Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

63. fundur
22. janúar 2020 kl. 16:15 - 17:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæðismál til framtíðar
Málsnúmer 202001024
Haldnir hafa verið tveir fundir með nemenda- og skólaráði saman og með starfsfólki Grunnskóla Hornafjarðar þar sem farið var yfir húsnæðisþörf skólans til framtíðar litið.
Í þarfagreiningu kemur skýrt fram í báðum hópum að við skólann vanti matsal, sal fyrir vikuhátíðir og aðra viðburði, leiklist, söngsal o.fl. Að núverandi matsalur sé of lítill og hljóðvist óviðunandi. Húsnæði Kátakots er of lítið fyrir starfsemina. Kennslustofur í Hafnarskóla eru af óhentugri stærð þar sem erfitt er að koma fyrir hópum fleiri nemenda en 15-20. Breyttir kennsluhættir kalla einnig á skiptingu bekkja/árganga í minni hópa og þá vantar rými fyrir þá, sérstaklega í Hafnarskóla. Bókasafn í Hafnarskóla er á efri gangi skólans sem er ekki góð staðsetning. Í umræðunni kom einnig fram að besta staðsetning grunnskóla sé í nálægð við íþróttamannvirki þ.e. að framtíðaruppbygging verði á núverandi miðjusvæði. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að uppbygging GH til framtíðar verði áfram á miðsvæði. Fræðslustjóra og formanni nefndarinnar falið að kanna hug foreldra og forsjáraðila leik- og grunnskólabarna til framkominna hugmynda.
2.
Leiðbeiningar um ráðningar kennara og skólastjórnenda
Málsnúmer 202001023
Hinn 20. júní 2019 voru samþykkt á Alþingi lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara ogskólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019. Með lögunum er lögfesturhæfnirammi um menntun og hæfni kennara og skólastjórnenda, í samræmi við alþjóðlega þróun, semlýsir þeirri hæfni sem kennarar þurfa að búa yfir til samræmis við þá ábyrgð sem felst í starfi þeirra. Viðgildistöku laganna falla úr gildi lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla,grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008. Nýju lögin öðlast gildi 1. janúar 2020 fyrir utanbráðabirgðaákvæði sem hefur nú þegar öðlast gildi
Leiðbeiningarnar lagðar fram til kynningar.
3.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 49
Málsnúmer 2001001F
Fundargerð lögð fram. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með frumkvæði ungmennaráðs á að kanna neyslu og aðgengi barna og ungmenna að orkudrykkjum.
4.
Uppeldi sem virkar, færni til framtíðar
Málsnúmer 202001048
Sveitarfélagið hefur staðið fyrir foreldranámskeiðinu Uppeldi sem virkar, færni til framtíðar frá nóvember 2018. Bæjarráð hefur samþykkt að bjóða foreldrum ókeypis á námskeiðin út árið 2020.
Búið er að halda tvö uppeldisnámskeið á Höfn og eitt í Öræfum, þeir sem hafa sótt námskeiðin telja þau mjög gagnleg. Rætt var um leiðir til að fjölga foreldrum á námskeiðin og fræðslustjóra falið að vinna að málinu með námskeiðshöldurum.
5.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2019
Málsnúmer 201902052
Fundargerð lögð fram til kynningar. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju með störf í þágu fjölmenningar.
6.
Menntun til framtíðar, menntastefna til 2030
Málsnúmer 202001063
Í skýrslunni er fjallað um helstu viðfangsefni og niðurstöður fundaraðar um menntamál sem mennta- og menningarmálaráðuneyti gekkst fyrir í samráði viðhagaðila veturinn 2018-19. Fundaröðin var liður í mótun menntastefnu Íslands til ársins 2030 sem nú stendur yfr en ný menntastefna mun ávarpa og setja í forgang þær áskoranir sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir í mennta- og velferðarmálum.
Lagðar voru fram tvær skýrslur til kynningar. Í þeim eru m.a. kynntar tillögur að áherslum í nýja menntastefnu fyrir Ísland. Tillögurnar beinast að nemendum, kennaramenntun og starfsþróun, lærdómssamfélögum, starfsaðstæðum í skólum, mati á skólastarfi, skólaþjónustu og samspili kerfa og nýtingu fjármagns. Áætlað er að leggja fram þingsályktunartillögu um stefnuna á Alþingi næsta vor.
7.
Innleiðing geðræktarstarfs fyrir börn og ungmenni 2019
Málsnúmer 202001066
Í geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda til ársins 2020 var kveðið á um stofnun starfshóps til að setja fram tillögur um innleiðingu geðræktarstarfs í leik-, grunn-og framhaldsskólum á Íslandi. Verkefni hópsins var að fara yfir stöðu geðræktarstarfs í íslenskum skólum, skoða þær aðferðir sem þar eru notaðar og hversu vel þær eru studdar rannsóknum. Einnig að greina hvaða þjálfun og fræðsla fari fram um þroska barna, geðheilsu og geðrækt í skólastarfi.
Skýrslan lögð fram til kynningar þar er m.a. settar fram tillögur um:
1. Geðræktarkennslu á öllum skólastigum
2. Þrepaskiptan stuðning í skólastarfi
3. Samstarf kerfa í þágu barna og ungmenna
4. Skólaumhverfi sem styður við vellíðan
5. Þekkingu og færni til að vinna með hegðun, líðan og samskipti barna og ungmenna
6. Gagnreynda nálgun að hegðun í skólakerfinu
7. Skólatengsl og samstarf við foreldra
8. Rétt til gæðamenntunar og gagnreyndra stuðningsúrræða.
Fræðslu- og tómstundanefnd telur tillögurnar til mikilla bóta og vonast til að þær komist til framkvæmda sem fyrst.