Fræðslu- og tómstundanefnd
74. fundur
16. desember 2020
kl.
16:15
-
18:00
Teams Meating
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Starfsemi Þrykkjunnar í Covid 19
Þórdís fór yfir starfsemi Þrykkjunnar það sem af er hausti m.a. hefur verið haldið úti rafrænni Þrykkju í 8.-10.bekk ásamt því að hafa húsið opið. Yfir 10 krakkar eru í Dungeons og Dragons klúbb og fjórir hópar hafa skráð sig til þátttöku í Stíl eftir áramót.
2.
Skipulag skólamála í Öræfum
Kostnaðarmat þeirra þriggja sviðsmynda sem skoðaðar hafa verið leiða í ljós að enginn fjárhagslegur ávinningur er af því að breyta rekstri leik- og grunnskólans í Hofgarði. Fræðslu- og tómstundanefnd telur því ekki ástæðu til breytinga á rekstrinum. Nefndin hvetur leik- og grunnskóla sveitarfélagsins til aukins faglegs samstarfs til gagns fyrir bæði kennara og nemendur. Nefndin telur einnig mikilvægt að skapa aðstæður fyrir félagsleg samskipti t.d. mætti nýta ferðir til að bjóða nemendum í Hofgarði að taka þátt í dagskrá skólanna á Höfn og í íþróttastarfi á vegum Umf. Sindra. Nemendur í GH fara í fastar ferðir í Hofgarð, gista og vinna verkefni í Skaftafelli ásamt nemendum í Hofgarði.
3.
Hofgarður: Endurbætur
Fræðslu- og tómstundanefnd hefur kynnt sér tillögur að endurbótum og breytingum húsnæðisins í Hofgarði. Nefndin telur brýnt fyrir skólastarfið þar, að framkvæmdir við að opna milli leik- og grunnskólans hefjist eins fljótt í vor og hægt er svo þeim verði lokið er skólastarf hefst á ný næsta haust. Með opnuninni verður hægt að hagræða í starfseminni þar sem auðvelt verður að samnýta starfsfólk og húsnæði og efla samfellu í námi milli skólastiga. Nefndin áætlar að fara í vettvangsferð í Hofgarð í byrjun næsta árs til að átta sig betur á aðstæðum og hvernig breytingum verði best við komið.
4.
Rekstrarupplýsingar; samrekinn leik- og grunnskóli
Upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um rekstur samrekinna leik- og grunnskóla lagðar fram til kynningar.
5.
Rekstrarupplýsingar um rekstur grunnskóla
Upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um rekstur grunnskóla lagðar fram til kynningar.
6.
Rekstrarupplýsingar um rekstur leikskóla
Upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um rekstur leikskóla lagðar fram til kynningar.
7.
Skólaþjónusta; markmið og hlutverk
Greining á framkvæmd skólaþjónustu sveitarfélagsins lögð fram til kynningar.
8.
Aðgerðir til eflingar leikskóla
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að aðgerðir til að hækka menntunarstig í leikskólum verði framlengdar út júlí á næsta ári. Áætlað er að tillögur um stuðning við menntun starfsmanna sveitarfélagsins verði lagðar fyrir nefndina í ágúst 2021.
9.
Covid-19 viðvörunarkerfi fyrir skóla- og frístundastarf
Viðvörunarkerfi fyrir skóla- og frístundastarf snertir alla nemendur, kennara, starfsfólk og foreldra barna og ungmenna á öllum skólastigum, alls um 120 þúsund manns. Í því má finna yfirlit yfir útfærslur og áhrif sóttvarnaráðstafana á mismunandi skólastigum og hversu langan fyrirvara má gera ráð fyrir vegna breytinga á þeim. sjá nánar https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=9f6e4a1e-388d-11eb-8129-005056bc8c60
Viðvörunarkerfið sem er litakóðakerfi lagt fram til kynningar.
10.
Nýheimar Þekkingarsetur viðurkenndur fræðsluaðili
Fundargerð af 118. stjórnarfundi Nýheima þekkingarseturs og erindi frá stjórn setursins um ævimenntun lagt fram.
Í erindinu er kynnt sú ákvörðun stjórnar NÞ að sækja um til mennta- og menningarmálaráðuneytisins að setrið verði viðurkenndur fræðsluaðili. Markmiðið er að Nýheimar leiði verkefni um ævimenntun á Suðausturlandi. Þar með yrði setrið hluti af framhaldsfræðslukerfinu og gæti betur með samhæfingu og samstarfi um verkefni í stuttum námskeiðum, framhaldsfræðslu, framhaldsskóla og háskóla stuðlað að öflugri menntun íbúa eftir að grunnskóla lýkur. Fræðslu- og tómstundanefnd styður hugmyndina og telur að ef hún yrði að veruleika myndi það auka fjölbreytni tækifæra til náms.
11.
Heimsmarkmið og stefnumótun 2019
Heimsmarkmiðin lögð fram til umfjöllunar í nefndum sveitarfélagsins.
Uppfærðar upplýsingar um stefnumótun með heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna lagðar fram til umræðu. Nefndarmenn eru hvattir til að taka þátt í íbúafundi um stefnumótunina á Teams sem haldinn verður kl. 16:30 á morgun 17.12.
12.
9 aðgerðir til að setja geðheilsu í forgang
Bæjarráð vísaði málinu til nefndarinnar
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að unnin verði heildarúttekt á umfangi og framkvæmd geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Nefndin hvetur ennfremur til þess að markvisst forvarnarstarf og þjónusta í geðheilbrigðismálum verði stórefld.
13.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 57
Fundargerð 57. fundar Ungmennaráðs lögð fram. Ingunn fór yfir mál sem ráðið ræddi á fundi með bæjarráði.