hafnarstjórn Hornafjarðar
146. fundur
30. ágúst 2012
kl.
16:00

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Birgir Árnason
starfsmaður tæknisviðs
Sigfús Harðarson
embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum

Upplýst að starfsmenn hafnarinnar hafi unnið áætlunina og sent til Umhverfisstofnunar. Beðið er eftir athugasemdum frá stofnuninni.

2.
Starfsmannamál hafnarinnar

Hjalti lagði til að ráðinn yrði forstöðumaður yfir höfnina og auglýst meðal núverandi starfsmanna hafnarinnar. Taldi Hjalti málið brýnt vegna mikill umsvifa í höfnini, vaxandi komum skemmtiferðaskipa, innsiglingarmálum og fleiri þróunarverkefnum við höfnina sem mikilvægt væri að fastur starfsmaður á höfninni hefði daglega umsjón með. Sagði jafnframt mikilvægt að viðkomandi starfsmaður haldi utan um vaktatöflu, sumarafleysingar, undirbúning framkvæmda, áætlunagerð og fleira.

Hafnarstjórn felur Hjalta að útbúa auglýsingu og fá endanlegt samþykki hafnarstjórnar í tölvupósti áður en auglýst er.

3.
Vigtarmál

Sigfús Harðarson kom á fundinn kl. 16.30.

Lagt fram bréf dags.16. júlí 2012 frá Sigurði Guðmundssyni um nauðsyn þess að ráða afleysingu á vigtina á sumrin. Hafnarstjórn telur mikilvægt að vigtarmál verði leyst fyrir næsta sumar og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar.

4.
Framkvæmdir og viðhald við höfnina

Kom fram að lagfæringu á Bræðslubryggju er lokið og hafnarvoginn nánast tilbúinn. Kom fram að gerð verði tilraun um að sjóða bætur í stálþilið fyrir framan Miklagarð seinni hlutann í september. Óskað eftir stöðu fjármála og framkvæmda hafnarinnar á næsta fundi. Hjalti greindi frá stöðunni í lok júlí, að reksturinn hafi verið jákvæður um 20 m.kr.

Sigfús fór yfir lista um nauðsynlegar framkvæmdir og viðhald á næstu misserum. Kom fram að laga þurfi spil í Birni Lóðs, taka upp syðri flotbryggju,endurnýja Hellisvita, laga fendera framan á Birni Lóðs, laga veðurstöð á Suðurfjöru og sjávarhæðamæli innan hafnar, gera við Miklagarðsbryggju og finna nýjan losunarstað fyrir dælingu. Starfsmönnum falið að gera tillögu að lagnaleið að nýjum losunarstað fyrir efni úr höfninni.

5.
Hafnasambandsþing 2012

Ákveðið að Reynir Arnarson og Valdemar Einarsson sæki þingið sem hafnarstjórnarmenn og starfsmenn tilnefni tvo fulltrúa til að sitja þingið fyrir sitt leyti.

6.
Fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016

Rætt um nauðsyn grjótvarnar á Suðurfjörum, áframhaldandi rannsóknir og úrbætur á Grynnslunum og víkka leiðina fram hjá Hellinum með stofndýpkun. Jafnframt rætt um að á næstunni verði þörf á að endurnýja stálþil á Miklagarðsbryggju og trébryggju við vigtina. Þá er nauðsynlegt að bæta við viðhaldsýpkun og hún verði að minnsta kosti 30 þúsund rúmmetrar á ári.

7.
Grynnsli- staða mála

Sigfús greindi frá mælingum hafnarstarfsmanna með fjölgeislamæla undanfarna daga í samvinnu við Siglingastofnun. Þetta er umfangsmesta mæling sem gerð hafi verið á svæðinu. Niðurstöður er að vænta í fyrra hluta septembermánaðar. Rætt um að gera fast líkan af Grynnslunum og höfninni þegar gögnin liggja fyrir.

8.
Umferðarmerkingar á Höfn.

Hafnarstjórn leggur til að gata milli Hafnarvogar og Pakkhúss verði gerð að einstefnu götu til norðurs. Rætt um bílastæði við hafnarsvæðið. Kom fram að mikilvægt sé að tryggja greiðan aðgang fyrir útgerð á bryggjum þar sem afla er landað.

9.
Hornafjarðarveitur

Hjalti greindi frá því að grafa þurfi upp úr skurði sem tekur við af hreinsikerfi í Nesjum. Þá verði girt meðfram skurðinum. Jafnframt rætt um fráveitumál við höfnina og nauðsyn þess að koma skólpi í hreinsistöð. Greindi Hjalti frá því að unnið væri að lausn málsins hjá tæknimönnum sveitarfélagsins og valkostir ættu að liggja fyrir við gerð fjárhagsáætlunar í haust.

Páll lýsti yfir áhyggjum af affallsmálum í heild einkum í ljósi þess að grynningar í firðinum verði meiri. Birgir greindi frá því að mælingar sýndu fram á árangur vegna fráveituframkvæmdanna. Hafnarstjórn óskar eftir gögnum um málið fyrir næsta fund.

10.
Önnur mál

Birgir ræddi um mikilvægi þess að ræða um hlutverk og rekstur Áhaldahússins, taka ákvörðun um tækjakaup og fleira.

Hafnarstjórn sammála um að fjarlæga polla við Miklagarð.

Valdemar spurðist fyrir um kostnað hafnarinnar vegna Mannlífsþátt RÚV. Birgir og Hjalti upplýstu um málið og að sá kostnaður hafi verið tilgreindur í svörum um þáttinn.

Valdemar spurðist fyrir um kostnað hafnarinnar vegna úrbóta á Leirusvæði. Upplýst að höfnin hafi borgað ýtuvinnu og sáningu á uppdælingarsvæðinu en bæjarsjóður taki annan kostnað.

Hafnarstjórn er sammála um að ráðast þurfi í lokafrágang á uppdælingarsvæði og leggur til allt að 2,5 m.kr í verkefnið.

Nína ræddi um veg og bílastæði við smábátabryggju sem þarfnast lagfæringar við. Einnig að vatn og rafmagn þurfi að vera aðgengilegt við smábátaslippinn.