Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

79. fundur
19. maí 2021 kl. 16:15 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Ragnhildur Jónsdóttir Fræðslustjóri
Dagskrá
1.
Grunnskólinn í Hofgarði: Ytra mat
Málsnúmer 202003051
Umbótaáætlun í framhaldi af ytra mati Menntamálastofnunar lögð fram. Formaður notaði tækifærið og bauð Hafdísi Roysdóttur velkomna í starf skólastjóra og þakkaði Brynju Kristjánsdóttur fráfarandi skólastjóra fyrir vel unnin störf.
2.
Sumarfrístund 2021
Málsnúmer 202105049
Herdís fór yfir það framboð sumarfrístunda sem komið er á hennar borð og kynnti námskeið um Skapandi sumar sem Erla Ösp Hafþórsdóttir mun bjóða ungmennum upp á í sumar. Áætlað er að birta framboðið á netinu í lok maí. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur börn og ungmenni til að nýta sér það fjölbreytta framboð sem í boði verður. Nefndin leggur áherslu á að bæklingurinn verði á fleiri tungumálum en íslensku.
3.
Ungt fólk 2021 - áskoranir og tækifæri
Málsnúmer 202105047
Herdís fór yfir niðurstöður könnunar Rannsókna og greiningar um hagi og líðan ungs fólks í 8.-10. bekk. Neysla tóbaks, áfengis og annarra fíkniefna hefur dregist saman en notkun nikótínpúða hefur hins vegar aukist. Alvarlegar vísbendingar koma fram um það að verið sé að sækja í ungmenni hér sem annars staðar og fá þau til að senda nektarmyndir af sér gegn greiðslu af ýmsu tagi. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur foreldra til að vera sérstaklega á verði varðandi þetta og hvetur þá einnig til þess að kynna sér upplýsingar á Youtube frá R&G um umfang kynferðislegra myndsendinga meðal barna á slóðinni https://www.youtube.com/watch?v=5fjQblBYNpE
4.
Leikskólinn Sjónarhóll: Ytra mat 2021
Málsnúmer 202010160
Skýrsla Menntamálastofnunar lögð fram til kynningar en í henni koma fram styrkleikar skólastarfsins og tækifæri til umbóta. Starfsmönnum falið að leggja fram umbótaáætlun á fundi nefndarinnar í júní.
5.
Leikskólinn Sjónarhóll - skólanámskrá
Málsnúmer 202105054
Drög að skólanámskrá Sjónarhóls og fylgiskjöl lögð fram til kynningar og umræðu. Drögin lofa góðu, búið er að koma nær öllum upplýsingum inn í námskrána á skýran og aðgengilegan hátt en aðeins á eftir að fínpússa. Deildarnámskrár eru í vinnslu og stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu fyrir sumarfrí svo starfið næsta skólaár geti strax tekið mið af þeim. Starfsmönnum falið að leggja endanlega útgáfu af námskránni fyrir fund nefndarinnar í júní.
6.
Efling leikskólastigsins
Málsnúmer 202105048
Yfirvöld menntamála, Samband íslenskra sveitarfélaga, Félag leikskólakennara o.fl. hafa um árabil hvatt til þess að sveitarfélög bjóði starfsfólki upp á sérstakan stuðning til þess að mennta sig til leikskólakennara. Í lögum nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla segir í 14. gr. m.a. ... „Að lágmarki 2/3 hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda leikskólakennara https://www.althingi.is/altext/stjt/2019.095.html
Fram kom að í leikskólanum Sjónarhóli eru 9 menntaðir leikskólakennarar með B.Ed. próf sem gera 37.5% en til að uppfylla lagaskylduna þyrfti hlutfallið að vera um 67%. Leikskólastjórarnir eru ekki inni í þessari tölu. Einungis leikskólastjórinn er með M.Ed. próf enn sem komið er en þrír starfsmenn eru nú í meistaranámi. Enginn leikskólakennari er starfandi í leikskóladeildinni Lambhaga í Hofgarði. Fram komu ábendingar um breytingar frá fulltrúum starfsmanna og óskaði formaður eftir því að fá þær sendar skriflega. Nefndin tekur þær aftur fyrir á júnífundinum. Fræðslustjóra og leikskólastjóra falið að skoða mönnunarþörf vegna afleysing.
