Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

148. fundur
15. október 2012 kl. 18:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Sigurður Ægir Birgisson varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Örn Arnarson 3. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Birgir Árnason starfsmaður tæknisviðs
Sigfús Harðarson embættismaður
Óskar Arason
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Strandráðstefna 2013
Málsnúmer 201208033

Hafnarstjórn er sammála um að tveir fulltrúar fari frá Hornafjarðarhöfn, Reynir Arnarson og Vignir Júlíusson.

2.
Miklagarðsbryggja - framkvæmdir
Málsnúmer 201112025

Gerð grein fyrir prófunum á að endurbæta stálþilið.  Einnig sagt frá kynningu á Hafnasambandsþingi frá aðilum sem sérhæfa sig í þess háttar endurbótum.  Upplýst að verktakinn sé tilbúinn að koma til Hornfjarðar og kynna þjónustu sína og kanna aðstæður.  Hornafjarðarhöfn felur starfsmönnum að leita eftir því við verktakann að koma til Hafnar, skoði aðstæður og kynna möguleikana í framhaldinu.

3.
Framkvæmdir og viðhald við höfnina
Málsnúmer 201106046

Farið yfir hugmyndir um framkvæmdir og viðhald við höfnina.  Upplýst að höfnin eigi ennþá fé til framkvæmda á þessu ári.  Rætt um heftingu foks á Leirusvæði.  Gerð grein fyrir hugmyndum um að koma upp skrifstofuaðstöðu fyrir hafnarstarfsmenn í Áhaldahúsi.  Hafnarstjórn samþykkir að endurbætur verði gerðar á Áhaldahúsi til að koma upp skrifstofuaðstöðu fyrir forstöðumann.  Starfsmönnum falið að undirbúa framkvæmdir við grjótvörn á Suðurfjöru.

4.
Fjárhagsáætlun 2013-2016
Málsnúmer 201207007

Sigurður fór yfir helstu áherslur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar. Hafnarstjórn tekur fjárhagsáætlun fyrir á næsta fundi sínum í nóvember.

5.
Losunarsvæði vegna uppdælingar úr höfninni
Málsnúmer 201210006

Ægir lagði áherslu á að þessi mál yrðu kláruð fljótt og vel.  Hjalti gerði grein fyrir umræðu um málið á fundi bæjarráðs um að leggja lögn yfir Suðurfjörur og losa efni þar.  Starfsmönnum falið að vinna að málinu, gera kostnaðaráætlun um að leggja lagnir að Stapakletti og leggja fyrir hafnarstjórn sem allra fyrst.

6.
Fráveituútrás við Leiðarhöfða
Málsnúmer 201004030

Lagðar fram upplýsingar um niðurstöðu mælinga fyrir og eftir að hreinsivirki var sett upp við Leiðarhöfða.  Árangur er jákvæður.

7.
Önnur mál
Málsnúmer 201208018

Nína spurði um heimasíðu fyrir höfnina.

Valdemar spurði um myndavélar sem smábátafélagið gaf.  Sigurður upplýsti að þær myndvélar væru ónýtar.  Verið sé að vinna að taka aðrar myndavélar í notkun.