Fræðslu- og tómstundanefnd
72. fundur
21. október 2020
kl.
16:15
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Tónskólinn: Skóladagatal 2020-2021
Lagðar til breytingar á skóladagatali Tónskólans til samræmis við áður samþykktar breytingar á skóladagatali grunnskólans.
Jóhann lagði til að föstudagurinn 23. apríl verði starfsdagur hjá Tónskólanum eins og í grunnskólanum og að skólaslitin verði fimmtudaginn 20. maí í stað föstudagsins 21. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir þessar breytingar.
2.
Barngildi í leikskólum
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að viðmiðum um barnafjölda á hvern starfsmann eftir aldri barnanna en stjórnendur eru jafnframt hvattir til að gæta hagræðis í mannaráðningum.
3.
Starfsemi leikskóla milli jóla og nýárs
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir tillögu formanns um að hefð um skerta starfsemi sem þróast hefur í leikskólum á Höfn verði hér eftir fest sem verklag og að þeir foreldrar sem skrá börnin sín í frí milli jóla og nýárs fái afslátt af leikskólagjöldum í samræmi við fjölda frídaga. Jafnframt að foreldrar leikskólabarna í Öræfum fái afslátt af leikskólagöldum þá virku daga sem leikskólinn þar er lokaður yfir jól og páska. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
4.
Farsímanotkun nemenda í grunnskólum
Fræðslu- og tómstundanefnd vísaði málinu til umsagnar skólaráðs og starfsmannahóps grunnskólans
Niðurstöður umræðna í nemendaráði, skólaráði og meðal starfsmanna grunnskólans eru þær að halda áfram að leyfa notkun snjallsíma í skólanum. Umræður sköpuðust um snjalltækjanotkun í grunnskólanum og reglur þar um. Nemendur í 1. - 6. bekk mega ekki koma með snjalltæki í skólann en í 7. - 10. bekk er það leyfilegt. Ljóst er að til að gæta jafnræðis má skólinn ekki gera ráð fyrir að allir eigi snjallsíma til að nýta í námi. Því hvetur fræðslu- og tómstundanefnd til þess að haldið verði markvisst áfram að ljúka tölvu- og iPadvæðingu skólans sérstaklega á eldri stigum.
5.
Vímuefnanotkun unglinga á Höfn, Espad 2019
Evrópska vímuefnarannsóknin European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs(ESPAD) er samvinnuverkefni fræðimanna í rúmlega fjörutíu Evrópulöndum. Meginmarkmið verkefnisins er safna sambærilegum gögnum yfir tíma um notkun vímuefna í eins mörgum Evrópulöndum og mögulegt er.
Rannsóknin hefur verið gerð meðal 15 -16 ára nemenda á fjögurra ára fresti frá 1995. Þar er t.d. fylgst með þeim aldri þegar unglingar reykja fyrstu sígarettuna og drekka fyrsta áfengissopann, breytingum á tíðni og magni áfengisneyslu, hlutdeild bjórs, léttvíns, sterks áfengis og áfengra gosdrykkja í unglingadrykkju. Þá er fylgst með öllum helstu tegundum ólöglegra vímuefna. Jafnframt eru vandamál vegna vímuefnaneyslu metin og fylgst með breytingum á viðhorfum unglinga til mismunandi vímuefna. Hafa ber í huga við túlkun niðurstaðna fyrir Hornafjörð að árgangar eru fámennir og sveiflur geta verið verulegar milli ára.
6.
Fjárhagsáætlun 2021
Undir fræðslu- og félagssvið heyra átta stofnanir. Farið var yfir niðurstöðu fjárhagsáætlana þeirra og óskir um stofnbúnað. Áætlanirnar gera ekki ráð fyrir breytingum á útgjöldum milli ára.
7.
Gjaldskrár fræðslu- og tómstundasviðs
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til 2.5% hækkun gjalda fyrir skólamáltíðir og fyrir skólagjöld í Tónskólanum til að halda í við verðlagsþróun. Aðrar gjaldskrár eru vísitölutengdar og uppfærast árlega í takt við þróun neysluvísitölu. Gjaldskránum vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
8.
Reglur um akstur foreldra leiskólabarna í dreifbýli
Farið var yfir breytingar á reglum frá 2011 til að skerpa á tímamörkum vegna umsókna. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir breytingarnar.
9.
Uppeldi sem virkar, færni til framtíðar
Bæjarstjórn samþykkti að bjóða foreldrum upp á gjaldfrí námskeið út árið 2020 og endurskoða málið þá. Búið er að halda þrjú námskeið og gefa þátttakendur þeim mjög góða umsögn. Ekki hefur tekist að halda námskeið fyrir foreldra það sem af er þessu ári.
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að foreldrum verði boðið upp á námskeiðið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar, þeim að kostnaðarlausu til loka ársins 2022. Þá verði metið á grunni þátttöku og árangurs hvort þau verði í boði áfram. Markmiðið er að bjóða upp á tvö námskeið árlega. Málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs.
10.
Fagráð eineltismála
Hlutverk fagráðsins er að veita skólasamfélaginu stuðning vegna eineltismála með almennri ráðgjöf, leiðbeiningum og upplýsingagjöf, sjá nánar á https://mms.is/fagrad-eineltismala-i-grunn-og-framhaldsskolum-0
Farið yfir upplýsingar um fagráð eineltismála. Þeir sem geta leitað til fagráðsins eru nemendur, foreldrar/forráðamenn og starfsfólk grunn- og framhaldsskóla. Einnig aðilar sem starfa með börnum í skóla-, frístunda- eða tómstundastarfi sem hefur stoð í grunnskólalögum.
11.
Skýrslur Eurydice um skipulag og lengd skólaárs í Evrópu
Eurydice upplýsinganetið fylgist með og útskýrir hvernig mismunandi menntakerfi Evrópu eru skipulögð og hvernig þau virka. Frekari upplýsingar um Eurydice eru hér http://eacea.ec.europa.eu/education/eurydice
Skýrslurnar lagðar fram til kynningar.