Fræðslu- og tómstundanefnd
60. fundur
17. október 2019
kl.
16:30
-
19:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna
Máli frestað.
2.
Hofgarður: Endurbætur
Í umfjöllun um skipulag skólahúsnæðis í Hofgarði og athugasemdir vinnueftirlitsins vegna starfsaðstöðu starfsmanna var því vísað til starfsmanna að skoða málið og gera tillögur að úrbótum.
Tillögur frá arkitekt um breytingar á húsnæðinu í Hofgarði lagðar fram til kynningar. Teikningarnar fanga breytingar í öllu húsinu en í forgangi er að opna milli leik- og grunnskóla. Tillagan gerir ráð fyrir skólastofu á sviði í salnum en skólastjóra líst ekki á þá útfærslu. Það er nauðsynlegt til að auðvelda nýtingu á kennslurými og öðru rými og til að auka möguleika á samnýtingu starfsfólks, opnunin bætir einnig öryggi ef upp koma óhöpp eða slys.Umræður voru um rými sem ýmist er merkt sem kaffistofa starfsmanna eða leikstofa.
3.
Ytra mat í leik- og grunnskóla
Grunnskóli Hornafjarðar og Grunnskólinn í Hofgarði hafa verið valdir til mats á vorönn 2020 ásamt 12 öðrum skólum. Markmið með ytra matinu eru meðal annars að vera skólum hvati til frekari skólaþróunar, styðja stjórnendur og kennara í umbótum á eigin starfi og efla og styðja innra mat og gæðastjórnun skóla.
Bréf frá Menntamálastofnun (MMS)lagt fram. Umræður urðu um gagnsemi ytra mats. Skólastjórar Grsk. í Hofgarði og Grsk. Hornafjarðar eru jákvæðir fyrir matinu.
Einnig var lagt fram annað bréf frá MMS þar sem auglýst er eftir sveitarfélögum sem hafa áhuga á því að fram fari ytra mat á starfi leikskóla innan þeirra.
Ósk um þann matsþátt þarf að berast Menntamálastofnun fyrir 1.desember n.k
Einnig var lagt fram annað bréf frá MMS þar sem auglýst er eftir sveitarfélögum sem hafa áhuga á því að fram fari ytra mat á starfi leikskóla innan þeirra.
Ósk um þann matsþátt þarf að berast Menntamálastofnun fyrir 1.desember n.k
4.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæðismál til framtíðar
Vinna sú er fram fór fyrr á þessu ári var fyrsta skrefið í að móta stefnu í húsnæðismálum skóla og íþrótta. Umhverfis- og skipulagsnefnd hefur hafið vinnu við gerð deiliskipulags á miðsvæðinu. Í nýju deiliskipulagi verða skilgreindir nýir byggingarreitir og skilmálar fyrir þá, t.a.m. fyrir nýtt íþróttahús, líkamsræktarstöð og skóla. Umræður urðu um ástand húsnæðis grunnskólans og þær endurbætur sem eru orðnar aðkallandi, t.d. í Kátakoti, í matsal og millibyggingu í Heppuskóla við íþróttahús. Horfa þarf um 25 - 30 ár fram í tímann. Ákveðið að nefndin móti áætlun um áframhaldandi vinnu við framtíðarsýn í húsnæðismálum skólans. Þórgunnur sagði frá því að Vöruhúsið verði tilbúið á næstu dögum og stefnt er að því að hafa fyrsta Hafnarhitting haustsins þar. Þá gefst íbúum tækifæri til að skoða húsið.
5.
Vöruhús: Gjaldskrá 2020
Gjaldskrá Vöruhúss 2020 lögð fram og samþykkt.
6.
Gjaldskrá Sundlaugar 2020
Skjal með upplýsingum um gjaldskrár sundlauga lagt fram. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að hækka gjald fyrir fullorðna úr kr. 950 í kr. 1000 en önnur gjöld haldist óbreytt.
7.
Reglur um starfsemi leikskóla
Farið var yfir breytingar á reglum um starfsemi leikskóla í samræmi við bókun síðasta fundar. Umræður sköpuðust út frá fyrirspurn um fjölda barna í leikskólanum Sjónarhóli, á biðlista og fjölda starfsmanna á deildum. Farið var yfir upplýsingar um stöðuna og fræðslustjóra falið að fara yfir málið með stjórnendum. Afgreiðslu reglna frestað til næsta fundar.
8.
Aðgangur að Þrykkjunni
Starfsemi í Þrykkjunni hefur aukist með tilkomu hluta af starfsemi Kátakots þar alla virka daga frá kl 13:00-15:00. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að tekið verði gjald kr. 3000- á klst. fyrir afnot af húsnæði Þrykkjunnar um helgar, þar sem það er eini tíminn sem laus er, og gerður verði samningur um afnotin.
9.
Færni til framtíðar
Bæjarráð samþykkti að bjóða upp á fjögur námskeið á árinu 2019 fyrir foreldra barna yngri barna þeim að kostnaðarlausu.
Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með því að námskeiðið Uppeldi sem virkar - Færni til framtíðar verði í boði gjaldfrjálst fyrir foreldra út árið 2020.
10.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2019
Fundargerð velferðarteymis um fjölmenningarmál lögð fram til kynningar.
11.
Reglur um birtingu gagna með fundargerðum
Reglurnar lagðar fram og engar athugasemdir gerðar.
12.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 45
Fundargerð 45. fundar lögð fram.
13.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 46
Fundargerð 46. fundar lögð fram.
14.
Tvöföld skólavist: Leiðbeinandi álit
Leiðbeinandi álit lagt fram.
15.
Umf. Sindri: Samningur 2019
Lokadrög að samningi lögð fram til kynningar.
Samningurinn lagður fram til kynningar.