Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

88. fundur
16. mars 2022 kl. 14:15 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Claudia Maria Hildeblom 1. varamaður
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Umhverfisstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202001013
Bæjarráð óskar eftir umsögn um umhverfisstefnu sveitarfélagsins frá fastanefndum.
Nefndin lýsti ánægju sinni með umhverfisstefnuna og gerði engar athugasemdir.
2.
Deiliskipulag Miðsvæði Hafnar
Málsnúmer 201908014
Á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar 3. mars kom fram sú ósk að deiliskipulag miðsvæðis yrði kynnt í fræðslu- og tómstundanefnd.
Brynja Dögg fór yfir deiliskipulag miðsvæðis. Engar athugasemdir komu við deiliskipulagið en nokkrar spurningar voru bornar fram. Kynning fyrir almenning verður næsta mánudag, 21. mars kl. 17:00 og þá verður hönnun líkamsræktarstöðvarinnar líka kynnt. Deiliskipulagið fer í auglýsingu eftir næsta bæjarstjórnarfund.
3.
Skóladagatal leik- og grunnskólans í Hofgarði 2022
4.
Skóladagatal Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu 2022
Málsnúmer 202202041
Jóhann kynnti skóladagatalið og nefndin samþykkti það.
5.
Skóladagatal leikskólans Sjónarhóls 2022
Málsnúmer 202202041
Skóladagatalið lagt fram og samþykkt.
6.
Foreldrakönnun Sjónarhóls 2022
Málsnúmer 202203034
Fyrir liggja tvær kannanir, foreldrakönnun Skólapúlsins og könnun um að loka leikskólanum fyrr á föstudögum.
Niðurstöður foreldrakönnunar um styttingu leikskóladagsins á föstudögum kynnt. Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti að gerð yrði tilraun með að loka leikskólanum kl. 15:00 á föstudögum frá 1. maí - 1. október. Leikskólagjöld munu lækka sem nemur þessum klukkutímum. Í lok ágúst og í september verður tilraunin metin og ákvörðun um framhaldið tekin. Starfsmönnum leikskólans falið að útfæra föstudagana.
Farið yfir foreldrakönnun Skólapúlsins. Það eru ýmsir þættir sem þarf að vinna betur með og mikilvægt að einbeita sér að nokkrum. Starfmenn ætla að nota niðurstöðurnar til að gera leikskólastarfið enn betra og styrkja ýmsa þætti í starfinu. Veturinn í vetur hefur verið snúinn vegna Covid-19 og ef til vill hefur það einhver áhrif auk þess sem töluvert hefur verið um lengri veikindi. Þeir þættir sem starfsmenn leikskólans ætla sérstaklega að einbeita sér að til að byrja með eru; að bæta upplýsingaflæðið, efla kynningu á skólanámskránni og heimasíðu skólans en nota líka Instagram og ekki síst Karellen sem hefur því miður verið í ólagi hluta vetrar. Auk þess ætla stjórnendur að skoða sín mál og efla verkaskiptingu sín á milli.
7.
Viðbygging við leikskólann Sjónarhól
Málsnúmer 202201046
Arkitektastofan ArkÞing hefur tekið að sér að útfæra hugmyndir af viðbyggingu við Sjónarhól. Fyrir fundinum liggja fyrstu drög en að ýmsu þarf að huga áður en lengra er haldið.
Farið yfir fyrstu drög að teikningum og nú er leikskólinn með þær og ætlar að skoða þær vel. Lögð er áhersla á að vinna náið með starfsfólki leikskólans að hönnun og útfærslum. Næsti fundur með hönnuðum fyrirhugaður 29. mars.
8.
Skóladagatal Grunnskóla Hornafjarðar 2022
Málsnúmer 202202041
Skóladagatal kynnt og samþykkt.
9.
Foreldrakönnun Grunnskóla Hornafjarðar 2022
Málsnúmer 202203013
Þórdís fór yfir helstu niðurstöður foreldrakönnunarinnar sem kemur almennt vel út.
10.
Samræmd próf 2022 felld niður
Málsnúmer 202203020
Tilkynnt hefur verið að samræmd próf í grunnskólum falli niður árið 2022 en vinna sé hafin við hönnun nýs matstækis sem leysi samræmdu prófin af hólmi.
Lagt fram til kynningar.
11.
Móðurmálskennsla 2022
Málsnúmer 202203014
Árið 2019 fékk sveitarfélagið styrk frá Þróunarsjóði innflytjendamála til móðurmálskennslu barna af erlendum uppruna á Hornafirði. Um tilraunaverkefni var að ræða þar sem nemendur af pólskum uppruna fengu móðurmálskennslu. Verkefnið gekk með miklum hléum vegna Covid-19 út veturinn 2021 og fór ekki af stað í haust bæði vegna Covid-19 en einnig vantaði kennara. Nú hefur Þróunarsjóður ákveðið að bjóða þeim sem hlutu styrkinn að taka upp þráðinn að nýju þar sem útlit er fyrir að faraldurinn sé á undanhaldi. Verið er að ræða við hugsanlegan kennara og mun kennslan væntanlega fara af stað á næstu vikum.
Fræðslu- og tómstundanefnd fagnar því að hægt verður að taka upp þráðinn að nýju.
12.
