Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

69. fundur
25. mars 2014 kl. 17:00 - 00:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Ásgeir Gunnarsson formaður
Guðmundur Heiðar Gunnarsson varaformaður
Matthildur Ásmundardóttir starfsmaður HSSA
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Skipulagsskrá fyrir Gjafa- og minningarsjóðs
Málsnúmer 200806007
Farið yfir starfsreglur Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs og þær samþykktar með fyrirvara um samþykki Lovísu Rósu Bjarnadóttur.
2.
Umsóknir í Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs
Málsnúmer 200910015
Sótt er um kaup á sendibúnaði fyrir Lifepak stuðtæki í sjúkrabílinn fyrir upphæð 149.000 kr. án vsk. Umsóknin er samþykkt.
3.
Peningagjöf til HSSA
Málsnúmer 201310074
HSSA barst peningagjöf frá ættingjum Ingibergs Sigurðssonar frá Syðri Firði til tækjakaupa að upphæð 4.950.000 kr. Á 66.fundi Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs var samþykkt að gjafasjóðurinn hafi umsjón með tækjakaupunum. Ákveðið var að keyptir yrðu stólar til að setja í matsal hjúkrunarheimilisins að upphæð 968.745 kr. án vsk. Neðanþvottavél að verðmæti 756.560 kr. án vsk og 7 stk hlustunarpípur professional að verðmæti 83.839 kr. án vsk. Þá er samtals búið að kaupa tæki fyrir 3.994.106 kr.