Fræðslu- og tómstundanefnd
73. fundur
18. nóvember 2020
kl.
16:15
-
18:15
Teams Meating
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Skipulag skólamála í Öræfum
Fræðslu- og tómstundanefnd vill skoða valkosti í skólahaldi í Öræfum með það að markmiði að hagræða í rekstri og styrkja faglegt starf leik- og grunnskólans þar með formlegri tengingu við skólastarf á Höfn. Í Hofgarði eru í vetur 6 nemendur í leikskóla og 2 nemendur í grunnskóla, skólastjóri ber ábyrgð á báðum skólastigunum.
Nefndin ræddi kosti og galla eftirfarandi þriggja sviðsmynda um sameiningu við skóla á Höfn:
Sviðsmynd 1
Leikskólinn Lambhagi í Hofgarði verði deild í leikskólanum Sjónarhóli og Grunnskólinn í Hofgarði verði deild í Grunnskóla Hornafjarðar (GH).
Sviðsmynd 2.
Samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði verði starfsstöð/deild í Grunnskóla Hornafjarðar(GH).
Sviðsmynd 3
Óbreytt skipulag - samrekinn leik- og grunnskóli sérstök eining undir stjórn skólastjóra.
Brynja skólastjóri lagði áherslu á að sviðsmynd 3 hugnaðist starfsfólki í Hofgarði best þ.e. að halda óbreyttu skipulagi og halda þannig sérstöðu sinni. Hún lagði áherslu á að það mættu vera meiri samskipti við skólana á Höfn þótt skólinn væri áfram sérstök eining.
Fræðslustjóra falið að leggja kostnaðaráætlun um allar sviðsmyndirnar fyrir fund nefndarinnar 16. desember.
Fræðslu- og tómstundanefnd áætlar að funda með íbúum í Öræfum um málið í byrjun næsta árs.
Sviðsmynd 1
Leikskólinn Lambhagi í Hofgarði verði deild í leikskólanum Sjónarhóli og Grunnskólinn í Hofgarði verði deild í Grunnskóla Hornafjarðar (GH).
Sviðsmynd 2.
Samrekinn leik- og grunnskóli í Hofgarði verði starfsstöð/deild í Grunnskóla Hornafjarðar(GH).
Sviðsmynd 3
Óbreytt skipulag - samrekinn leik- og grunnskóli sérstök eining undir stjórn skólastjóra.
Brynja skólastjóri lagði áherslu á að sviðsmynd 3 hugnaðist starfsfólki í Hofgarði best þ.e. að halda óbreyttu skipulagi og halda þannig sérstöðu sinni. Hún lagði áherslu á að það mættu vera meiri samskipti við skólana á Höfn þótt skólinn væri áfram sérstök eining.
Fræðslustjóra falið að leggja kostnaðaráætlun um allar sviðsmyndirnar fyrir fund nefndarinnar 16. desember.
Fræðslu- og tómstundanefnd áætlar að funda með íbúum í Öræfum um málið í byrjun næsta árs.
2.
Samræmd próf haust 2020
Farið yfir niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk. Fundarmenn lýsa ánægju sinni yfir niðurstöðunum sem eru í flestum þáttum yfir landsmeðaltali. Þórgunnur skólastjóri telur að áherslur skólans og vinna kennaranna sé að skila sér í bættum árangri nemenda.
3.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Efla verkfræðistofa hefur unnið tillögu að deiliskipulagi fyrir miðsvæði Hafnar. Tillögur Eflu eru byggðar á þarfagreiningum starfshópa um íþrótta-, skóla, og útivistarsvæði frá 2015 og 2017, Skipulagsforsögn og Forsendugreiningu sem ráðgjafafyrirtækið Alta vann fyrir sveitarfélagið 2018 og 2019.
Brynja Dögg umhverfis- og skipulagsstjóri fór yfir tillögu Eflu að deiliskipulagi miðsvæðis á Höfn. Markmið með deiliskipulaginu er m.a að styrkja miðsvæði bæjarins umhverfis skóla- og íþróttasvæðið og efla svæðið sem aðlaðandi útivistarsvæði til samverustunda og mannfagnaðar, allan ársins hring. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur áherslu á að tryggja þurfi nægilegt rými fyrir skólastarf í grunnskólanum til framtíðar.
4.
Undirbúningstímar og stytting vinnuviku í leikskólum
Farið var yfir tilgang og markmið kjarasamninga með styttingu vinnuvikunnar og kynnt sú undirbúningsvinna sem farið hefur fram meðal starfsfólks í leikskólanum Sjónarhóli.
5.
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagins
Reglur og gjaldskrá um útleigu á húsnæði í eigu sveitarfélagsins lagðar fram. Nefndin gerir ekki athugasemdir við þær.
6.
Skólaþjónusta sveitarfélaga
Háskólinn á Akureyri hefur sent frá sér tvær skýrslur sem eru hluti af rannsókn um umgjörð og starfshætti skólaþjónustu sveitarfélaga. Markmið rannsóknarinnar er að gefa heildarmynd af umgjörð og starfsháttum þjónustunnar og því hvernig sveitarfélög standa að því að tryggja skólum sínum þann aðgang að skólaþjónustu sem þeim bersamkvæmt lögum.
Kynnt var samantekt og ályktanir í skýrslunum. Niðurstöðurnar munu nýtast sveitarfélögum til að styrkja skólaþjónustu sína með það fyrir augum að efla skóla sem faglegar stofnanir, beina athygli að menntun fyrir alla og jafnræði til náms á landsvísu. Málinu vísað til umræðu í skólunum. Fræðslu- og tómstundanefnd óskar eftir ábendingum og tillögum frá starfsfólki um úrbætur á skólaþjónustu sveitarfélagsins.
7.
Hönnun viðbyggingar V/sundlaug/líkamsrækt
Frumdrög að hugmyndavinnu um hönnun líkamsræktarstöðvar lögð fram til kynningar og umræðu. Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar því að undirbúningsvinna um byggingu fyrir líkamsrækt sé hafin.
8.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 56
Formaður Ungmennaráðs Ingunn Ósk Grétarsdóttir fór yfir fundargerð 56. fundar ráðsins. Ingunn er nýr áheyrnarfulltrúi á fundum fræðslu- og tómstundanefndar og Alexandra Hernandez er varamaður hennar. Fræðslu- og tómstundanefnd býður þær velkomnar til þátttöku á fundum nefndarinnar. Fundagerðin samþykkt.
9.
Heilsueflandi samfélag 2020
Tvær fundargerðir lýðheilsuráðs lagðar fram. Lýðheilsuráð er samráðshópur um starf Heilsueflandi samfélags, hlutverk ráðsins er að fjalla um forvarnir á breiðum grunni ásamt aðgerðum til að stuðla að bættri almennri heilsu íbúa.
10.
Barnvænt sveitarfélag: Innleiðing barnasáttmála SÞ
Fræðslustjóri fór yfir starf stýrihóps um Barnvænt sveitarfélag til þessa. Stýrihópurinn er staddur á 2. skrefi innleiðingarferlisins. Verið er að afla gagna um líðan, lífsskilyrði og réttindi barna svo hægt sé að búa til mælikvarða á velferð og réttindi barna í sveitarfélaginu.
11.
Mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum
Þingsályktunartillaga um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum, 81. mál frá nefndarsviði Alþingis sent til umsagnar
Fræðslu- og tómstundanefnd styður þá hvatningu sem fram kemur í þingsályktunartillögunni og hvetur til þess að mennta- og menningarmálaráðherra, í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, móti heildstæða stefnu um faglegan og fjárhagslegan stuðning við afreksfólk í íþróttum.