða frá ca. 14:00 - 18:00 virka daga. Hlutverk hans væri m.a. að gæta öryggis barna, líta til með umgengni og annast ræstingar. Mælt er með því að ráðið verði í starfið frá 1. sept. 2019.
2.
Starfsumhverfi leikskólastarfsmanna
Starfsfólk í leikskólanum Sjónarhóli eins og leikskólastarfsfólk almennt á landinu, kvartar undan miklu vinnuálagi og kallar á aðgerðir til að bæta starfsaðstæður þeirra. Afleiðingin af þessu álagi er sú að í skólunum er mikil starfsmannavelta og erfitt er að byggja upp faglegt og stöðugt uppeldisstarf. Fræðslu- og tómstundanefnd styður að ráðinn verði vinnusálfræðingur tímabundið til að aðstoða stjórnendur við það verkefni að greina vinnuskipulag, samstarf, verkefnadreifingu og álagsþætti og veita ráðgjöf um breytingar með það að markmiði að draga úr álagi. Nefndin væntir þess að út úr þessari vinnu komi tillögur sem nefndin getur tekið afstöðu til.
3.
Sjónarhóll: Skóladagatal 2019-2020
Skóladagatal Leikskólans Sjónarhóls lagt fram til umræðu. Nefndarmenn beina þeim tilmælum til skólastjóra leik- og grunnskóla að þeir samræmi skipulags- og starfsdaga betur. Umræður urðu um frí í leikskólum um jól og páska.
4.
Skyldur og ábyrgð skólanefnda vegna grunnskóla
Farið var yfir gátlista um lögbundið skólastarf í samreknum leik- og grunnskóla í Hofgarði. Rætt um gerð starfsáætlunar fyrir leikskóladeildina.
5.
Hofgarður; Skóladagatal 2019-2020
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir framlagt skóladagatal Leik- og grunnskólans í Hofgarði fyrir skólaárið 2019 - 2020.
6.
Hofgarður: Ráðning skólastjóra
Tveir umsækjendur voru um stöðu skólastjóra Leik- og grunnskólans í Hofgarði: Áslaug Traustadóttir grunnskólakennari og Brynja Kristjánsdóttir Leik- og grunnskólakennari. Þórey Bjarnadóttir vék af fundi undir þessum lið.
Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með ráðningu Brynju Kristjánsdóttur í stöðuna.
Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með ráðningu Brynju Kristjánsdóttur í stöðuna.
7.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæði Kátakots
Þetta skólaár hefur fjöldi barna í Kátakoti farið nálægt 60 þegar mest hefur verið. Næsta skólaár er líklegt að fjöldinn þar fari yfir 60 og nálgist jafnvel 70. Vegna þessa þarf að huga að auknu plássi fyrir starfsemina. Starfsmönnum falið að leita lausna og leggja tillögu fyrir nefndina í apríl.
8.
Skólasókn, skýrsla frá Velferðarvaktinni
Farið var yfir skýrslu velferðarvaktarinnar um skólasókn og skólaforðun grunnskólanemenda. Könnun var send í 172 grunnskóla og alls svöruðu 135 sem gerir 78,5% svarhlutfall. Þórgunnur fór yfir samantekt um mætingar nemenda Grunnskóla Hornafjarðar. Starfsmenn skólans merkja aukinn skilning hjá foreldrum á því hve góð skólasókn er mikilvæg fyrir nám og félagslíf barnanna.
9.
Samræmd próf í 4. og 7. bekk 2019
Farið var yfir niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 2018.
10.
Grunnskóli Hornafjarðar: Skóladagatal 2019-2020
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar lagt fram til umræðu. Nefndarmenn beina þeim tilmælum til skólastjóra leik- og grunnskóla að þeir samræmi skipulags- og starfsdaga betur.
11.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 41
41. Fundargerð ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
12.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2019
Fundargerðir velferðarteymis nr. 84 og 85 lagðar fram til umræðu.
13.
Stefnumótun í málefnum barna
Erindi frá Ásmundi Einarssyni félags- og barnamálaráðherra þar sem hann boðar heildarendurskoðun barnaverndarlaga sem og endurskoðun á félagslegri umgjörð og stuðningi við börn á Íslandi með áherslu á snemmtæka íhlutun og samvinnu kerfa. Þeir sem hafa áhuga á að koma að vinnunni geta sent inn ábendingar. Bæjarráð vísar málinu til félagsmálanefndar, fræðslu- og tómstundanefndar og ungmennaráðs.
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar áformum um að auka samstarf milli málasviða um málefni barna og leggur áherslu á að aðgengi að nauðsynlegri þjónustu í þágu barna verði aukið og einfaldað.
14.
Unglingalandsmót 2019
13. fundargerð undirbúningsnefndar um unglingalandsmót lögð fram til kynningar.