Fara í efni

Fræðslu- og tómstundanefnd

89. fundur
20. apríl 2022 kl. 15:15 - 17:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Sigfinnsdóttir 1. varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varaformaður
Nejra Mesetovic aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson aðalmaður
Alexandra Guðrúnardóttir Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Viðbygging við Sjónarhól
Málsnúmer 202201046
Unnið hefur verið með arkitektum frá Landhönnun og Arkþing að útfærslum á lóð og viðbótarhúsnæði við leikskólann. Þegar Sjónarhóll var hannaður á sínum tíma þá var reiknað með 145 börnum og leikskólalóðin og bílastæði voru hönnuð með það í huga. Því er ekki talin þörf á fleiri bílastæðum og það er hægt að hliðra bílastæðunum til án þess að ganga á þau. Síðan er mikilvægt að merkja skammtímastæðin betur. Þá hefur sú umræða komið upp að stækka ekki lóðina heldur setja meira krafta í að bæta útivistarsvæðin í nágrenninu s.s. Hóteltúnið og önnur svæði. Einnig var rætt um að bæta aðstöðu fyrir börn, foreldra og starfsmenn sem koma á hjólum eða með barnavagna. Arkitektarnir munu halda áfram að vinna út frá þessum hugmyndum.
2.
Grunnskólinn í Hofgarði: Framvinduskýrsla vegna ytra mats 2020
Málsnúmer 202003051
Í janúar 2020 gerði MMS ytra mat á starfsemi Grunnskólans í Hofgarði. Í kjölfarið var unnin umbótaáætlun vorið 2020, framvinduskýrslu var skilað vorið 2021 og í þessar framvinduskýrslu 2022 er verið að tilgreina hvernig staðan er á umbótum sem ráðgerðar voru. Þessari framvinduskýrslu hefur þegar verið skilað til MMS.
Farið yfir framvinduskýrsluna og hún samþykkt af fræðslu- og tómstundanefnd.
3.
Grunnskóli Hornafjarðar: Framvinduskýrsla vegna ytra mats 2020
Málsnúmer 202003050
Í janúar 2020 gerði MMS ytra mat á starfsemi Grunnskóla Hornafjarðar. Í kjölfarið var unnin umbótaáætlun vorið 2020, framvinduskýrsla vorið 2021 og og í þessar framvinduskýrslu 2022 er verið að tilgreina hvernig staðan er á umbótum sem ráðgerðar voru. Þessari framvinduskýrslu hefur þegar verið skilað til MMS.
Framvinduskýrslan lögð fyrir og samþykkt af fræðslu- og tómstundanefnd.
4.
Ársskýrsla og ársreikningar Sindra 2021
Málsnúmer 202203022
Í apríl á hverju ári koma fastir styrkhafar sveitarfélagsins innan fræðslu og tómstundageirans á fund nefnarinnar og gera grein fyrir helstu áherslum í starfinu.
Gísli fór yfir skýrslu stjórnar og sagði frá starfinu. Auk þess minntist hann á fund fyrr í dag með formanni KSÍ þar sem farið var yfir að keppnistímabil í knattspyrnu væri að lengjast og mikilvægt væri fyrir iðkendur að hafa aðgang að gervigrasvelli í fullri stærð til að keppa heimaleiki. Það verður næsta verkefni Sindra og þá um leið sveitarfélagsins að ákveða hvort farið verður í það verkefni. Fram kom á þessum fundi að það eru fyrst og fremst Höfn og Ísafjörður sem eru í þessum vandræðum og formaður KSÍ mun tala máli okkar gagnvart opinberum aðilum en eins og staðan er núna liggja stórir styrkir ekki á lausu. Fram koma að það þarf að fara að skipta um gras á íþróttavellinum og einnig styttist í nýtt gras í Bárunni.
Fræðslu- og tómstundanefnd óskar eftir því að starfsmenn sveitarfélagsins athugi hvað þarf að fara í miklar framkvæmdir til að setja gervigras á íþróttavöllinn, hvaða röskun það myndi hafa í för með sér og hvað slíkt myndi kosta.
5.
Ársskýrsla og ársreikningar GHH 2021
Málsnúmer 202202103
Í apríl á hverju ári koma fastir styrkhafar sveitarfélagsins innan fræðslu og tómstundageirans á fund nefnarinnar og gera grein fyrir helstu áherslum í starfinu.
