hafnarstjórn Hornafjarðar
150. fundur
15. nóvember 2012
kl.
16:00

00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Nína Sibyl Birgisdóttir
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Sigfús Harðarson
embættismaður
Óskar Arason
embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2013

Sigurður gerði grein fyrir fjárhagsáætlun 2013. Gerði grein fyrir stöðu hafnarsjóðs þann 20. okt og útkomuspá fyrir 2012. Sagði hann nokkra óvissu um tekjur hafnarinnar vegna sveiflna í nytjastofnum og komum skemmtiferðaskipa.

Páll vakti athygli á að hugasnlega myndu tekjur af vörugjöldum aukast vegna fyrirhugaðra strandsiglingua.

Hafnarstjórn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

2.
Björgun Ölmu

Lagt fram bréf dags. 8. nóvember 2012 þar sem gerð er grein fyrir innbyrðis skiptingu á björgunarlaunum þeirra útgerða sem tóku þátt í aðgerðum. Niðurstöðu í viðræðum björgunaraðila og útgerðar Ölmu er að vænta síðar í mánuðinum.

3.
Miklagarðsbryggja - framkvæmdir

Starfsmenn hafnarinnar gerðu grein fyrir lagfæringum á Miklagarðsbryggju og kostnaði við þær. Hafnarstjórn samþykkir að halda áfram með þeirri aðferð sem notuð hefur verið fram að þessu. Hafnarstjórn ræddi um kosti þess að setja tæringavörn á stálþil til að koma í veg fyrir mikinn kostnað við endurbætur. Hafnarstjórn óskar eftir upplýsingum um að tæringarverja stálþil í eigu hafnarinnar á næsta fund.

4.
Endurskoðun á aðalskipulagi

Reynir fór yfir aðalskipulag hafnarinnar og þeim spurningum sem beint er til hafnarstjórnar í tengslum við endurskoðun á því. Hafnarstjórn er sammála um eftirfarandi í tengslum við endurskoðun aðalskipulags:

a) að mörkum hafnarsvæðis verði breytt þannig að mörk verði færð að friðlandinu í Óslandi.

b) að áfram verði gert ráð fyrir Faxeyrarhöfn í aðalskipulagi.

c) að á nýju aðalskipulagi verði gert ráð fyrir stækkun hafnarinnar til vesturs að Óslandsveginum.

d) að á nýju aðalskipulagi verið gert ráð fyrir stækkun hafnarinnar til suðurs frá Óslandsbryggju.

Hafnarstjórn óskar eftir að fá til umsagnar uppdrætti og greinargerð um aðalskipulag þegar vinnan er lengra kominn.

5.
Viðhaldsdýpkun í höfninni

Reynir upplýsti að á opnum fundi um fjárhagsáætlun hafi komið fram ábending um að athuga þyrfti vandlega að losa uppdælt efni við Stapaklett. Áhyggjur séu um að það geti spillt lífríki. Sigurður fór yfir mögulega losunarstaði, í Miðós, við Stapaklett og út yfir Austurfjörur. Sagði Sigurður að eftir samráð við ýmsa aðila þá telji menn losun við Stapaklett ákjósanlegan kost. Lagði fram uppdrátt af lagnaleið að Stapakletti. Að endingu gerði hann grein fyrir samtölum við Umverfisstofnun og að í framhaldi hafi erindi hafi verið sent til Skipulagsstofnunar, Umhverfisstofnunar og Siglingastofnun.

Óskað eftir kostnaðartölum á næsta fund nefndarinnar.

6.
Hafnarvernd

Lagt fram bréf frá dags. 11. nóv 2012 um mikilvægi þess að koma upp viðurkenndum verndarráðstöfunum við bryggjur sem falla undir Siglingarvernd sem eru Álaugareyjarbryggja, Óslandsbryggja og Krosseyjarbryggja. Greindu starfsmenn frá undirbúningi aðgerða til að standast kröfur hafnarverndar. Lögð verða fram gögn um málið á næsta fundi.

7.
Önnur mál hafnarstjórnar.

Sigurður ræddi um nauðsyn dýpkunar í krók við smábátabryggju. Hafnarstjórn felur Sigurði að koma málinu áfram.

Valdemar ræddi um fjárhagsáætlun veitnanna og nauðsyn þess að taka hana til umfjöllunar.

Ægir spurði um niðurstöðu útboðs í dýpkun í Landeyjarhöfn. Starfsmönnum falið að nálgast upplýsingar.