Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

62. fundur
18. desember 2019 kl. 16:15 - 18:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Kolbrún Reynisdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 48
Málsnúmer 1912004F
Fundargerð 48. fundar lögð fram. Ingunn og Íris Mist fóru yfir niðurstöður ungmennaþings frá 24.okt. sl. Þar kom m.a. fram að ungt fólk kallar eftir utanaðkomandi fræðslu um t.d. kynfræðslu, auka mætti framboð á félagslífi o.fl. Fram kom að það er miklu betri nýting núna í ungmennahúsi í Þrykkjunni en undanfarin ár og er það vegna þess að ungmennin eru núna betur meðvitaðir um að þetta er þeirra hús.
2.
Grunnskóli Hornafjarðar: Skólaþing
Málsnúmer 201912068
Miðvikudaginn 20. nóvember var haldið skólaþing í Grunnskóla Hornafjarðar og var dagsetningin valin í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna.Fjallað var um þrjú meginviðfangsefni: 1.Hvernig gæti heimurinn orðið betri eða hvað þyrfti til að laga í heiminum? 2.Hvað mætti betur laga í okkar samfélagi? 3.Hvað mætti betur fara í Grunnskóla Hornafjarðar. https://gs.hornafjordur.is/media/annad/Nidurastodur-skolathings.pdf.
Fulltrúar skólaráðs sögðu frá skólaþinginu og kynntu niðurstöðður þess og umræður urðu um niðurstöðurnar. Fram kom að þann 10. jan verður fundur með skólaráði, nemendaráði og umhverfisteymi skólans þar sem niðurstöður þingsins í umhverfismálum verða til umræðu. Fram kom að nemendaráð hefur hitt matráðinn sem sér um skólamáltíðir og afhent honum hugmyndir að breytingum á matseðlinum í janúar. Fræðslu- og tómstundanefnd þakkar nemendaráði fyrir kynninguna.
3.
Grunnskóli Hornafjarðar: Ósk um aukafjárveitingu
Málsnúmer 201912069
Þórgunnur mælti fyrir málinu og útskýrði þörf fyrir sérhæfða þekkingu til viðbótar í starfslið skólans. Fræðslu- og tómstundanefnd styður ósk skólastjórans um að auglýsa og ráða sérfræðing ef hann fæst. Áætlað er að auglýsa sem fyrst og ganga frá ráðningu í upphafi árs. Málinu vísað til ákvörðunar bæjarráðs.
4.
Niðurstöður PISA 2018
Málsnúmer 201912019
Hornafjörður flokkast með Austurlandi í skýrslunni
Megintilgangur PISA er að gefa heildarmynd af þekkingu og færni nemenda í þátttökulöndum við lok skólaskyldu þeirra. Skipulag og tölfræðilegur grunnur könnunarinnar miðar fyrst og fremst að því að veita slíka heildarmynd. Þetta hefur það í för með sér að PISA er ekki til þess fallin að veita áreiðanlegar upplýsingar um frammistöðu fámennra nemendahópa eins og þeirra sem tilheyra einstökum skólum. Umræður urðu um niðurstöðurnar og boðaðar aðgerðir menntamálaráðuneytisins til að styrkja skólastarfið í landinu.
5.
Fyrirspurn um rakastýringarkerfi
Málsnúmer 201912083
Þóra Björg Gísladóttir óskar eftir upplýsingum um stöðuna á rakastýringarkerfi í íþróttahús við Heppuskóla.
Gunnar Ingi fundaði með umsjónarmanni fasteigna og pípulagningameistara um hvað best sé að gera. Besta lausnin að mati þeirra er að endurnýja loftræstikerfið sem nú er í íþróttahúsinu og leggja loftræstikerfi sem er með sambyggðri rakastýringu. Kostnaður við það er gróflega áætlaður 10 - 15 milljónir. Tilboð í rakastýringartæki hljóðar upp á 1,6 milljónir fyrir utan vinnu við uppsetningu, það stýrir bara rakanum en áfram verða vandræði með flöktandi hitastig sem ekki tekst að stýra með núverandi ofna- og loftræstikerfi. Fræðslu- og tómstundanefnd beinir því til bæjarráðs að fjármunir verði settir hið fyrsta í að ljúka við hita- og rakastýringarkerfi íþróttahússins. Ljóst er að gólf hússins liggur undir skemmdum við þær hita- og rakasveiflur sem nú eru í salnum.
6.
Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna
Málsnúmer 201810035
Bartek Skrzypkowski gerir grein fyrir stöðu málsins.
Fram kom í máli Barteks að hann kennir pólsku í tveimur hópum nemenda í Grunnskóla Hornafjarðar, í 1.-5. bekk = 8 nemendur og í 6.-10. bekk = 6 nemendur. Kennt er í hvorum hóp tvisvar í viku eftir skóla. Kennslan í yngri hópnum er talsverð áskorun vegna þess bils sem er milli yngstu og elstu barnanna í þeim hópi. Námið er val. Fræðslu- og tómstundanefnd líst vel á framkvæmd kennslunnar og hvetur nemendur af pólskum uppruna til að nýta sér hana.
7.
Reglur um foreldragreiðslur
Málsnúmer 201901033
Endurskoða þarf tímabundna ákvörðun um foreldragreiðslur þar sem reglur um þær renna út í árslok 2019.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að reglurnar verði framlengdar um eitt ár og þær endurskoðaðar í lok árs 2020. Ákvörðun vísað til bæjarráðs.
8.
Rekstrarupplýsingar um rekstur leikskóla 2018
Málsnúmer 201911090
Farið var yfir upplýsingar um rekstur leikskóla.
9.
Frístundaakstur
Málsnúmer 201908021
Farið var yfir nýtingu á frístundaakstri. Fram kom að ánægja er með aksturinn meðal notenda.
10.
Verklagsreglur um ofbeldi gagnvart börnum
Málsnúmer 201812046
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar þeim til ákvörðunar í bæjarráði.