Fræðslu- og tómstundanefnd
81. fundur
18. ágúst 2021
kl.
16:30
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Steinþór Jóhannsson
2. varamaður
Alexandra Guðrúnardóttir
1. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 63
Fundargerð samþykkt.
2.
Frístundaakstur 2020-21
Síðustu tvö árin hefur verið gerð tilraun með svokallaðan frístundaakstur í sveitir. Nýtingin hefur verið góð, allt að 90%.
Nýtinga frístundaakstur hefur verið góð og því leggur nefndin til að honum verði haldið áfram á meðan svo er. Nefndin lýsir ánægju með hversu vel hefur tekist til.
3.
Starfsáætlun Tónskólans 2021-22
Farið yfir starfsáætlun Tónskólans. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir starfsáætlunina.
4.
Starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar 2021-22
Farið yfir starfsáætlun Grunnskóla Hornafjarðar. Fræðslu og tómstundanefnd samþykkir starfsáætlunina og óskar eftir því að foreldrar verði upplýstir um breytingu á skóladagatali.
5.
Starfsáætlun leik- og grunnskólans í Hofgarði 2021-22
Farið yfir starfsáætlanir leik og grunnskólans í Hofgarði. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir starfsáætlanirnar. Fram kom að breytingar hafa orðið í starfsmannamálum og ekki hefur verið gengið frá öllum ráðningum en unnið er að lausn mála.
6.
Starfsáætlun leikskólans Sjónarhóls 2021-22
Farið yfir starfsáætlun Sjónarhóls. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir starfsáætlunina með breytingum á skipulagsdegi.
7.
Fyrirspurn vegna inntöku barna í Leikskólann Sjónarhól
Málið rætt og upplýst að viðkomandi starfsmenn sveitarfélagsins hafa svarað fyrirspurninni. Rætt um stöðu biðlista og hvernig er unnið úr þeim. Ljóst er að biðlisti er til staðar og fækkun dagmæðra hefur áhrif á þau úrræði sem standa foreldrum til boða. Nefndin telur mikilvægt að halda umræðunni áfram, greina málin og skoða hvaða möguleikar eru í stöðunni.
8.
Reglur um starfsemi leikskóla
Tillaga að breytingum á reglum um starfsemi leikskóla sem snýr að innheimtu leikskólagjalda
Farið yfir þær breytingar sem fyrir liggja, þær samþykktar og þeim vísað til bæjarráðs.