Fræðslu- og tómstundanefnd
80. fundur
15. júní 2021
kl.
16:15
-
18:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Ingunn Ósk Grétarsdóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Ragnhildur Jónsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
skólastjóri
Dagskrá
1.
Ársskýrsla forstöðumanns Þrykkjunnar
Skýrsla forstöðumanns lögð fram. Starfsemin gekk vel þrátt fyrir samkomutakmarkanir og almenn jákvæðni í Þrykkjunni og gagnvart henni.
2.
Ársskýrsla Vöruhúss og Fab Lab
Skýrsla forstöðumanns lögð fram. Fram kom að byrjað er að uppfæra tölvu- og tækjabúnað í Fab-Lab smiðjunni og lítur vel út með þá endurnýjun.
Einnig kom fram að forstöðumaður Fab-Lab smiðjunnar er að fara í nám í skapandi greinum næsta haust svo það eru bjartir tímar framundan.
Einnig kom fram að forstöðumaður Fab-Lab smiðjunnar er að fara í nám í skapandi greinum næsta haust svo það eru bjartir tímar framundan.
3.
Ráðning skólastjóra Grunnskól Hornafjarðar
Átta manns sóttu um starf skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar. Fræðslu- og tómstundanefnd mælir með ráðningu Þórdísar Sævarsdóttur í starfið. Fræðslu- og tómstundanefnd þakkar Þórgunni Torfadóttur samstarfið og störf sín við Grunnskóla Hornafjarðar síðustu 30 ár.
4.
Ósk um fjárveitingu til mannaráðningar
Lögð var fram beiðni Grunnskólans um aukafjárveitingu til að ráða stuðningsfulltrúa við skólann. Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að fjárveiting til þessarar mannaráðningar verði samþykkt og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
5.
Ósk um fjárveitingu til spjaldtölvukaupa
Áætlun um spjaldtölvuvæðing grunnskólans lögð fram og rifjuð upp.
Ósk skólastjórnenda um flýtingu spjaldtölvuvæðinu skólans rædd. Fræðslu- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindið og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
6.
Grunnskóli Hornafjarðar: Ytra mat
Framvinduskýrsla til Menntamálastofnunar lögð fram.
Framvinduskýrslunni hefur verið skilað til Menntamálastofnunar. Menntamálastofnun hefur móttekið og farið yfir framkvæmd umbótaáætlunar Grunnskóla Hornafjarðar fram til vors 2021 og lýsir yfir ánægju með markvissa vinnu.
7.
Leikskólinn Sjónarhóll: Ytra mat 2021
Umbótaskýrsla til Menntamálastofnunar lögð fram
Umbótaáætlun vegna ytra mats leikskólans lögð fram til umræðu. Umbótaáætlunin samþykkt.
8.
Leikskólinn Sjónarhóll - skólanámskrá
Skólanámskrá leikskólans Sjónarhóls lögð fram til kynningar og umræðu ásamt fylgigögnum. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir ánægju sinni með vel unnið verk og samþykkir skólanámskrána.
9.
Efling leikskólastigsins
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur í gegnum tíðina hvatt sveitarfélög til fjölga menntuðum leikskólakennurum með sérstökum aðerðum.
Tillögur til eflingar leikskólastarfs lagðar fram og samþykktar.
10.
Sjónarhóll - mönnunarþörf vegna afleysinga
Fræðslustjóri fór yfir breytingar á starfsemi leikskólans sem kalla á að nákvæmar sé rýnt í mönnunarþörf. Fræðslu- og tómstundanefnd felur starfsmönnum að ljúka þeirri vinnu.
Fjölgun barna með sérþarfir kallar hins vegar á aukinn stuðning sem þarf að bregðast við. Nefndin leggur til að leikskólastjóri fái að ráða inn stuðning til að sinna þessum þörfum og felur leikskólastjóra að senda inn rökstudda beiðni um það til fræðslustjóra og bæjarráðs.
Fjölgun barna með sérþarfir kallar hins vegar á aukinn stuðning sem þarf að bregðast við. Nefndin leggur til að leikskólastjóri fái að ráða inn stuðning til að sinna þessum þörfum og felur leikskólastjóra að senda inn rökstudda beiðni um það til fræðslustjóra og bæjarráðs.
11.
Akstursáætlun - skólaakstur 2021-2022
Akstursáætlun fyrir skólaakstur í Hofgarð og Grunnskóla Hornafjarðar lögð fram og samþykkt.
12.
Skýrsla tómstundafulltrúa
Ársskýrsla tómstundafulltrúa lögð fram.
Skýrsla tómstundafulltrúa lögð fram. Ungmennaþing verður haldið haustið 2021 en ekki 2022 eins og misritaðist í skýrslunni. Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með framboð á fræðslu og námskeiðum ætluðum foreldrum og forsjáraðilum en hefði viljað sjá fleiri nýta sér fræðsluna.
13.
Ársskýrsla fræðslustjóra
Þessi fundur er síðasti fundur Ragnhildar Jónsdóttur sem fræðslustjóra. Hún bauð tilvonandi sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs Þórgunni Torfadóttur velkomna til starfa í ágúst og þakkaði hún nefndarmönnum fyrir samstarfið síðustu 3 árin.