PISA - fyrirlögn 2022
Málsnúmer 202203019
PISA er umfangsmikil alþjóðleg könnun á hæfni og getu 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði. Sá aldur er valinn þar sem hann markar lok skólaskyldu í flestum löndum. Könnunin sem tekin er á þriggja ára fresti nær til yfir 80 þjóða og er eina alþjóðlega samanburðarrannsóknin á frammistöðu menntakerfisins sem fram fer hér á landi. Könnunin verður lögð fyrir í Grunnskóla Hornafjarðar 30. mars.
Lagt fram til kynningar.
13.
Brottfall úr framhaldsskóla
Málsnúmer 202203012
Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum er nafn á nýrri skýrslu frá Velferðarvaktinni. Í henni er fjallað um brotthvarf úr framhaldsskóla frá öðru sjónarhorni en venjulega er gert á Íslandi. Í stað þess að beina athyglinni að nálægum orsökum brotthvarfs er brotthvarf skoðað sem birtingarmynd ójafnra tækifæra í íslensku þjóðfélagi með því að beina athyglinni að félagslegum og efnahagslegum bakgrunni. Í því samhengi skipta einkum tvær mælingar máli sem eru menntun foreldra og heildartekjur fjölskyldunnar. Niðurstöðurnar benda til þess að brotthvarf sé birtingarmynd ójafnra tækifæra. Það er þó öðru fremurmenntun foreldra sem skiptir máli. Líkurnar á að hætta í ókláruðu námi eru minni því hærri sem menntun foreldra er. Niðurstöðurnar benda til þess að inngrip snemma í námsferlinum skipti máli. Meirihluti af öllu brotthvarfi á sér stað á aldrinum sautján til nítján ára. Höfundar skýrslunnar gera tillögur til úrbóta fyrir bæði grunnskólastigið og framhaldsskólastigið. Það er þó ekki eingöngu á þeirra verksviðið að bæta úr heldur verður að virkja fleiri opinbera aðila sem og foreldra.
Fram kom að fulltrúar grunnskólans og FAS hafa þegar komið á samstarfi til að bregðast við niðurstöðum skýrslunnar.
14.
Skólaþing sveitarfélaga 8. nóv 2021
Málsnúmer 202111024
Skólaþing sveitarfélaga sem vera átti í nóvember var flutt alfarið yfir á rafrænan vettvang og hefur það verið í gangi frá 21. febrúar og síðasti hlutinn verður 21. mars. Á þinginu hefur verið fluttur fjöldi fróðlegra erinda en einnig hafa verið haldnar málstofur um þau málefni sem á döfinni eru og má nálgast upptökur af þinginu á slóð Sambandsins https://www.samband.is/vidburdir/skolathing-sveitarfelaga-2021/
Fundarmenn og aðrir hvattir til að horfa á upptökur af þinginu.
15.
Samnorræn skýrsla um verndandi þætti fyrir andlega líðan
Málsnúmer 202111023
Ný norræn skýrsla veitir innsýn í áhættuþætti sem fram hafa komið í norrænum rannsóknum, svo sem einmanaleika, mikla notkun stafrænna miðla og félagslegar aðstæður. Verndandi þættir eru m.a. hreyfing og jákvæð tengsl í skóla. Í frétt á vef Landlæknisembættisins má lesa um helstu niðurstöður skýrslunnar https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/frettir/frett/item48973/Ny-norran-skyrsla-um-ahattu--og-verndandi-tatti-fyrir-andlega-vanlidan-medal-ungmenna-
Lagt fram til kynningar.
16.
Vöktun áhrifaþátta heilsu
Málsnúmer 202111023
Í október skilaði Gallup samantekt um áhrifaþætti heilbrigðis 2020 fyrir Hornafjörð. Óskað var eftir samanburðarskýrslu sem nú er komin. Hægt verður að fá samskonar skýrslur fyrir árið 2022. Hægt er að nýta skýrslurnar á margvíslega vegu t.d. í markmiðasetningu fyrir heilsueflandi samfélag en einnig til að fylgjast með þróun í samfélaginu og hvernig staðan er hér miðað við annarsstaðar.
Fræðslu- og tómstundanefnd styður að aftur verði fengin samanburðarskýrsla fyrir árið 2022.
17.
Íslensku menntaverðlaunin
Málsnúmer 202203029
Athygli er vakin á því að opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2022.Markmið verðlaunanna er að auka veg menntaumbótastarfs og vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni, auk sérstakra hvatningarverðlauna til einstaklings, hóps eða samtaka sem stuðlað hafa að menntaumbótum er þykja skara fram úr. Sérstök athygli er vakin á því að í ár bætist við nýr verðlaunaflokkur: Framúrskarandi iðn- eða verkmenntun, ein verðlaun veitt kennara, námsefnishöfundi, skóla- eða menntastofnun fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar. Þessi nýi flokkur er til orðinn að frumkvæði Samtaka iðnaðarins sem nú hafa gengið til liðs við þá aðila sem að verðlaununum standa. Tilnefningar þurfa að berast fyrir 1. júní, en viðurkenningarráð velur þrjár til fimm tilnefningar í hverjum flokki til kynningar á alþjóðadegi kennara 5. október. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í nóvember og mun RUV sýna frá afhendingunni.Nánari upplýsingar um verðlaunin og tilnefningarnar er að finna á þessari slóð: https://skolathroun.is/menntaverdlaun/
Almenningur hvattur til að tilnefna þá einstaklinga eða þá starfsemi sem þeim þykir hafa skarað fram úr.
18.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 70
Málsnúmer 2203002F
Fundargerð tekin fyrir og samþykkt.