7.
Grunnskóli Hornafjarðar: Ytra mat
Málsnúmer 202003050
Menntamálastofnun kom fram með ábendingar um að skerpa á upplýsingum á heimasíðu um stoðþjónustu grunnskólans og skólaþjónustu sveitarfélagsins ásamt því að ganga úr skugga um að skólareglur séu í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 975/2018 um ábyrgð og skyldur skólasamfélagsins í grunnskólum.
Við skoðun og samanburð á skólareglunum verður ekki annað séð en þær séu í samræmi við ákvæði þess kafla reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins, sem fjalla um skólareglur. Hugmyndir um ítarlegri upplýsingar um stoð- og skólaþjónustu lagðar fram og ræddar. Þórgunnur fór yfir helstu niðurstöður af foreldrafundi sem haldinn var í gær um styrkleika og veikleika, ógnanir og tækifæri í skólastarfi grunnskólans. Nefndin ræddi sérstaklega um framboð og fjölbreytileika skólamáltíða og tækifæri í þróun þar.
8.
Skólavogin - nemendakönnun í 1. - 5. bekk
Málsnúmer 202105055
Nemendakönnun Grunnskóla Hornafjarðar er á heimasíðu skólans á slóðinni: https://gs.hornafjordur.is/media/annad/nidurstodur-1-5-bekkur-2021.pdf
Niðurstöður nemendakönnunar í 1. til 5. bekk eru jákvæðar og gefa m.a. til kynna aukna ánægju af lestri og meiri vellíðan í skólanum.
9.
Ráðning sviðstjóra fræðslu- og frístundasviðs
Málsnúmer 202104131
Kynnt var ákvörðun bæjarráðs frá því í gær um að mæla með ráðningu Þórgunnar Torfadóttur í starf sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs. Nefndin lýsir ánægju með þá ákvörðun ráðsins.
10.
Björgunarsveitin Kári - ársskýrsla
Málsnúmer 202104112
Ársskýrsla Björgunarsveitarinnar Kára í Öræfum lögð fram til kynningar.
11.
Fagráð eineltismála - frumvarp til laga
Málsnúmer 202105080
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla nr. 91/2008 og lögum um framhaldsskóla nr. 92/008 (fagráð eineltismála). https://www.althingi.is/altext/pdf/151/s/1195.pdf
Lagt fram til kynningar.
12.
Frumvarp um breytingu á ýmsum lögum, öflun sakavottorðs
Málsnúmer 202105081
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á málefnasviði mennta- og menningarmála (öflun sakavottorðs) ​https://www.althingi.is/altext/151/s/1194.html151. löggjafarþing 2020?2021.Þingskjal 1194 ? 715. mál.Stjórnarfrumvarp.
Lagt fram til kynningar
13.
Fundur ungmennaráðs og fræðslu- og tómstundanefndar
Málsnúmer 202105056
Ungmennin eru mjög áhugasöm um bætt aðgengi að sálfræðiþjónustu ekki síst fyrir ungmenni yfir 18 ára bæði í FAS og á vinnumarkaði. Rætt var um ábyrgð framhaldsskólans um að útvega nemendum sínum sálfæðiþjónustu. Fram kom hjá Ungmennaráði að þau hafa áhyggjur aukinni ásókn í börn og ungt fólk um að senda af sér nektarmyndir. Þau leggja áherslu á að það þurfi að fræða foreldra ekki síður en börn um hverjar hætturnar eru og hvað gengur á í símum barna sinna. Íris Mist Björnsdóttir benti á að það vanti frístundatilboð fyrir ungmenni sem hafa ekki endilega áhuga á íþróttum, það vanti tilboð um sköpun og listir. Og að íþróttir á vegum íþróttafélaga sé of keppnismiðaðar það þarf líka að vera valkostur að vera í íþróttum og hafa gaman.
14.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 62
Málsnúmer 2105005F
Ingunn Ósk Grétarsdóttir fór yfir fundargerð 62. fundar ungmennaráðs með aðstoð annarra meðlima ráðsins.