Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

57. fundur
19. júní 2019 kl. 16:30 - 20:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Skýrsla tómstundafulltrúa 2019
Málsnúmer 201906017
Herdís fór yfir skýrslu tómstundafulltrúa.
2.
Leikskóli: Reglur um forgang barna starfsmanna
Málsnúmer 201906038
Gildistími reglna um forgang og afslátt starfsmanna á leikskólavist fyrir börn þeirra gilda ekki lengur. Maríanna fór yfir kosti og galla um forgang starfsmannabarna. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að gildistími reglnanna verði framlengdur til 30. sept. n.k. og timinn fram að því nýttur til að skoða aðrar leiðir.
3.
Hreyfing á vinnutíma
Málsnúmer 201812035
Grunnskóli Hornafjarðar hóf tilraunaverkefnið "Hreyfing á vinnutíma" í febrúar og lauk því nú í maí.
Mat starfsmanna GH vegna þátttöku í Hreyfistund á vinnutíma er það að verkefnið virkaði hvetjandi, fólk fór að hreyfa sig sem hafði ekki farið í það utan vinnu, líðan varð betri andleg og líkamleg. Fólk upplifði meiri jákvæðni gagnvart vinnunni og einnig að samstarfsfélagar urðu ánægðari og orkumeiri. Fræðslu- og tómstundanefnd mælir eindregið með því að verkefninu verði haldið áfram næsta skólaár og að fylgst verði með árangri sem kynntur verði nefndinni vorið 2020.
4.
Kennslustundamagn 2019-2020
Málsnúmer 201905056
Fjöldi kennslustunda er áætlaður 693 kennslustund á viku. Nemendum fjölgar úr 238 í 251 næsta skólaár. Bekkjardeildum fjölgar um eina þar sem 1. bekk (33 nem) verður skipt en útskriftarárgangurinn var í einni bekkjardeild. Nefndin samþykkir áætlað kennslustundamagn fyrir næsta skólaár.
5.
Samræmd próf 2018-2019
Málsnúmer 201903070
Farið var yfir niðurstöður samræmdra prófa í 4., 7. og 9. bekk sl. skólaár.
6.
Skólavogin: Nemendakönnun 6.-10.b vor 2019
Málsnúmer 201906030
Farið var yfir niðurstöður könnunarinnar. Rætt var um fjarvistir nemenda, fram kom að um 30% nemenda var frá námi 18 daga eða meira sem er 10% af skóladögum. Umræður urðu um áhrif mikilla fjarvista t.d. á líðan í skóla og virkni í námi.
7.
Rannsóknir&greining: Ungt fólk 2019, 5.-7. bekkur
Málsnúmer 201906031
Farið var yfir niðurstöður skýrslunnar og þær ræddar. Þar kom m.a. fram að ánægja af lestri er mest í 6.-8. bekk, trú á eigin vinnubrögð og námsgetur hefur vaxið og almennt líður nemendum vel í skólanum, samband þeirra við kennara er almennt gott og hreyfing meðal nemenda er meðal þess sem hæst gerist á landinu.
8.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæði Kátakots
Málsnúmer 201903067
Bókun bæjarráðs frá 11.06. s.l: 201903067 - Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæði Kátakots Bæjarráð samþykkir að fjölga starfsmönnum, samkvæmt mati stjórnenda, í Kátakoti á næsta skólaári í stað þess að bæta við bráðabirgðahúsnæði. Starfsmönnum falið að vinna að því viðhaldi sem húsnæðið þarfnast. Bæjarráð hvetur til samstarfs við Umf.Sindra varðandi starfsemina.
Umræður urðu um málið. Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar ákvörðun bæjarráðs í málinu en leggur áherslu á að vinna þarf að framtíðarlausn í húsnæðisvanda Kátakots.
9.
