Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

67. fundur
22. apríl 2020 kl. 16:15 - 18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Golfklúbbur Hornafjarðar: Ársskýrsla
Málsnúmer 202004046
Ársskýrsla Golfklúbbsins lögð fram þar sem fram kom m.a. að félögum fjölgaði um 15 og eru nú 102 alls. Ekki varð af golfkennslu barna og unglinga síðasta sumar, eins og oftast áður, því ekki fannst kennari til að taka hana að sér. Börn og unglingar fá að spila frítt á golfvellinum, undir leiðsögn golffélaga. Betur horfir með kennslu þeirra á sumri komanda. Gestur lýsti miklu vinnuálagi vegna umhirðu vallarins, viðhaldi á klúbbshúsinu og fleiri verkefna. Hann taldi vera þörf yfir viðbótarstarfsmann fyfir sumarmánuðina.

2.
Björgunarfélag Hornafjarðar: Ársskýrsla
Málsnúmer 202004047
Fram kom að Unglingadeildin Brandur hélt fundi vikulega sl. ár og var mætingin þetta 6-16 unglingar. Meðal verkefna sem farið var í voru: Fyrsta hjálp, spottavinna, hnútakvöld, snjóflóðaýlu-æfing, kennsla á GPS tæki og talstöðvar, kassaklifur, Kids Save Lives í Grunnskólanum og Landsmót unglingadeilda á Siglufirði dagana 26 - 30 júní. Áformað er að halda landsmót unglingadeilda á Hornafirði sumarið 2021.
3.
Umf. Sindri: Ársskýrsla
Málsnúmer 202004045
Fram kom að rekstur allflestra deilda Umf. Sindra síðasta ár gekk vel og var starfið með hefðbundnum hætti. Nýjasta deild félagsins er rafíþróttadeild sem hóf starfsemi í september s.l. en fékk formlega aðild að félaginu í febrúar s.l. Iðkendur voru að meðaltali 8- 12 talsins á æfingum þeirrar deildar. Rætt var um áhrif Covid 19 á íþróttastarf barna og unglinga og þær aðferðir sem íþróttafélög hafa beitt til að hvetja þau til að stunda kerfisbundna hreyfingu. Rætt var um möguleika á keppnum og mótum í sumar. Rætt var um áform félagsins að sækja um framkvæmdastyrki til KSÍ til að koma upp hreinlætisaðstöðu við Báruna. Umræður urðu um framtíðarskipulag íþróttamála á miðsvæðinu.
4.
Grunnskóli Hornafjarðar: Fundur 16. apríl 2020
Málsnúmer 202004052
Farið var yfir samantekt á ábendingum og athugasemdum af streymisfundi um málefni grunnskóla Hornafjarðar A) Seinkun skólabyrjunar og B) Húsnæði GH til framtíðar.
5.
Seinkun skólabyrjunar
Málsnúmer 202001028
Á streymisfundi 16. apríl s.l. um málefni GH voru skoðanir skiptar um seinkun skólabyrjunar á morgnana og voru sjónarmið foreldra samhljóða þeim sem fram hafa komið hjá starfsfólki. Ákveðið er að gera skoðanakönnun meðal foreldra um seinkun skólabyrjunar um 50 mínútur þ.e. að frá og með haustinu byrji kennsla kl. 9:00 í stað kl. 8:10. Formanni fræðslunefndar, fræðslustjóra og skólastjóra GH er falið að hanna spurninguna og senda hana til foreldra í næstu viku.
6.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæðismál til framtíðar
Málsnúmer 202001024
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að næstu skref í húsnæðismálum GH verði að setja fram tillögur sem byggja á þeim áherslum sem fram hafa komið meðal foreldra og starfsmanna. Gera þarf grein fyrir rýmisþörf miðað við breytta kennsluhætti og spá um fjölda nemenda til næstu 30 ára. Áformað er að leggja fram tillögur að lausnum með skóla í a) einni byggingu með viðbyggingu við annað hvort húsið b) í tveimur byggingum, til að uppfylla þær þarfir sem lýst hefur verið. Nefndin leggur áherslu á að verkið verði unnið fyrir haustið.
7.
Grunnskóli Hornafjarðar: Skóladagatal 2021-2022
Málsnúmer 202003056
Skóladagatal GH lagt fram og samþykkt.
8.
Leikskólinn Sjónarhóll: Skóladagatal 2020-2021
Málsnúmer 202003057
Skóladagatal Leikskólans Sjónarhóls lagt fram og samþykkt.
9.
Tónskólinn: Skóladagatal 2020-2021
Málsnúmer 202003058
Skóladagatal Tónskólans lagt fram og samþykkt.
10.
Aðgerðir í fræðslu-, íþrótta- og tómstundamálum vegna Covid 19
Málsnúmer 202003052
Rætt var um afléttingu takmarkana í skóla-, íþrótta- og tómstundamálum frá 4. maí n.k.
11.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Málsnúmer 201907018
Fræðslu- og tómstundanefnd gerir ekki athugasemdir við endurnýjaða jafnréttisáætlun.