Fræðslu- og tómstundanefnd
90. fundur
11. maí 2022
kl.
14:15
-
16:15
Víkurbraut 24
Nefndarmenn
Íris Heiður Jóhannsdóttir
formaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varaformaður
Nejra Mesetovic
aðalmaður
Þóra Björg Gísladóttir
aðalmaður
Ragnar Logi Björnsson
aðalmaður
Alexandra Guðrúnardóttir
Fulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
Þórgunnur Torfadóttir
Fundargerð ritaði:
Þórgunnur Torfadóttir
sviðstjóri fræðslu- og tómstundasviðs
Dagskrá
1.
Skólaakstur, ósk um leiðréttingu
Fallastakkur hefur óskað eftir því að kílómetrafjöldi í skólaakstri verði endurskoðaður. Endurskoðendur fyrirtækisins bentu á hugsanlega skekkju í kílómetrafjölda.
Starfsmönnum falið að skoða málið með Fallastakk og leiða það til lykta.
2.
Seturéttur fulltrúa USÚ á fundum fræðslu- og tómstundanefndar
Ungmennasambandið Úlfljótur USÚ hefur óskað eftir því að eiga fulltrúa í fræðslu- og frístundanefnd þegar fjallað er um málefni íþróttahreyfingarinnar.
Fundarmenn vilja þakka stjórn USÚ fyrir innsend erindi. Fræðslu- og tómstundanefnd er sammála því að eðlilegt sé að fulltrúi frá USÚ eigi seturétt á fundum fræðslu- og tómstundanefndar þegar málefni íþróttahreyfingarinnar eru rædd. Einnig lagði fræðslu- og tómstundanefnd til að fulltrúi frá USÚ myndi eiga sæti í vallarstjórn. Óskað verður eftir tilnefningu frá USÚ um fulltrúa í nefndina og í vallarstjórn.
3.
Viðhald og umhirða íþróttamannvirkja
Ungmennasambandið Úlfljótur USÚ hefur óskað eftir úttekt á viðhaldi og umhirðu íþróttamannvirkja sveitarfélagsins og starfi forstöðumanns íþróttamannvirkja. Stjórn USÚ telur það skyldu sína að koma ábendingum á framfæri og óskar eftir úttekt á viðhaldi og umhirðu íþróttamannvirkja sveitarfélagsins og starfi forstöðumanns íþróttamannvirkja. Það er fyrst og fremst í öryggisskyni fyrir iðkendur en einnig þar sem ákall um bætta og stærri aðstöðu íþróttamannvirkja er mjög hávært innan íþróttahreyfingarinnar.
Fræðslu- og tómstundanefnd vísar málinu til sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs og óskar eftir því að hann vinni málið áfram með vallarstjórn, aðilum íþróttahreyfingarinnar og eftirlitsmanni fasteigna.
4.
Umsýsla með dagforeldrum færist yfir á fræðslusvið
Fram hefur komið ábending úr stjórnsýslunni að málefni dagforeldra eigi að vera bæði á velferðarsviði og fræðslusviði. Velferðarsvið ber ábyrgð á leyfisveitingum en fræðslusvið á niðurgreiðslum til dagforeldra og daglegum samskiptum.
Fræðslu- og tómstundanefnd telur þetta eðlilega skiptingu og fagnar því að málið sé komið í réttan farveg.
5.
Lokaskýrsla vegna úttektar fyrir innleiðingu farsældarlaganna
Ráðgjafar frá RR-ráðgjöf nú KPMG gerðu úttekt á þeim þjónustuþáttum sem stofnanir sveitarfélagsins veita börnum og fjölskyldum þeirra og var það fyrsta skrefið í innleiðingu farsældarlaganna. Verkið var unnið með starfsmönnum frá velferðarsviði, fræðslusviði, heilsugæslu og stofnunum sveitarfélagsins. Sveitarfélagið fékk lokaskýrslu á skilafundi 27. apríl sl. Megin niðurstöður hennar eru í 5 liðum. -Innleiða stefnu og gildi sveitarfélagsins inn í þá starfsemi sem stuðlar að farsæld barna-Viðhalda viðhorfi lausnamiðaðrar sameiginlegar ábyrgðar Hjá öllum þjónustuveitendum Teymisvinna-Breyta verklagi til að mæta kröfum laganna á auðveldari hátt-Þjálfa tengiliði og málstjóra-Samræma hugtök sem hafa sömu merkinguRR-ráðgjöf áréttaði sérstaklega að þegar væri um mikla samþættingu að ræða sem væri til fyrirmyndar og mikilvægt væri að halda í hana og vinna út frá henni. Verkefnahópurinn mun halda áfram störfum og vinna að frekari innleiðingu strax á næstu vikum því markmiðið er að öll börn í sveitarfélaginu nái að blómstra.
Skýrslan lög fram til kynningar og fundarmenn lýstu ánægju yfir stöðu mála og hlakka til að sjá áframhaldandi vinnu.
6.
Viðbygging við leikskólann Sjónarhól
Farið yfir stöðu mála. Næsti fundur með arkitektum verður þriðjudaginn 17. maí.
7.
Ráðning skólastjóra GH 2022
Fjórir hafa sótt um starf skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar. Ráðningaviðtöl standa yfir og ráðning væntanlega tilkynnt fljótlega eftir að þeim lýkur.
Ráðninga- og ráðgjafafyrirtækið Hagvangur heldur utan um ráðningaferlið ásamt sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs.
8.
Ráðning verkefnastjóra á fræðslusvið
Verkefnastjóri á fræðslusviði hefur sagt upp störfum og til upplýsingar fyrir fræðslu- og tómstundanefnd verður auglýst eftir nýjum verkefnastjóra á næstunni.
Lagt fram til kynningar.
9.
Ósk um endurskoðun á samningi
Vegna rekstrarerfiðleika hefur Kolbrún Björnsdóttir fyrir hönd SS Sport óskað eftir endurskoðun á samningi við sveitarfélagið.
Fræðslu- og tómstundanefnd hefur ekki lausnir á málinu og óskar eftir því að bæjarráð haldi áfram að leita lausna í samráði við rekstraraðila.