Fræðslu- og tómstundanefnd
64. fundur
12. febrúar 2020
kl.
16:15
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Til skoðunar er að sveitarfélagið hefji markvissa vinnu að því að uppfylla réttindi barna eins og þau birtast í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, með því að gerast aðili að samvinnuverkefni Félagsmálaráðuneytisins og Unicef; Barnvæn sveitarfélög www.http//barnvaensveitarfelog.is
Hjördís Eva kynnti markmið með verkefninu Barnvæn sveitarfélög og innleiðingarferli þess fyrir Fræðslu- og tómstundanefnd og Ungmennaráði saman. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að Sveitarfélagið Hornafjörður sæki um aðild að verkefninu. Nefndin telur mikinn ávinning af því hvað varðar lærdómstækifæri þeirra sem taka þátt í innleiðingunni, til að virkja enn betur samráð við börn og tryggja að tekið sé tillit til hagsmuna barna í allri ákvarðanatöku hjá sveitarfélaginu.
2.
Styrkir fræðslu- og tómstundanefndar
Umsóknir bárust frá sex aðilum þetta árið. Samtals hljóðuðu umsóknirnar upp á kr. 2.052.010- en nefndin hefur kr. 500.000- til úthlutunar. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að tilkynna styrkþegum úthlutun nefndarinnar og beinir því til bæjarráðs að hækka heimild til styrkveitinga fyrir næsta ár.
3.
Seinkun skólabyrjunar
Í samfélaginu hefur verið vaxandi umræða um svefn, þar sem rannsóknir sýna fram á mikilvægi nægs svefns fyrir líkamlega og andlega heilsu. Í skólaráði Grunnskóla Hornafjarðar og meðal starfsmanna var málið tekið til umræðu og fram er komin sú hugmynd að seinka skólabyrjun á morgnana til kl. 9 í stað 8:10 eins og nú er. Rökin fyrir því að breyta þessu eru tvíþætt:
1. Auka svefntíma barna sem eiga lengst að úr sveitum en þau verða að vakna á bilinu 06:20 - 06:30 til að ná skólabílnum og vera komin á réttum tíma í skólann.
2. Koma til móts við líkamsklukku unglinga. Rannsóknir á heilastarfsemi ungmenna sýna fram á að melatónínframleiðslu heilsans seinkar svo að algengt er að unglingar verði syfjaðir seinna, geti hreinlega ekki sofnað snemma á kvöldin og mæti vansvefta í skólann snemma á morgnana.
Umræður urðu um kosti og galla þess að seinka skóla og hvað þyrfti til að það gengi upp. Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra að boða til fundar með skólaráði GH, nefndarmönnum og foreldrum leik- og grunnskólabarna til að kanna viðhorf þeirra til málsins. Ákveðið að boða til þess fundar fimmtudaginn 19. mars kl. 16:30 í Nýheimum. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að málið verði tekið til umfjöllunar í bæjarráði sem fyrst.

4.
Ósk um gistingu fyrir 45 manns 28.apríl 2020
Um er að ræða gistinu fyrir 45 manns fatlað fólk og aðstoðarmenn frá nokkrum Evrópulöndum sem eru að hlaupa boðhlaup víða um Evrópu. Fræðslustjóri finnur lausn í samstarfi við forstöðumann íþróttamiðstöðvar og skólastjóra grunnskólans.
5.
Verklagsreglur vegna ofbeldis eða óviðeigandi framkomu starfsmanna gagnvart börnum
Bæjarráð vísaði þessu máli til umfjöllunar í nefndum.
Reglurnar lagðar fram nefndin gerir ekki athugasemdir við þær.
6.
Velferðarteymi: fundargerðir og mál 2019
Fundargerð 89. fundar velferðarteymis lögð fram.
7.
Stýrihópur um heilsueflandi samfélag: Erindisbréf.
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir erindisbréf um stýrihóp fyrir Heilsueflandi samfélag.