Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

83. fundur
21. október 2021 kl. 16:15 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Steinþór Jóhannsson 2. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Claudia Maria Hildeblom 1. varamaður
Alexandra Guðrúnardóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 65
Málsnúmer 2110006F
Fundargerð lögð fram og samþykkt.
2.
Stofnun leikskóladeildar í Selinu
Málsnúmer 202109066
Unnið er að opnun leikskóladeildar fyrir yngstu börnin og miðað við að hún verði opnuð 20. október. Vonir standa til að með þeirri opnun verði hægt að taka inn öll börn fædd árið 2020 og hugsanlega einhver fædd 2021. Eðli málsins samkvæmt verða börn fædd 2021 þó ekki tekin inn fyrr en eftir áramót.
Ánægja er með stofnun Selsins sem deildar við Sjónarhól en ljóst að hún dugar ekki til að koma til móts við þörf á leikskólaplássi enda er hún hugsuð til bráðabirgða.
Í framhaldinu var farið yfir möguleika á viðbyggingu við Sjónarhól til að leysa biðlistavandann til framtíðar. Rætt var um framtíðarbyggðaþróun í sveitarfélaginu og vonir fólks standa til þess að okkur eigi eftir að fjölga. Nefndin telur mikilvægt að þær ráðstafanir sem gripið verði til leysi vandann til langs tíma og að almenn sátt ríki um þær. Það er sennilega hægt að byggja við Sjónarhól en þá þarf að fara í breytingu á deiliskipulagi en slík viðbygging myndi jafnvel skapa fleiri vandamál en hún leysir. Starfsmönnum falið að taka saman kosti og galla viðbyggingar við Sjónarhól en líka skoða möguleika á að breyta Hafnarskóla í leikskóla ef byggt verður við Heppuskóla. Í Hafnarskóla þarf að skoða stærð núverandi húsnæðis, lóðar og framtíðarmöguleika þar. Í framhaldi af þessari vinnu liggja fyrir upplýsingar um hvort annar hvor kosturinn er ákjósanlegur eða hvort horfa þarf til þriðja kostsins, að byggja nýjan leikskóla til að leysa vandann til framtíðar.
3.
Fjárhagsrammar fræðslu og frístundasviðs fyrir árið 2022
Málsnúmer 202110022
Fjárhagsrammar fyrir deildir sviðsins lagðir fram til kynningar og umræðu.
Forstöðumenn fengu þau skilaboð að hækka ekki rammana frá síðasta ári. Þær breytingar sem urðu á römmum snerust fyrst og fremst um fjölgun á starfsfólki m.a. vegna styttingar vinnuvikunnar og breyttu fyrirkomulagi á leikskólanum.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við rammana.
4.
Gjaldskrár fræðslu og tómstundasviðs
Málsnúmer 202110020
Eftirfarandi gjaldskrár teknar fyrir;Fæði í Leikskólanum Sjónarhóli.Fæði í Grunnskóla Hornafjarðar.Gjaldskrá Tónskóla Hornafjarðar.Gjaldskrá Sundlaugar Hornafjarðar.Gjaldskrá Vöruhúss.
Hækkanir á leikskólagjöldum og fæði í leikskóla hafa verið í lágmarki undanfarin ár og ekki haldið í við það hlutfall sem foreldrar hafa lengst af greitt. Nefndin leggur til 9% hækkun á leikskólagjöldum og 9% hækkun á fæðisgjöldum. Þessi hækkun dugar þó ekki til að foreldrar greiði sama hlutfalli af rekstri leikskólans og þeir gerðu.
Nefndin leggur til sömu hækkun á fæði og vistunargjöldum í Kátakoti.
Nefndin leggur til hækkun á fæði í grunnskólanum, fæði til nemenda fari í 360 krónur máltíðin og 600 krónur til starfsmanna.
Nefndin leggur til 10% hækkun á gjaldskrá Vöruhúss auk þess sem 4 liðir hækka meira vegna aukins kostnaðar þar á bak við.
Nefndin leggur til 5% hækkun Tónskólagjalda hjá börnum og 10% hækkun hjá fullorðnum.
Nefndin leggur að jafnaði til 5 % hækkun á gjaldskrá sundlaugar en fer þó aðeins eftir liðum.

5.
Svefn - vitundarvakning um mikilvægi svefns
Málsnúmer 202110021
Undanfarin ár hefur oft komið upp umræða um hvort seinka ætti klukkunni á Íslandi. Landlæknisembættið, forsætisráðuneytið og sviðsstjóri Lýðheilsusviðs töldu mikilvægt að meta fyrst hvaða áhrif vitundarvakning um mikilvægi svefns hefði á svefntíma Íslendinga. Í framhaldinu var Embætti landlæknis falið að gera drög að áætlun um vitundarvakningu um mikilvægi svefns og var henni hrundið af stað 1. október með málþingi í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni Sofum betur https://www.youtube.com/watch?v=6QWL1SxGXVM. Um leið kom út aðgerðaráætlun um vitundarvakninguna.
Góður rómur gerður að þessu átaki og fólk hvatt til að kynna sér það.
6.
Barnaþing í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202010120
Unnið er að stöðumati vegna verkefnisins Barnvænt sveitarfélag https://barnvaensveitarfelog.is. Í byrjun nóvember verður barnaþing fyrir öll börn 6-18 ára. Þingið verður tvískipt og haldið í samstarfi við Ungmennaráð, Grunnskóla Hornafjarðar, FAS og stýrihóp um Barnvænt sveitarfélag. 6-10 ára börn 3. nóvember og 11-18 ára börn 4. nóvember. Ef einhverjir aðilar úr fræðslu- og frístundanefnd geta verið ritarar á barnaþingi þá er það vel þegið.
Farið yfir innleiðingarferlið á vefsíðu verkefnisins Barnvænt sveitarfélag og sagt frá undirbúningi barnaþings.
7.
Íslensku menntaverðlaunin 2021
Málsnúmer 202110026
Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna voru tilkynntar 5. október á alþjóðadegi kennara. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í nóvember.