Fræðslu- og tómstundanefnd
58. fundur
21. ágúst 2019
kl.
16:30
-
19:10
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Kolbrún Reynisdóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Leikskólinn Sjónarhóll: Starfsáætlun 2019-2020
Starfsáætlun Leikskólans Sjónarhóls fyrir næsta starfsár lögð fyrir og samþykkt. Þær breytingar verða seinni hluta september að Maríanna fer í fæðingarorlof og Elínborg mun verða staðgengill hennar á meðan. Svava Kristín mun leysa af sem aðstoðarleikskólastjóri. Samtals er fjöldi starfsmanna 35. Rætt var um ásókn eldri barna í að fara upp á þak leikskólans utan hefðbundins starfstíma skólans og leika sér á lóðinni á þann hátt sem hefur valdið skemmdum á nýjum leiktækjum skólans.
2.
Grunnskóli Hornafjarðar: Starfsáætlun 2019-2020
Slóð á starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar: http://gs.hornafjordur.is/stefna-ogaaetlun/starfsaaetlun/
Starfáætlun Grunnskóla Hornafjarðar fyrir næsta starfsár lögð fyrir og hún samþykkt.
Endurnýjun innréttinga í heimilisfræðistofu er að ljúka og framkvæmdir í Vöruhúsi eru í gangi en áætlað er að þeim ljúki um miðjan október. Umræður urðu um vetrarfríið og tímasetningu þess.
Endurnýjun innréttinga í heimilisfræðistofu er að ljúka og framkvæmdir í Vöruhúsi eru í gangi en áætlað er að þeim ljúki um miðjan október. Umræður urðu um vetrarfríið og tímasetningu þess.
3.
Hofgarður: Leikskólastarf
Bókun bæjarráðs 9. 201908033 - Hofgarður: Leikskólastarf Erindi frá Íbúasamtökum Öræfinga þar sem skorað er á sveitarfélagið að finna lausnir á mönnun leikskólans Lambhaga í Öræfum. Bæjarráð gefur bæjarstjóra heimild til að gera samning við starfsmenn leikskólans Lambhaga um 50% afslátt af leigu í húsnæði sveitarfélagsins til tveggja ára.
Bókun bæjarráðs lögð fram til kynningar. Fram kom hjá Brynju að nú í fyrsta skiptið hefur tekist að manna leikskólann alveg með tveimur heils dags starfsmönnum og ætti það að skila heildstæðu og samfelldu starfi til leikskólabarna. Búið er að manna kennslu í grunnskólanum en þar verða 6 nemendur í 1., 3., 4., 7. og 10 bekk. Búið er hreinsa og bóna gólfdúkana og verið er að laga glugga í salnum. Í byrjun ágúst skoðaði arkitekt Hofgarð með það í huga að gera innangengt milli leik- og grunnskóla og von er á tillögum frá henni er líður á haustið.
4.
Leik- og grunnskólar: Nýtt starfsheiti leiðagnakennara
Í tengslum við stórsókn stjórnvalda í menntamálum boðar menntamálaráðherra aðgerðir til að efla nýliðun í kennaranámi fjölga þeim sem útskrifast á réttum tíma og halda í þá kennara sem þegar eru í starfi á vettvangi leik- og grunnskóla. Aðgerðirnar eiga að standa í fimm ár.
Í aðgerðum til að efla nýliðun í kennaranámi felst m.a. að verið er að breyta náminu og bjóða nemum upp á launað starfsnám á lokaári námsins, veita kennaranemum styrk til að ljúka meistararitgerð og veita starfandi kennurum styrki til þess að taka nám í starfstengdri leiðsögn við HA eða MVS gegn því að gerast sérstakir leiðsagnarkennarar. Nefndin fagnar þessum aðgerðum og hvetur starfsfólk skólanna til að nýta sér þessa hvatningu til náms.
5.
Reglur um skólaakstur
Reglur um skólaakstur lagðar fram. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarráðs til staðfestingar.
6.
Skólaakstur: Akstursáætlun 2019-2020
Tímasett akstursáætlun um skólaakstur innan Öræfa og úr sveitum austan Öræfa lögð fram. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir áætlunina og mælist til þess að áætlunin verði send á öll heimili barna í skólaakstri og birt á heimasíðum skólanna.
7.
Frístundaakstur
Könnunin var send til foreldra/forráðamanna allra barna sem skráð eru í skólaakstur en þau eru 23 talsins frá 16 heimilum. Svör komu frá ellefu heimilum og af þeim áætla sjö að nýta frístundaakstur fyrir þrettán börn. Nánari tímasetningar verða ákveðnar þegar stundatafla Umf. Sindra liggur fyrir.
8.
Staða mála á fræðslusviði
Rætt var um hvernig skólastarf og annað starf á sviðinu fer af stað. Í Tónskólann vantar kennara sem veldur því að þeir kennarar sem fyrir eru þurfa að bæta á sig yfirvinnu. Þetta á sérstaklega við um forskólann. Borist hafa umsóknir frá 14 nýnemum en innritun lýkur á morgun. Búið er að ráða starfsmenn í Þrykkjuna og verið er að undirbúa starfið fyrir opnun.
9.
Ársskýrsla Fab Lab
Vilhjálmur fór yfir ársskýrslu Fab Lab fyrir árið 2018. Verið er að setja smiðjuna upp aftur eftir vinnu verktaka í sumar. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með það góða starf sem unnið er í smiðjunni. Nefndin telur mikilvægt að skólastigin vinni saman að því að móta samfellu og stíganda í nýsköpunarnáminu milli skólastiga og leggi sitt að mörkum við að viðhalda, byggja upp og dreifa þekkingu meðal starfsmanna og nemenda skólanna.
10.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2019
Fundargerð 88. fundar velferðarteymis lögð fram til kynningar og umræðu.
11.
TALIS skýrsla starfshættir og viðhorf kennara á unglingastigi
Alls taka 48 ríki þátt í TALIS rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). HELSTU VIÐFANGSEFNI TALIS 2018Í TALIS rannsókninni er leitast við að svara eftirfarandi spurningum meðal annarra:Hversu vel í stakk búnir eru kennarar til þess að takast á við áskoranir skólakerfisins?Getur mat og endurgjöf stuðlað að bættum kennsluháttum og þróun í starfi?Hvernig má styrkja stjórnendur skólanna til þess að bæta skólastarf og árangur nemenda?Hvernig geta framlög til starfsþróunar haft jákvæð áhrif á starf kennara?
Skýrslan lögð fram til kynningar og umræðu.
12.
Göngum í skólann 2019
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur alla skóla, foreldra og nemendur í sveitarfélaginu til þess að taka þátt í verkefninu: Göngum í skólann sjá nánar á www.gongumiskolann.is
13.
Á réttu róli ? Skólaþing sveitarfélaga
Kynning á skólaþingi sveitarfélaga lögð fram til. Skólaþing sveitarfélaga 2019 verður haldið á Grand hóteli mánudaginn 4. nóvember. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: Á réttu róli? Megináhersla þingsins mun verða á framtíðarskipan skólakerfisins og leitað verður svara við stóru spurningunni: Hvernig er núverandi skipan skólakerfisins að þjóna nemendum og áskorunum um menntun til framtíðar?
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur ungmennaráð til þess að tilnefna fulltrúa á þingið.
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur ungmennaráð til þess að tilnefna fulltrúa á þingið.