Hönnun: Víkurbraut 24 húsnæði málefna fatlaðs fólks
Málsnúmer 201802105
Í tengslum við flutning félagsþjónustunnar í húsnæðið að Víkurbraut 24 hefur sú hugmynd verið reifuð að sameina fræðslu- og félagssvið undir einn hatt og stofna Fjölskylduþjónustu Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Þessi leið hefur víða verið farin til að efla samstarf þessara sviða ásamt heilbrigðisþjónustu til að byggja upp þverfaglega og heildstæða þjónustu við fjölskyldur og skóla.
Skúli I. Þórarinsson félagsmálafulltrúi fór yfir greinargerð um málið. Fræðslu- og tómstundanefnd líst vel á framkomnar hugmyndir.
10.
Umf. Sindri: Erindi vegna þjónustusamnings
Málsnúmer 201906013
Fyrir dyrum stendur að gera nýjan samning við Umf. Sindra.
Farið var yfir erindi Umf. Sindra. Umræður sköpuðust um kostnað, fjölda iðkenda í greinum, kostnað við starf framkvæmdastjóra félagsins og hlutdeild sveitarfélagsins í þeim kostnaði. Fram kom að unnið verður að samningsgerðinni eftir sumarfrí og samhliða vinnu við fjárhagsáætlun.
11.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 44
Málsnúmer 1906002F
Fundargerð Ungmennaráðs lögð fram til kynningar.
12.
UNICEF: Verklag um ofbeldi og vanrækslu fyrir stofnanir sem starfa með börnum.
Málsnúmer 201905075
UNICEF hvetur öll sveitarfélög til að setja sér heildstætt og samræmt verklag, ef upp kemur grunur um ofbeldi og vanrækslu hjá stofnunum sem starfa með börnum. Fræðslustjóri upplýsti að vinna við slíkt verklag er hafin og áætlað er að ljúka henni næsta haust.
13.
Hofgarður: Húsnæði leikskóla
Málsnúmer 201906037
Vinnueftirlitið gerir athugasemdir við starfsmannaaðstöðu í leikskólanum í Hofgarði og við það að starfsmenn þurfi að fara út úr leikskólanum og inn í annan hluta húsnæðisins Hofgarðs til að nota almenna starfsmannaaðstöðu. Skoðaðar voru teikningar frá árinu 2015 af leikskólanum, sem gera ráð fyrir að opnað sé þaðan inn í grunnskólann og annað rými í Hofgarði. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að fyrirliggjandi teikningar verði kynntar stjórnendum og starfsmönnum í Hofgarði og málið tekið upp að nýju á fundi nefndarinnar í ágúst.
14.
Frístundastarf barna og ungmenna
Málsnúmer 201906035
Umræður urðu um skipulag frístundastarfs, ekki síst á sumrin fyrir börn í 4. - 6. bekk. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að auglýst verði sem fyrst eftir starfsmanni í Þrykkjuna og til fleiri verkefna á frístundasviði fyrir næsta skólaár. Nefndin álítur að auka þurfi starfshlutfall og halda úti starfi lengur en níu mánuði.
15.
Læsisstefna Sveitarfélagsis Hornafjarðar
Málsnúmer 201805064
Lokadrög að læsisstefnu sveitarfélagsins "Læsi allt lífið" voru lögð fram til kynningar og umræðu. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju með stefnuna og þakkar þeim Gunnhildi Gísladóttur og Þóru Jónu Jónsdóttur sem unnu hana fyrir góða vinnu. Nefndarmönnum falið að koma með ábendingar og athugasemdir á fundi 21. ágúst n.k. Fræðslu- og tómstundanefnd vísar stefnunni til umsagnar annarra nefnda sveitarfélagsins ásamt Ungmennaráði. Stefnunni er einnig vísað til leik- og grunnskóla sveitarfélagsins til umsagnar.
16.
Ársskýrsla fræðslustjóra
Málsnúmer 201906016
Fræðslustjóri lagði fram til umræðu skýrslu sína fyrir skólaárið 2018-2019.
17.
Tónskólinn: Skóladagatal 2019-2020
Málsnúmer 201906036
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir skóladagatal Tónskólans fyrir skólaárið 2019-2020.