Fræðslu- og tómstundanefnd
75. fundur
20. janúar 2021
kl.
16:15
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Hofgarður: Endurbætur
Bæjarstjórn hefur samþykkt að opna milli leik- og grunnskólarýma í Hofgarði svo innangengt verði milli skólastiga. Fræðslu- og tómstundanefnd ásamt formanni bæjarráðs fóru í vettvangsferð í Hofgarð til að skoða aðstæður og áhrif fyrirhugaðra framkvæmda á innra skipulag hússins.
Fyrir liggur tillaga að breytingum í Hofgarði til að opna milli skólastiga. Fundað var með skólastjóra og kennara um tillöguna og fram komu fleiri hugmyndir að þessari tengingu. Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra í samráði við umsjónarmann fasteigna að skoða þær hugmyndir og útfærslu með arkitektinum og að leggja endurskoðaðar teikningar fyrir nefndina á næsta fundi.
2.
Starfsemi leikskóla milli jóla og nýárs
Foreldrum var gefinn kostur á því að fá gjald fyrir ákveðna daga yfir jólahátíðina dregna frá leikskólagjöldum ef þeir tilkynntu fyrirfram að börnin þeirra myndu ekki mæta í leikskólann þá daga.
í yfirliti kom fram að dagana 28.-30.des. mættu 6-8 börn í leikskólann. Fram kom að foreldrar voru almennt ánægðir með þetta fyrirkomulag en nefndin leggur til að framkvæmdin verði endurskoðuð fyrir næstu jól.
3.
Ytra mat leikskóla
Vinna matsmanna Menntamálastofnunar vegna ytra mats á starfsemi leikskólans Sjónarhóli hófst mánudaginn 18. janúar s.l. og stendur fram á föstudag.
Maríanna sagði frá skipulagi framkvæmdar á ytra mati Menntamálastofnunar á starfsemi leikskólans Sjónarhóls.
4.
Samningur um stafræna smiðju
Samningur milli sveitarfélagsins, atvinnu-og nýsköpunarráðuneytisins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins um Fab Lab smiðju á Höfn lagður fram til kynningar.
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar samningnum og styður þá sýn forstöðumanns Vöruhúss að fjármagnið sem samningnum fylgir verði nýtt til að efla fjölbreytni nýsköpunarverkefna og til að halda í við öra þróun í hug- og tæknibúnaði Fab Lab smiðja.
5.
Sindrabær - ósk um aðkomu að breytingum
Aðstandendur hópsins Kaffimik sem sendi erindið hafa m.a. áhuga á að auka samvinnu og samskipti þeirra sem vinna að menningu í sveitarfélaginu. Fram kom í máli Jóhanns Morávek að hans sýn er sú að Sindrabær sé fyrst og fremst tónlistarhús en hann er opinn fyrir samtali um breytingar sem trufla ekki nýtingu á Sindrabæ til tónlistarstarfsemi. Hann lýsir áhyggjum af því að ef gerðar verða verulegar breytingar á þeirri hönnun sem kynnt hefur verið, þá muni það seinka framkvæmdum sem nú þegar hafa staðið yfir allt of lengi. Jóhann bendir á að með auknu umfangi í starfsemi þurfi aukinn tíma í utanumhald og skipulag tíma í húsinu. Bæjarráð hefur boðað til opins Teamsfundar á morgun, 21. jan., um hönnun endurbóta í Sindrabæ og eru áhugasamir hvattir til að taka þátt í fundinum.
6.
Skólaþjónusta; markmið og hlutverk
Fram kom að skólastjórnendur eru sammála um að skólaþjónustan beinist hér eins og víða annars staðar fyrst og fremst að þörfum einstakra nemenda og ráðgjöf við þá, foreldra og kennara. Þróun kennsluhátta og almenn starfsþróun kennara skóla sveitarfélagsins er fyrst og fremst í höndum skólanna sjálfra. Fræðslu- og tómstundanefnd felur skólastjórum og fræðslustjóra að skoða hvernig skólaþjónustan getur betur komið að stuðningi við þróun kennsluhátta í anda menntunar fyrir alla.
