Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

70. fundur
19. ágúst 2020 kl. 16:15 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Claudia Maria Hildeblom 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Aðgerðir í fræðslu-, íþrótta- og tómstundamálum vegna Covid 19
Málsnúmer 202003052
Nemendum og starfsfólki í framhalds- og háskólum ber að tryggja a.m.k. eins metra bil sín í milli í skólastarfi í stað tveggja metra reglunnar sem almennt er í gildi í samfélaginu, samkvæmt breytingum á sóttvarnarreglum. Hið sama á við um fullorðna í starfi leik- og grunnskóla, þ.e. kennara og annað starfsfólk sem þurfa að halda minnst metra fjarlægð sín í milli í skólastarfi. Engin fjarlægðarmörk eru í gildi fyrir nemendur á leik- og grunnskólaaldri. Á íþróttaæfingum og keppnum eru snertingar heimilar milli íþróttafólks þrátt fyrir 2 metra nálægðartakmörkun. Aftur á móti skal virða 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða 2 metra regluna.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur áherslu á að haldið verði úti eins eðlilegu skólastarfi og hægt er miðað við þær aðstæður sem Covid 19 faraldurinn skapar. Áhersla er lögð á að starfsfólk virði eins metra regluna í samskiptum sín á milli í starfinu og fari eftir leiðbeiningum frá landlækni og almannavörnum um smitgát og varnir. Sérfræðiþjónusta við skólana verður með hefðbundnum hætti og með sömu fyrirvörum.
2.
Grunnskólinn í Hofgarði: Starfsáætlun 2020-2021
Málsnúmer 202008032
Í umræðum um starfsáætlun leik- og grunnskólans í Hofgarði kom fram að einungis tveir nemendur munu stunda nám í grunnskólanum en í leikskólanum verða fimm börn þar af eitt fimm ára. Skólastjóra falið að gera ákveðnar breytingar á starfsáætluninni fyrir næsta fund nefndarinnar. Umræður urðu um þá áætlun að opna húsnæðið milli leik- og grunnskóla þannig að hægt sé að auka samvinnu og samveru milli skólastiga og nýta betur starfskrafta starfsfólksins á báðum skólastigum.
3.
Starfsáætlun Tónskólans 2021
Málsnúmer 202006075
Starfsáætlun Tónskólans lögð fram og samþykkt.
4.
Leikskólinn Sjónarhóll: Starfsáætlun 2020-2021
Málsnúmer 202008033
Starfsáætlun lögð fram og samþykkt.
5.
Starfsáætlun 2020-2021
Málsnúmer 202008031
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar er á heimasíðu grunnskólans https://gs.hornafjordur.is/stefna-og-aaetlun/starfsaaetlun/
Starfsáætlun lögð fram og samþykkt.
6.
Grunnskóli Hornafjarðar: Húsnæði Kátakots
Málsnúmer 201903067
Áætlað er að viðbótarhúsnæði í Vöruhúsinu sem ætlað er undir starfsemi Kátakots verði tilbúið til notkunar í lok september.
7.
Útikennslustofa við Miklagarð
Málsnúmer 202006085
Lýsing á skipulagi útikennslu lögð fram til kynningar. Í vetur er áætlað að vera með kennsluna í rústum Verðanda við Miklagarð. Einnig var rædd sú hugmynd að setja upp útileiksvið í nánustu framtíð í Hrossabithaga sem skólar og áhugaleikhópar gætu nýtt.
8.
Móðurmálskennsla barna af erlendum uppruna
Málsnúmer 201810035
Skýrsla um móðurmálskennslu í pólsku fyrir grunnskólanemendur í GH lögð fram til kynningar. Fræðslustjóra falið að kanna áhuga foreldra yngri barna á að sækja kennslu fyrir þau í vetur. Einnig að kanna með kennara og fjármagn.
9.
Akstursáætlun skólaaksturs 2020-2021
Málsnúmer 202008034
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir framlagða akstursáætlun fyrir skólaárið 2020-2021.
10.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Málsnúmer 201911065
Bæjarráð vísaði erindisbréfi fyrir stýrihóp um barnvænt sveitarfélag til nefnda sem eiga aðild að stýrihópnum.
Erindisbréf um stýrihóp fyrir barnvænt sveitarfélag lagt fram til umsagnar. Fræðslu- og tómstundanefnd gerir ekki athugasemdir við framlagt erindisbréf.
11.
Erindisbréf Ungmennaráðs 2020
Málsnúmer 202006071
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir tillögur Ungmennaráðs að breytingum á erindisbréfi ráðsins.
12.
Félagsmiðstöð - viðbótargreining
Málsnúmer 202008050
Könnun frá Rannsóknum og greiningu um þátttöku ungmenna í starfi félagsmiðstöðva lögð fram. Fundarmenn sammála um að spurningarnar í könnuninni væru miðaðar við starf stóru félagsmiðstöðvanna á höfuðborgarsvæðinu og niðurstöður því ekki marktækar fyrir Þrykkjuna. Fram kom að á fundi forstöðumanna félagsmiðstöðva með R&G sem haldinn var í gær var ákveðið að endurskoða spurningarnar og bæta við nýjum.
13.
Göngum í skólann
Málsnúmer 202008036
Erindi frá Íþrótta- og ólympíusambandinu lagt fram til kynningar. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur nemendur og starfsfólk skóla til að kynna sér verkefnið og taka þátt.