Fræðslu- og tómstundanefnd
82. fundur
15. september 2021
kl.
16:15
-
18:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Claudia Maria Hildeblom
1. varamaður
Alexandra Guðrúnardóttir
1. varamaður
Steinþór Jóhannsson
2. varamaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 64
Fundargerð samþykkt.
2.
Frístund - Kátakot
Út er komið þemahefti um frístundaheimili ætlað til að veita stjórnendum og starfsmönnum þeirra stuðning og vera til upplýsingar fyrir foreldra og almenning.
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar útkomu þemaheftisins sem styður sannarlega við frístundastarf. Þórdís Sævarsdóttir skólastjóri fór lauslega yfir starfið í Kátakoti, frístundaheimili við Grunnskóla Hornafjarðar og svaraði spurningum fundarmanna.
3.
Hönnun viðbyggingar V/sundlaug/líkamsrækt
Björn Imsland umsjónarmaður fasteigna hjá sveitarfélaginu upplýsir um stöðu líkamsræktarstöðvar við sundlaugina.
Verið er að undirbúa hönnun á líkamsræktarstöð. Haldið verður áfram út frá þeim hugmyndum sem fram voru komnar. Tveggja hæða hús við sundlaugina. Fram kom að haldnir verða rýnifundir með fulltrúum hagsmunaaðila til að ná fram hugmyndum sem flestra notenda svo hönnunin og síðan nýting byggingarinnar verði sem best.
4.
Hofgarður framkvæmd - endurbætur
Björn Imsland umsjónarmaður fasteigna hjá sveitarfélaginu upplýsir um stöðu framkvæmda í Hofgarði.
Sveitarfélagið hafnaði tilboði sem kom í framkvæmdir fyrr á árinu. Nú á að reyna aftur og þá með það í huga að framkvæmdir geti farið fram í vetur, á starfstíma skóla. Skólastarfsemin þarf þá tímabundið að færast annað og samhliða er unnið að lausn þess.
Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með það ef hægt er að ráðast í þessar framkvæmdir.
Fræðslu- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með það ef hægt er að ráðast í þessar framkvæmdir.
5.
Biðlisti á leikskóla
Bæjarráð óskaði eftir greiningu á því hversu mörg börn hefðu að jafnaði verið á biðlista síðustu ár og vann starfsmaður minnisblað með þeim upplýsingum. Sú staða kom svo upp í byrjun mánaðarins að eina dagforeldrið í sveitarfélaginu er komið í veikindafrí og þeir foreldrar því í miklum vandræðum.
Rætt var um stöðu biðlista á leiskólanum Sjónarhóli og möguleika á að bregðast við. Velferðarsvið hefur boðið fræðslusviði Selið við Víkurbraut til afnota fram að næsta sumarfríi. Verið er að skoða möguleika á að koma tímabundið upp einni ungbarnadeild í Selinu en einnig var rætt um hvernig hægt væri á varanlegri hátt að fjölga leikskólaplássum og koma þar með til móts við foreldra svo þeir komi börnum sínum á leikskóla þegar fæðingarorlofi lýkur óski þeir þess. Björn Imsland fór yfir hvaða möguleikar væru varðandi Selið og einnig lausnir sem tengdust Sjónarhóli.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til að komið verði upp leikskóladeild í Selinu til bráðabirgða meðan unnið er að framtíðarlausnum á leikskólavistun fyrir öll börn eins árs og eldri. Ljóst er að bæta þarf við starfsmönnum á leikskólann vegna þessa. Gera má ráð fyrir 2-3 starfsmönnum en það fer eftir fjölda barna auk þess sem huga þarf að búnaði á deildina. Fulltrúar leikskólans á fundinum tóku vel í að nota Selið til bráðabirgða en lögðu áherslu á að huga strax að framtíðarlausnum.
Málinu vísað til bæjarráðs.

6.
Reglur um starfsemi leikskóla
Bæjarráð samþykkti breytingar á reglum um starfsemi leikskóla sem lagðar voru fram á síðasta fundi en óskaði eftir fleiri breytingum sem snúa að flutningi lögheimilis.Undanfarin ár hefur leikskólinn átt við mönnunarvanda að stríða og lengra sumarleyfi starfsmanna og stytting vinnuvikunnar hefur ýtt undir hann. Ræða þarf hvort breytingar á reglum um starfsemi leikskólans geti minnkað mönnunarvanda.
Tillaga um breytingu á reglum um starfsemi leikskóla sem bæjarráð lagði til samþykkt.
Ljóst er að með lengingu sumarleyfis hjá starfsmönnum og styttingu vinnuvikunnar þyngjast mönnunarmál á leikskólanum. Rætt var hvort lenging á sumarlokun leikskólans og styttingu leikskóladagsins á t.d. föstudögum gæti minnkað þennan mönnunarvanda. Mikilvægt er að gefa góðan tíma í slíkar umræður og ná almennri sátt hjá hagsmunaaðilum; starfsfólki, foreldrum og atvinnulífinu. Starfsfólk leikskólans hefur umræðuna innan skólans og í framhaldinu af því verður metið hvort farið verður lengra með umræðuna.

7.
Styrking leikskólastigsins - skýrsla starfshóps
Út er komin skýrsla um styrkingu leikskólastigsins en hún var unnin af starfshóp á vegum Mennta og menningarmálaráðuneytisins.
Skýrslan er áhugaverð og styður við þróun leikskólastarfs. Unnið hefur verið að ýmsum þáttum í sveitarfélaginu Hornafirði sem fjallað er um í skýrslunni, öðrum þarf að halda áfram að vinna að og síðan er töluverður hluti þessara þátta á vegum ráðuneytisins eða í samráði ráðuneytis og sveitarfélaga.
8.
Sérfræðiþjónusta á vegum fræðsluskrifstofu - kostnaður og framtíðarstefna
Kostnaður við sérfræðiþjónustu hefur aukist umtalsvert og ljóst að óska þarf eftir auka fjárveitingu til þeirrar þjónustu sem þegar er búið að semja um. Einnig býðst sveitarfélaginu nú að nýta þjónustu iðjuþjálfa sem búsettur er á svæðinu sem myndi auka kostnað en einnig bæta þjónustu.
Fræðslu- og tómstundanefnd leggur til aukningu á fjármagni til sérfræðiþjónustu innan fræðslu- og félagssviðs. Auk þess leggur nefndin til að gengið verði til samninga við iðjuþjálfa. Málinu vísað til bæjarráðs.