Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

76. fundur
17. febrúar 2021 kl. 16:15 - 18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Reglur um tómstundastyrk
Málsnúmer 202101079
Reglur um tómstundastyrk og samningar um aðild að tómstundastyrkjakerfi sveitarfélagsins frá 2015 endurskoðaðar.
Hlutfall barna í árgangi sem hafa nýtt sér tómstundastyrk síðustu ár er misjafn eða frá rúmum 60% árin 2017 og 2020 upp í 81% 2019. Rætt var um leiðir til að ná til fleiri barna samhliða endurskoðun á reglum um tómstundastyrk og ákvæðum í samningi um aðild einstaklinga, félaga og fyrirtækja að tómstundakerfi sveitarfélagsins. Lagt er til að breyta hugtakanotkun úr tómstundum í frístundir og breyta starfsheiti tómstundafulltrúa í frístundafulltrúa. Reglur og samningur samþykktur með fyrirliggjandi breytingum og vísað til afgreiðslu í bæjarráði.
2.
Framlenging sundkorta vegna Covid 19
Málsnúmer 202102042
Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar hefur mótað reglur um framlengingu á árskortum vegna lokunar sundlaugar í Covid 19 faraldrinum. Reglurnar lagðar fram til kynningar og forstöðumaður hvattur til að kynna þær vel fyrir íbúum á fleiri tungumálum en íslensku.
3.
Erindi frá Tónskólanum
Málsnúmer 202102052
Erindi frá skólastjóra Tónskólans um að nemendur í framhaldsskóla á aldrinum 19 - 21 árs fái afslátt af fullorðinsgjaldi, eins og var áður en innheimta skólagjalda færðist yfir í Nora kerfið.
Hægt er að nýta tómstundakort til niðurgreiðslu skólagjalda í Tónskólanum út árið sem börn verða 18 ára. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að erindið verði samþykkt og vísar því til bæjarráðs.
4.
Erindi frá starfsfólki Leikskólans Sjónarhóls
Málsnúmer 202102051
Fræðslu- og tómstundanefnd fór yfir erindið og felur fræðslustjóra og formanni nefndarinnar að svara því.
5.
Hofgarður; Starfsmannamál
Málsnúmer 202101075
Fram kom að Brynja Kristjánsdóttir skólastjóri leik- og grunnskólans í Hofgarði mun láta af störfum í sumar. Ráðningarsamningar starfsfólks leikskólans renna út 31. júlí. Auglýsa þarf því eftir skólastjóra og a.m.k. tveimur leikskólakennurum til starfa við skólann frá ágúst n.k.
6.
Gátlistar um ábyrgð og skyldur skólanefnda
Málsnúmer 202102053
Farið var yfir gátlistana og starfsmanni falið fylgja málinu eftir og skila áætlun um úrbætur á fundi í maí n.k.
7.
Fjölmenningarteymi - fundagerðir
Málsnúmer 202011014
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur bæjarráð til að samþykkja verklagsreglur um túlka- og þýðingarþjónustu í stað stefnu og reglna frá 2019. Nefndin tekur einnig undir tillögu velferðarnefndar um að stofnað verði fjölmenningarráð og unnin mannréttindastefna fyrir sveitarfélagið.
8.
Ársskýrsla um ytra mat grunnskóla 2020
Málsnúmer 202102032
Skýrslan lögð fram til kynningar.
9.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 58
Málsnúmer 2102007F
Ingunn Ósk Grétarsdóttir fór yfir fundargerð ráðsins. Rætt var um orkudrykkjakönnunina og fyrirætlanir sveitarfélagsins um sumarstörf næsta sumar. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur stjórnvöld til þess að bjóða aftur upp á úrræði til að fjölga sumarstörfum fyrir ungmenni líkt og var síðasta sumar.