Fræðslu- og tómstundanefnd
59. fundur
18. september 2019
kl.
16:30
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Tónskólinn: 50 ára afmæli
Tónlistarskóli Hafnarkauptúns var settur í félagsheimilinu Sindrabæ laugardaginn 1. desember 1969.
Jóhann upplýsti um hugmyndir starfsfólks Tónskólans um viðburði í tilefni af 50 ára afmæli skólans sem er þann 1. des. n.k. Ákveðið er að hafa viðburð þann dag en dreifa svo öðrum viðburðum af og til yfir skólaárið. Meðal viðburða sem eru í skoðun eru t.d. Maxímús Músíkús og heimsókn Söngskólans í Reykjavík með uppfærslu á Fiðlarandum á þakinu o.fl. auk viðburða sem nemendur og kennarar skólans standa að. Endurbætur á Sindrabæ sem staðið hafa yfir í um 10 ár, komu til umræðu og óskaði Jóhann eftir stuðningi nefndarinnar um að ljúka þeim framkvæmdum sem fyrst.
2.
Leikskóli: Reglur um starfsemi leikskóla
Elínborg Hallbjörnsdóttir leikskólastjóri, Svava Kristín Þorsteinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri sitja fundinn undir liðum 2, 3 og 4.
Rýnt var í gildandi reglur um starfsemi leikskóla og ákveðið að fela fræðslustjóra og stjórnendum leikskóla að endurskoða reglurnar í heild sinni. Endurskoðaðar reglur um starfsemi leikskóla verða teknar fyrir á næsta fundi. Nefndin leggur til að ákvæði um forgang barna starfsmanna leikskólans um leikskóladvöl haldist óbreytt. Ennfremur er lagt til að ákvæði um afslátt af leikskólagjaldi barna starfsmanna verði ekki endurnýjað eftir 30. sept. n.k.
3.
Leikskólar: Reglur um breytingar á gjaldskrá vegna barna starfsmanna
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að reglurnar verði ekki endurnýjaðar eftir 30. sept. n.k.
4.
Starfsumhverfi leikskólastarfsmanna
Umræður urðu um aðgerðir í framhaldi af vinnu Marteins vinnusálfræðings með starfsmannahópnum um að minnka álag með því að skipuleggja innra starfið með skilvirkari hætti. Ákveðið er að nýta deildarstjóra- og starfsmannafundi í þá vinnu. Fræðslu-og tómstundanefnd bendir á að margt hefur verið gert í þeim tilgangi að minnka álag og leggur til eftirfarandi sem viðbót:
- Endurskoða og uppfæra reglur um stuðning við nám starfsmanna.
- Leggja áherslu á að byggja upp fagvitund starfsmanna og efla starfsmannahópinn með fræðslu, námskeiðum og heimsóknum.
- Fjölga föstum skipulagsdögum úr fimm í sex.
- Endurskoða og uppfæra reglur um stuðning við nám starfsmanna.
- Leggja áherslu á að byggja upp fagvitund starfsmanna og efla starfsmannahópinn með fræðslu, námskeiðum og heimsóknum.
- Fjölga föstum skipulagsdögum úr fimm í sex.
5.
Frístundaakstur
Akstursáætlun fyrir frístundaaksturinn lögð fram til kynningar.
6.
Læsisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Lokadrög að læsisstefnu sveitarfélagsins lögð fram. Allar nefndir sveitarfélagsins hafa fengið stefnuna til umfjöllunar en engar athugasemdir hafa borist. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir stefnuna.
7.
Samþætting þjónustu við börn og fjölskyldur
Til kynningar eru tvær útfærslur á samþættingu þjónustu við börn og fjölskyldur. Önnur hefur verið mótuð á Fljótsdalshéraði og er kölluð Austurlandsmódelið, hin var þróuð í Hafnarfirði og kallast BRÚIN.
Fræðslustjóri kynnti humyndir að auknu þverfaglegu samstarfi um stuðning við börn og fjölskyldur.
8.
Fjárhagsáætlun 2020
Skipulag um vinnslu fjárhagsáætlunar 2020 og 3ja ára áætlunar 2021-2023, lagt fram til kynningar.
9.
Ný matsviðmið í 4.og 7. bekk
Í aðalnámskrá eru matsviðmið sett fram fyrir námsgreinar, námssvið og lykilhæfni. Matsviðmið eru lýsing á hversu vel nemandi hefur skilgreinda hæfni á valdi sínu. Matsviðmiðin eiga við um 4. og. 7. bekk. Gert er ráð fyrir að skólar setji matsviðmið fyrir aðra árganga og geri grein fyrir þeim í skólanámskrá. Matsviðmiðin lýsa hæfni á kvarða sem birtur er í aðalnámskrá. Notaður er kvarðinn A, B, C, D, þar sem A lýsir framúrskarandi hæfni, B lýsir góðri hæfni, C sæmilegri hæfni og D hæfni sem nær ekki viðmiðum sem lýst er í C.
Lagt fram til kynningar.
10.
Leik-og grunnskólar: Sérfræðiþjónusta
Ráðið hefur verið í stöður til að sinna sérfræðiþjónustu í leik- og grunnskólum. Gerður hefur verið samningur við Elsu Kristjánsdóttur sálfræðing og Agnesi Steinu Óskarsdóttur talmeinafræðing. Þær munu sinna þjónustunni með reglubundnum heimsóknum næstu tvö árin a.m.k. Nemendur á 1. og 2. ári í FAS hafa einnig aðgang að þessari þjónustu.