Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

78. fundur
21. apríl 2021 kl. 16:15 - 18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Claudia Maria Hildeblom 1. varamaður
Alexandra Guðrúnardóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Reglur um starfsemi leikskóla
Málsnúmer 202103043
Breytingar á reglum um starfsemi leikskóla lagðar fram og samþykktar. Nefndin samþykkti einnig breytingar á undirbúningsdögum í Leikskólanum Lambhaga og nýtt skóladagatal í samræmi við þær.
2.
Tónskólinn - skóladagatal 2021-2022
Málsnúmer 202103045
Skóladagatal Tónskóla Austur Skaftafellssýslu lagt fram og samþykkt.
3.
Grunnskóli Hornafjarðar - Starfsmannakönnun
Málsnúmer 202104046
Slóð á könnunina á vefsíðu Grunnskóla Hornafjarðar https://gs.hornafjordur.is/stefna-og-aaetlun/sjalfsmat/innra-mat/
Niðurstöður starfsmannakönnunar Grunnskóla Hornafjarðar lagðar fram til kynningar. Könnunin kemur í heildina vel út.
4.
Hofgarður - umsóknir 2021
Málsnúmer 202104064
Fræðslustjóri fór yfir umsóknir sem bárust um störf í samreknum leik- og grunnskóla í Hofgarði. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að Hafdís Sigrún Roysdóttir verði ráðin í starf skólastjóra. Stjórnendum falið að ganga frá ráðningum annars starfsfólks.
5.
Björgunarfélag - Ársskýrsla 2020
Málsnúmer 202103113
Í ársskýrslunni kemur m.a. fram að Unglingadeildin Brandur hittist þrisvar í mánuði fyrir Covid en eftir að faraldurinn komst á strik var gert hlé á starfinu þar til í janúar s.l. Hafinn er undirbúningur að því að halda Landsmót unglingadeilda á Höfn nú í byrjun sumars en kannski ólíklegt að af því geti orðið.
6.
Golfklúbbur Hornafjarðar - ársskýrsla 2020
Málsnúmer 202104045
Í ársskýrslunni kom m.a. fram að Golfklúbburinn hélt tvö vikunámskeið fyrir börn og unglinga s.l. sumar og að þau þurfa ekki að greiða fyrir aðgang að vellinum. Jafnt og þétt hefur fjölgað í klúbbnum og eru meðlimir nú um 130 talsins. Unnið er að breytingum á gólfskálanum og á komandi sumri er gert ráð fyrir að bjóða upp á golfnámskeið fyrir börn og unglinga.
7.
Umf. Sindri - Ársskýrslur 2020
Málsnúmer 202104043
Lárus Páll Pálsson framkvæmdastjóri UMf. Sindra fór yfir árangur af íþróttastarfi félagsins á síðasta ári. Í máli hans kom m.a. fram að fjöldi iðkenda er rúmlega 420 manns, verið er að reyna nýjar leiðir í þjálfun, efla áhuga, félagslega samveru og félagsþroska. Nánast 90% grunnskólanemenda í 8. - 10. bekk stunda einhverjar íþróttir en um 80% grunnskólanemenda í heild. Félagið leggur mikla áherslu á menntun þjálfara t.d. með því að styrkja þá til náms hjá sérsamböndunum. Covid 19 faraldurinn hefur haft áhrif á alla íþróttastarfsemi og finna þjálfarar fyrir dofnandi áhuga eftir því sem oftar er lokað á æfingar. Þjálfarar eru að virkja iðkendur með að setja upp og fylgja eftir æfingum á netinu. Góð reynsla er af sunnudagsopnun íþróttahússins, hún hefur leitt til aukinnar aðsóknar almennings að íþróttaiðkun.
8.
Menntastefna fyrir Ísland til 2030
Málsnúmer 202104044
Alþingi samþykkti 26. mars, þingsályktun um menntastefnu fyrir Ísland til ársins 2030. Skv. Lilju Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra tekur stefnan mið af því hvernig menntun styrkir, verndar og vekur viðnámsþrótt einstaklinga og samfélaga. Markmiðið er að veita framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem allir geta lært og allir skipta máli. Helstu gildi menntastefnunnar eru þrautseigja, hugrekki, þekking og hamingja.
Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju sinni með þær áherslur sem fram koma í nýrri menntastefnu mennta- og menningarmálaráðherra um að móta framúrskarandi menntakerfi þar sem allir hafi jöfn tækifæri til náms. En nefndin leggur áherslu á að afar mikilvægt er að skólafólk hafi stuðning til að innleiða stefnuna og að það sé gert eftir tímaáætlun í viðráðanlegum skrefum. Einnig er mikilvægt kennaramenntun fylgi eftir þeim hröðu þjóðfélagsbreytingum sem orðið hafa, og framundan eru, þannig að kennarar útskrifist vel undirbúnir með hugmyndir, færni og verkfæri til að mennta nemedur á skapandi hátt til þeirrar óráðnu framtíðar sem bíður þeirra.
9.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 61
Málsnúmer 2104004F
61. fundargerð Ungmennaráðs lögð fram. Ákveðið er að fræðslu- og tómstundanefnd fundi með ungmennaráði í félagsmiðstöðinni Þrykkjunni þann 19. maí n.k.
10.
Túlka- og þýðingarþjónusta 2021
Málsnúmer 202101106
Uppfærðar reglur um túlka- og þýðingarþjónustu lagðar fram til kynningar.
11.
Reglur um foreldragreiðslur
Málsnúmer 201901033
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til breytingar á foreldragreiðslum og að þær verði ótímabundnar. Málinu vísað til staðfestingar bæjarráðs.
12.
Eurodyce- Steita og brottfalla kennara
Málsnúmer 202103124
Í nýútkominni skýrslu Eurydice um Kennara í Evrópu eru teknar saman upplýsingar úr ýmsum áttum um skólakerfi 38 Evrópulanda.Þær áskoranir sem kennarar standa frammi fyrir í Evrópu eru að mörgu leyti keimlíkar í ólíkum löndum.
Í skýrslunni kemur m.a. fram að Ísland er í hópi 10 landa þar sem brottfall úr kennarastétt er hvað mest og streita í starfi mælist fyrir ofan meðaltal í Evrópu. Hér á landi er gert ráð fyrir fleiri tímum til starfsþróunar en í flestum samanburðarlöndunum. Ísland er einnig eitt þeirra landa þar sem gert er ráð fyrir að kennarar geti tekið tiltölulega löng leyfi frá kennslu til starfsþróunar að uppfylltum vissum skilyrðum. Ólíkt mörgum ríkjum, hefur íslensk kennarastétt ekki þurft að glíma við lítið starfsöryggi.