hafnarstjórn Hornafjarðar
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar samþykkir að dæla allt að 50.000 m3 úr höfninni vorið 2012 og losa efnið á Leirusvæðið. Til þess þarf að hækka garð á Leirusvæði um allt að 1 metra. Þetta verður í síðasta sinn sem dælt verður á Leirusvæðið og leggur hafnarstjórn áherslu á að gengið verði þannig um svæðið allt að ekki verði sandfok úr því í framtíðinni. Starfsmönnum er falið að undirbúa aðgerðir þar að lútandi nú þegar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar skorar á samgönguyfirvöld að viðurkenna viðmiðunardýpi í höfninni 8 m í stað 7.5 m. Einnig að endurskoðuð verði graftrarmörk fyrir höfnina og auka stuðning sinn við viðhaldsdýpkun og greiði 75 % hlut sinn í ofangreindri dælingu að fullu.
Hafnarstjórn beinir því til bæjarstjórnar Hornafjarðar að leggja út fyrir kostnaðinum, sem búast má við að verði samtals kr. 57.029.072.- Hlutur hafnarinnar 14.257.268.- og hlutur ríkis 42.771.804.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar að fylgja erindinu eftir við viðkomandi yfirvöld.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að vinna að nákvæmri kostnaðar- og fýsileikagreiningu á losunarstað fyrir efni úr höfninni til framtíðar, t.d. yfir á Austurfjörur eða í fjörðinn í námunda við Óslandssker.
Sigurður gerði grein fyrir ferð sem hann fór í til Miami 10 mars sl. Tilgangur ferðarinnar var að kynna Hornafjarðarhöfn á sýningu fyrir hafnir sem taka á móti skemmtiferðarskipum. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fram kom að ferðin var árangursrík, komið var á tengslum við fyrirtæki og aðila í greininni. Bókaður var nýr aðili fyrir árið 2014 og vonir bundnar við að það skip komi í fimm ár eftir það.
Hafnarstjórn samþykkir að formaður hafnarstjórnar og Sigurður Guðmundsson verði fulltrúar hafnarinnar á aðalfund Cruise Iceland. Formaður fari með atkvæði hafnarinnar.
Haukur Ingi gerði grein fyrir verðtilboðum í nýja hafnarvog. Starfsmönnum falið að yfirfara tilboðin og velja hagkvæmasta kostinn.