Fræðslu- og tómstundanefnd
77. fundur
17. mars 2021
kl.
16:15
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Steinþór Jóhannsson
2. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir
Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Sjónarhóll: Skipulags- og starfsmannamál
Þann 3. mars s.l. funduðu fulltrúar bæjarráðs,fræðslu- og tómstundanefndar ásamt fræðslustjóra, mannauðsstjóra og bæjarstjóara með starfsfólki leikskólans Sjónarhóls. Á fundinum var farið yfir ýmis mál til að bæta starfsaðstæður í leikskólanum.
Fundargerð frá fundi 3. mars s.l. lögð fram til umræðu. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur áherslu á að eftirfarandi komi fram: 1) Leikskólastjóri hefur heimild til að skipuleggja frí starfsmanna milli jóla og nýars eins og verið hefur. 2)Samstarfsnefnd sem er að störfum í skólanum mótar tillögur um fundartíma nefndarinnar og tillögur um heilsueflingu starfsmanna. 3) Leikskólastjóri er að taka starfsmannasamtöl við alla starfsmenn skólans, hún vinnur greiningu á niðurstöðum samtalanna um starfsaðstæður og í framhaldinu verður gerð áætlun um úrbætur í samstarfi við samstarfsnefndina.
2.
Sjónarhóll - skóladagatal 2021-2022
Skóladagatal leikskólans Sjónarhóls lagt fram og það samþykkt.
3.
Hofgarður - Skóladagatal 2021-2022
Skóladagatöl leik- og grunnskóla í Hofgarði lögð fram og þau samþykkt.
4.
Hofgarður Hönnun Endurbætur
Fyrir liggur tillaga að breytingum í Hofgarði til að opna milli skólastiga. Fundað var með skólastjóra og kennara um tillöguna og fram komu fleiri hugmyndir að þessari tengingu. Fræðslu- og tómstundanefnd felur fræðslustjóra í samráði við umsjónarmann fasteigna að skoða þær hugmyndir og útfærslu með arkitektinum og að leggja endurskoðaðar teikningar fyrir nefndina á næsta fundi.
Arkitekt hefur brugðist við hugmyndum starfsfólks um breytingar. Breyttar teikningar hafa verið kynntar fyrir starfsfólki sem er sátt við þær. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir þær einnig fyrir sitt leiti.
5.
Hönnun viðbyggingar V/sundlaug/líkamsrækt
Áframhaldandi umræða um húsnæði fyrir almenna heilsueflingu og líkamsrækt í sveitarfélaginu. Farið var yfir hvað við höfum og horft til framtíðar um hvaða þörfum þarf að mæta. Nefndin hvetur til þess að unnið verði markvisst að málinu.
6.
Erindi frá Umf. Sindra, frjálsíþróttamót
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur farið þess á leit við Ungmennafélagið Sindra að það haldi Íslandsmeistaramót 11-14 ára, dagana 19-20 júní, næstkomandi vegna þess að annar skipuleggjandi heltist úr lestinni. Ungmennafélagið Sindri vill kanna hug Sveitarfélagsins til þessa viðburðar.
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur Umf. Sindra til að halda mótið og vera í samstarfi við forstöðumann Íþróttamiðstöðvar um framkvæmdina.
7.
Grunnskóli Hornafjarðar - Skóladagatal 2021-2022
Skóladagatal GH lagt fram og það samþykkt.
8.
Skólavogin - foreldrakönnun í GH
Farið var yfir niðurstöður foreldrakönnunar s.l. þrjú ár. Ákveðið að fræðslu- og tómstundanefnd og skólaráð grunnskólans haldi sameiginlegan foreldrafund um málefni skólans. Stefnt á að halda fundinn þriðjudaginn 13. apríl n.k.
9.
Skólavogin - Nemendakönnun í 6.-10. bekk GH
Farið var yfir nemendakönnun í 6.-10. bekk sem almennt kemur vel út.
10.
Skólamáltíðir
Á fundi skólaráðs Grunnskóla Hornafjarðar þann 5. mars s.l. var fjallað um skólamáltíðir þar var því m.a. velt upp að hugmyndir um mataræði hafi breyst mikið á síðustu árum og spurning hvort ekkisé eðlilegt að bjóða upp á meira grænmetisfæði í skólum sveitarfélagsins. Málinu var vísað til umræðu í fræðslu- og tómstundanefnd.
Áherslan í skólafæði ætti að vera að maturinn sé eins hreinn og unnt er hvort sem um er að ræða rétti úr dýra- eða jurtaríki. Ákveðið að taka fæði í skólum til umræðu á fyrirhuguðum fundi með foreldrum í apríl.
11.
Áskorun um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir
Bændasamtök Íslands skora á þitt sveitarfélag að nýta innlend matvæli eins og kostur er, sérstaklega grænmeti, kjöt og fisk.
Áskorun frá bændasamtökum Íslands lögð fram til kynningar.
12.
Samræmd próf
Annmarkar voru á rafrænni fyrirlögn prófs í íslensku hinn 8. mars.Að vel athuguðu máli telur Menntamálastofnun ekki öruggt að rafræn fyrirlögn prófanna muni ganga snurðulaust fyrir sig, enda hafi þjónustuaðili prófakerfisins ekki brugðist við aðstæðum með fullnægjandi hætti. Því hefur Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að aflýsa hefðbundnum samræmdum prófum í ensku og stærðfræði, sem ráðgert var að leggja rafrænt fyrir nemendur í 9. bekk. Þessi ákvörðun byggir fyrst og fremst á hagsmunum nemenda og sjónarmiðum skólasamfélagsins.
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar ákvörðun mennta- og menningarmálaráðherra um að aflýsa samræmdum prófum í kjölfar óviðunandi rafrænnar fyrirlagnar 8. mars s.l. Nefndin tekur undir álit ráðherrans um að "núverandi fyrirkomulag samræmdra prófa sé komið á endastöð". Nefndin væntir góðs af fyrirhugaðri vinnu um þróun heildstæðra matstækja sem áætlað er að komi í stað hefðbundinna samræmdra könnunarprófa í framtíðinni.
13.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 59
Fundargerð 59. fundar Ungmennaráðs lögð fram.
14.
Ósk um samstarf við Landsmót unglingadeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
Málið var fyrst tekið fyrir í bæjarráði í 3. mars 2020 og tók ráðið jákvætt í erindið.
Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að sveitarfélagið komi til móts við óskir Björgunarfélags Hornafjarðar vegna landsmóts unglingadeilda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Höfn 9. - 13. júní n.k. Nefndin felur forstöðumanni Íþróttamiðstöðvar að vera í samstarfi við félagið vegna óska sem snúa að nýtingu íþróttamannvirkja.