Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs
83. fundur
5. september 2018
kl.
12:00
-
13:00
í heilsugæslustöð
Nefndarmenn
Sigurlaug Gissurardóttir
aðalmaður
Elínborg Rabanes
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Starfsreglur Gjafa- og minninga
Farið yfir starfsreglur sjóðsins til kynningar.
2.
Gjafalisti Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs
Farið yfir lista yfir gjafir til stofnunrinnar á árinu 2017 frá Gjafa- og minningasjóðnum ásamt gjöfum frá félagasamtökum.
3.
Ársreikningur Gjafa- og minningasjóðs Skjólgarðs 2017
Ársreikningur sjóðsins sýnir 2.018.045 kr. í afgang. Heildar eignir sjóðsins eru 23.035.616 kr. Helstu tekjur sjóðsins eru af sölu minningakorta, 884.807 kr. á árinu 2017 og frjáls framlög frá félagasamtökum og einstaklingum. Stjórn Gjafa- og minningasjóðs samþykkir ársreikninginn.
4.
Umsóknir í Gjafa- og minningasjóð Skjólgarðs
Sótt er um kaup á Molift Smart ferðalyftara að upphæð 443.118 kr. án vsk. til að auðvelda starfsfólki umönnun á dvalarheimili og í heimahúsum. Umsókn samþykkt.
Sótt er um kaup á tveimur blóðþrýstingsmælum fyrir heilsugæslu, samtals að upphæð 202.412 kr. án vsk. Umsókn samþykkt.
Sótt er um kaup á skoðunarljósi vegna krabbameinsskoðan að upphæð 100.783 kr. án vsk. Umsókn samþykkt.
Sótt er um kaup á 5 náttborðum á hjúkrunarheimilið Skjólgarð, samtals að upphæð 247.985 kr. án vsk. Umsókn samþykkt.