7.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 58
58. fundargerð Ungmennaráðs lögð fram. Fræðslu- og tómstundanefnd mun funda með Ungmennaráði á næstunni. Ungmennaráð sendir fundarboð.
8.
Lýðheilsuráð 2019-2020
Lýðheilsuráð er tómstundafulltrúa og verkefnastjóra um heilsueflandi samfélag til ráðgjafar um verkefni sem viðkoma forvörnum og styður við andlegt og líkamlegt heilbrigði íbúa
Fundargerðir Lýðheilsuráðs lagðar fram til kynningar. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju sinni yfir fræðsluáætlun vorsins og hvetur fólk til þess að nýta sér þá fræðslu sem áætlunin boðar.
9.
Reglur um tómstundastyrk
Reglur um tómstundastyrk og samningur við einstaklinga og félagasamtök um aðild að tómstundastyrk lagt fram til kynningar. Fræðslu- og tómstundanefnd óskar eftir upplýsingum um nýtingu á tómstundastyrk fyrir árið 2020. Nefndin mun endurskoða reglurnar með það að markmiði að skýra þær betur á næsta fundi.
10.
Styrkir fræðslu- og tómstundanefndar
Umsóknir bárust frá fimm aðilum og voru fjórar umsóknir gildar. Samtals hljóðuðu umsóknirnar upp á kr.1.470.000- en nefndin hefur kr. 500.000- til úthlutunar. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmanni að tilkynna styrkþegum úthlutun nefndarinnar.
11.
Vallarklukka á íþróttahús
Ungmennafélagð Sindri óskar eftir að fá að setja upp stafræna vallarklukku á ytri enda íþróttahússins.
Erindið lagt fram til kynningar ásamt bókun bæjarráðs frá 19. janúar sl. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur undir bókun bæjarráðs.
12.
Framlög til verkefna á sviði almenningssamgangna
Sveitarfélagið hefur fengið styrk til þess að útfæra tilraunaverkefni um að samþætta almenningssamgöngur við frístundaakstur.
Samningur um samþættingu frístundaaksturs og almenningssamgangna lagður fram til umræðu. Íbúum verður boðið upp á að nýta sér frístundaaksturinn, þeim að kostnaðarlausu, báðar leiðir í Suðursveit, á Mýrar og í Nes samkvæmt tímatöflu. Bréf um upplýsingar til íbúa lagt fram til kynningar, https://www.hornafjordur.is/stjornsysla/sveitarfelagid/frettasafn. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur íbúa til að kynna og nýta sér þessa þjónustu.
13.
Áskorun til sveitarfélaga
Áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum. Samtök grænkera á Íslandi sendu á dögunum áskorun til allra leik- og grunnskóla landsins. Í henni eru skólarnir hvattir til að bjóða oftar eða að lágmarki einu sinni í viku upp á grænkerafæði fyrir alla nemendur sína til að minnka kolefnisspor sitt. Í kjölfar áskorunarinnar er skorað ásveitarfélögin að setja skýr markmið varðandi aukið framboð grænkerafæðis í skólum.
Fræðslu- og tómstundanefnd tekur undir ábendingar Samtaka grænkera á Íslandi um að auka framboð til skólabarna á grænmeti og grænmetisréttum og auka þannig fjölbreytni fæðu í skólum. Matráðar skólanna eru hvattir til að rýna í matseðla með þetta sjónarmið í huga.
14.
Tillögur Velferðarvaktarinnar - mótvægisaðgerðir vegna COVID-19
Þann 1. desember sl. samþykkti Velferðarvaktin að beina því til stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, að hafa 14 áherslupunkta að leiðarljósi í þeim mótvægisaðgerðum sem framundan eru vegna Covid-19.
Tillögurnar lagðar fram til kynningar.