Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

140. fundur
8. febrúar 2012 kl. 17:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Hannes Ingi Jónsson varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Haukur Ingi Einarsson (HIE) framkvæmdastjóri sviðs
Birgir Árnason embættismaður
Sigfús Harðarson embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Haukur Ingi Einarsson Framkvæmdastjóri fjármála- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum
Málsnúmer 201112050
Starfsmönnum falið að gera viðeigandi áætlun og gera grein fyrir málinu á næsta fundi hafnarstjórnar.
2.
Rafmagn smábátahöfn
Málsnúmer 201202003
Reynir fór yfir málið og ræddi meðal annars sjónarmið smábátaeigenda um hátt rafmangsgjald. Hafnarstjórn felur starfsmönnum að afla frekari gagna um málið og leggja fyrir næsta fund.
3.
Bræðslubryggja-útboð
Málsnúmer 201201077
Haukur Ingi gerði grein fyrir útboðsgögnum. Samþykkt að óska eftir tilboðum í verkið. Starfsmönnum falið að bjóða verkið út.
4.
Eftirlitskerfi veitna
Málsnúmer 201201070
Lagt fram skjal dags. 2. febrúar 2012 um eftirlitskerfi veitna. Hafnarstjórn felur starfmönnum að vinna áfram að málinu.
5.
Landbrot á Suðurfjörum
Málsnúmer 201201071
Hjalti las upp erindi til Siglingastofnunar dags 31. janúar 2011 sem segir frá því að hafnarverðir hafi tekið eftir miklu landbroti á Suðurfjörum. Staðan sé þannig að 1 metrar eru í veðurstöðina og 2 metrar í leiðarljósið. Hafnarstjórn er sammála um bregðast þurfi við og felur starfsmönnum að sjá til þess að strandlengjan verði grjótvarin og að undirbúið verði útboð fyrir verkið. Hafnarstjórn leggur áherslu á að Siglingastofnun komi að verkinu með fjárframlagi eins lög gera ráð fyrir.
6.
Dýpkun í Hornafjarðarhöfn
Málsnúmer 201103031
Lagðar fram tillögur um losunarsvæði fyrir uppdælingu út höfninni. Hafnarstjórn sammála um að vísa málinu til umhverfis- og skipulagsnefnd og óskar eftir umfjöllun nefndarinnar áður en ákvörðun verður tekin. Hafnarstjórn leggur ríka áherslu á að ef dælt verður upp á Leirusvæði verði tryggt að hægt verði að rykbinda svæðið strax að lokinni dælingu. Hafnarstjórn felur starfsmönnum einnig að kanna kosti þess að dæla efni vestur í Hornafjörðinn.
7.
Mælingar á grynnslum og höfninni
Málsnúmer 200906008
Rætt um Grynnslin og framvindu rannsóknarverkefnis tengt innsiglingu. Starfsmönnum falið að afla allra mögulegra gagna um dýptarmælingar á grynnslunum.
8.
Önnur mál
Málsnúmer 201102011
Valdemar Einarson lagði fram neðangreinda bókun.

Nefndarmenn Sjálfstæðisflokksins gera alvarlega athugasemd við það að útboð á vegum veitnanna ( fráveita á tjaldstæði og fráveita í Nesjahverfi ) og kom aldrei inn á borð Hafnarstjórnar hvorki um samþykki útboðsins sjálfs né hvort ætti að taka þeim tilboðum sem bárust. Samkvæmt okkar túlkun þá eru veiturnar undir Hafnarstjórn og þessi mál eiga að koma þar inn skilyrðislaust.

Einnig gera nefndarmenn athugasemdir við að fundir séu ekki haldnir á skipulögðum fundartíma.