Halldóra Bergljót Jónsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar. Fram kom að félögum hefur fjölgað mikið síðustu ár og reksturinn sjaldan verið blómlegri og völlurinn í góðu standi. Nú standa yfir framkvæmdir á vallarhúsinu sem hafa verið kostnaðarsamar og töluvert er eftir af þeirri framkvæmd. Starfið og framkvæmdir eru að mestu bornar uppi af félagsmönnum sjálfum og metnaður klúbbsins er að hafa aðstöðu út á velli og inn í húsi til fyrirmyndar. Þetta er kostnaðarsamt og klúbburinn óskar eftir hækkun á næsta rekstrarsamning sem þarf að gera síðar á þessu ári. Þess má að lokum geta að Golfklúbbur Hornafjarðar er nú orðið fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
6.
Ársskýrsla HH 2021
Málsnúmer 202204025
Hestamannafélagi Hornfirðingur hefur ekki verið með samstarfssamning við sveitarfélagið en þar sem það stendur til bóta skilar það nú inn ársskýrslu og reikningum.
Magnús Skúlason kom og fór yfir skýrslu stjórnar. Aukning hefur verið í barna- og unglingastarfi og hafa ungmennin náð góðum árangri á landsvísu. Einnig kom fram að félagshesthúsið hefur skilað fleiri ungmennum inn í reiðmennskuna og mikil eftirspurn er eftir stíunum sem leigðar eru með 50% afslætti til ungmenna.
7.
Samningur um vallarumhirðu 2022
Málsnúmer 202204032
Nú hefur keppnistímabilið lengst og fyrstu leikir á vellinum hefjast í apríl og því hefur Knattspyrnudeild Umf.Sindra óskað eftir hækkun á samningi.
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir drög að nýjum samstarfssamningi og vísar samningnum til bæjarráðs.
8.
Samningur við Hestamannafélagið Hornfirðing
Málsnúmer 202102075
Hestamannafélagið Hornfirðingur hefur áhuga á að skrifa undir samstarfssamning við sveitarfélagið eins og gert var ráð fyrir í kjölfar þess að gerður var kaupsamningu um Reiðhöllina 2012. Fyrir fundinum liggja drög að samstarfssamningi við HH.
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkti drög að samstarfssamningi. Starfsmanni falið að ganga frá samningi við félagið og málinu vísað til bæjarráðs.
9.
Ungt fólk 2022
Málsnúmer 202204021
Niðurstöður könnunarinnar Ung fólk sem Rannsókn og greining leggur fyrir nemendur í 8. - 10. bekk ár hvert eru komnar í hús.
Það er ánægjulegt að sjá að fræðsla um rafrettur og mikilvægi svefns hefur skilað árangri og því mikilvægt að halda henni áfram. Á sama tíma sést líka að það eru ýmsar hættur sem leynast t.a.m. í netheimum og orkudrykkjaneysla heldur áfram að vera mikil.
Helstu niðurstöður könnunarinnar verða kynntar foreldrum á næstu dögum.
10.
Iðjuþjálfun í skólum
Málsnúmer 202108002
Tilraunasamningur við iðjuþjálfa í skólum sveitarfélagsins er að renna út en bæði leik- og grunnskólar óska eftir áframhaldandi stuðningi frá iðjuþjálfa.
Fræðslu- og tómstundanefnd samþykkir að gerður verði áframhaldandi samningur og starfsmanni falið að ganga frá honum.
11.
Niðurstöður könnunar á mönnunarviðmiðum og innritunaraldri í leikskólum
Málsnúmer 202203048
Gerð var könnun meðal framkvæmdarstjóra og fræðslustjóra sveitarfélaga sem reka leikskóla þar sem m.a. var spurt út í hvernig mönnunarþörf væri metin á leikskólum og hvaða viðmið um barngildi væru notuð.
Lagt fram til kynningar.
12.
Starfsmannamál í grunnskólum sveitarfélagsins.
Málsnúmer 202204022
Nú er verið að auglýsa eftir kennurum og stjórnendum í skólana
Umsóknarfrestur rennur út 24. apríl og fljótlega eftir það kemur í ljós hvort auglýsa þurfi aftur.
13.
Ungmennaráð Hornafjarðar - 71
Málsnúmer 2204007F
Ungmennaráð vinnur að því að skipuleggja skuggakosningar sem væntanlega verða 13. maí, daginn fyrir sveitarstjórnarkosningar. Fundargerð samþykkt.