hafnarstjórn Hornafjarðar
149. fundur
25. október 2012
kl.
00:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Stephen Róbert Johnson
1. varamaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Björgun Ölmu
Hjalti gerði grein fyrir samtali við lögmann sem hefur unnið að hagsmunagæslu fyrir Hornafjarðarhöfn í kjölfar björgunar á Ölmu. Sagði að komið hafi fram að fundur verði föstudaginn 26. okt um niðurstöðu í samningaumleitunum um uppgjör við tryggingarfélag Ölmu og innbyrðis skipingu á milli þeirra útgerða sem komu að björgun og aðstoð við Ölmu. Að öðrum kosti verði málinu stefnt fyrir dómstóla.
Sigurður Guðmundsson og Vignir Júlíusson komu á fundinn kl. 16.30 og greindu frá sjónarmiðum sínum um hvort ganga eigi til samninga eða stefna málinu fyrir dóm.
Hafnarstjórn felur lögmanni áframhaldandi vinnu að málinu með það að markmiði ljúka því með samningum í samræmi við forsendur í tölvupósti dags. 23. okt sl.