Fara í efni

Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs

86. fundur
4. júní 2020 kl. 14:00 - 15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Halldóra Bergljót Jónsdóttir aðalmaður
Sigurlaug Gissurardóttir aðalmaður
Elínborg Rabanes aðalmaður
Haukur Þorvaldsson
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Guðrún Dadda Ásmundardóttir framkvæmdastjóri HSU á Hornafirði
Dagskrá
1.
Gjafa- og minningarsjóður Skjólgarðs 2020
Málsnúmer 202005028
Leggja þarf niður sjóðinn undir núverandi kennitölu og rekstrarformi. Má rekja þessa ákvörðun tilbaka til 2004 samkvæmt sjóðsskrá nr. 1504 en þá ljáðist að stofna nýja kennitölu. Málið kynnt.
Farið var yfir þá stöðu, að samkvæmt beiðni sveitarfélagsins frá 2005 var óskað eftir að leggja niður félagið. Sú beiðni var ekki kláruð fyrr en í mars 2020. Því þarf að stofna nýtt félag. KPMG er að vinna að því fyrir hönd sveitarfélagsins. Núverandi stjórn mun koma saman þegar sú vinna er klár.
2.
Ársreikningur Gjafa- og minningarsjóðsins 2019
Málsnúmer 202007029
Ársreikningur 2019 lagður fram til samþykktar.
Farið yfir ársreikning sjóðsins 2019 og lagður fram til samþykktar.