Fræðslu- og tómstundanefnd
84. fundur
17. nóvember 2021
kl.
16:15
-
18:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Alexandra Guðrúnardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Claudia Maria Hildeblom
1. varamaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 66
Fundargerði lögð fram og samþykkt.
2.
Lýðheilsuráð 2021-2022
Fundargerð lögð fram og samþykkt.
3.
Heilsueflandi samfélag 2021
Gátlistar heilsueflandi samfélags kynntir.
Fram kom að Eyrún Fríða Árnadóttir kennari í grunnskólanum er menntaður kynjafræðingur og er reiðubúin að koma að fræðslu á jafnréttis- og hinseginmálum í sveitarfélaginu. Starfsmanni falið að ræða við hana um leiðir.
Gátlistar heilsueflandi samfélags kynntir. Með því að fylla þá út er er staða sveitarfélagsins gagnvart heimsmarkmiðunum metin. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að unnið sé að því að fylla gátlistana út.
Gátlistar heilsueflandi samfélags kynntir. Með því að fylla þá út er er staða sveitarfélagsins gagnvart heimsmarkmiðunum metin. Fræðslu- og tómstundanefnd hvetur til þess að unnið sé að því að fylla gátlistana út.
4.
Frístunda-tómstundastyrkir
Samanburður á frístundastyrkjum milli sveitarfélaga kynntur og sagt frá nýtingu frístundastyrkja í sveitarfélaginu Hornafirði.
Tómstundastyrkur í sveitarfélaginu er vel samanburðarhæfur við önnur sveitarfélög og ákvað nefndin að hækka hann ekki en leggur til að komið verði til móts við foreldra 5 ára barna með 10.000 króna tómstundastyrk á ári. Málinu vísað til bæjarráðs.
5.
Golfklúbbur Hornafjarðar
Golfklúbbur Hornafjarðar hefur óskað eftir meiri stuðningi við umhirðu golfvallarins.
Til að koma til móts við golfklúbbinn leggur fræðslu- og tómstundarnefnd til að sveitarfélagið sjái um slátt á "röffinu" einu sinni á næsta ári. Nefndin vísar frekari stuðningi við vallarumhirðu til samnings sveitarfélagsins og golfklúbbsins sem ljúka ætti fyrir árslok 2022. Málinu vísað til bæjarráðs.
6.
Vöruhús
Vöruhúsið fékk hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna og mikil gróska hefur verið þar síðustu mánuði.
Fræðslu- og tómstundaráð óskar forstöðumanni Vöruhúss, Vilhjálmi Magnússyni og öðrum starfsmönnum þar, til hamingju með hvatningarverðlaunin og vonar að þau verði Vöruhúsinu enn meiri lyftistöng til framfara og nýsköpunar.
Mikil gróska hefur verið í Vöruhúsinu síðustu mánuði og misseri og hefur bæjarráð samþykkt að verja helming þess styrks sem Vöruhúsið fær á ári til að ráða í hálft stöðuhlutfall til viðbótar þar.
Mikil gróska hefur verið í Vöruhúsinu síðustu mánuði og misseri og hefur bæjarráð samþykkt að verja helming þess styrks sem Vöruhúsið fær á ári til að ráða í hálft stöðuhlutfall til viðbótar þar.
7.
Skólaþing sveitarfélaga 8. nóv 2021
Hér má sjá fyrirhugaða dagskrá þingsins https://www.samband.is/vidburdir/skolathing-sveitarfelaga-2021/. Skólaþingi var hinsvegar frestað vegna fjölgunar covid-19 smita.
Lagt fram til kynningar.
8.
Farsældarlögin innleiðing og fleira
Innleiðing farsældarlaganna er nú að komast á fullan skrið og 17. nóvember var sameiginlegur vinnufundur þjónustuveitenda.
Á fundinn sem var á teams mættu fyrir hönd sveitarfélagsins Hornafjarðar sviðsstjórar velferðarsviðs og fræðslu- og frístundasviðs Erla Björg Sigurðardóttir og Þórgunnur Torfadóttir. Þær leggja áherslu á mikið samstarf við innleiðingu laganna því bæði sviðin bera ábyrgð á þjónustunni og þurfa að vinna náið saman. Auk þess er mikilvægt að eiga gott samstarf við heilbrigðisþjónustu og löggæslu.
Sviðin leita nú eftir ráðgjöf við innleiðinguna frá aðilum sem hafa aðstoðað önnur sveitarfélög við að greina þjónustuþætti, meta þá og skilgreina hvaða þjónustu beri að veita og hver eigi að veita hana.
Sviðin leita nú eftir ráðgjöf við innleiðinguna frá aðilum sem hafa aðstoðað önnur sveitarfélög við að greina þjónustuþætti, meta þá og skilgreina hvaða þjónustu beri að veita og hver eigi að veita hana.
9.
Barnaþing 18.-19. nóvember á vegum umboðsmanns barna.
Barnaþingi hefur verið frestað vegna fjölgunar covid-19 smita.
Lagt fram til kynningar