hafnarstjórn Hornafjarðar
151. fundur
18. desember 2012
kl.
16:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Hannes Ingi Jónsson
varamaður
Karl Sigurður Guðmundsson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Hjalti Þór Vignisson (HÞV)
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Sjávarföll í Hornafirði
Sigurður sagði frá uppsetningu á flóðhæðarmæli. Nánari upplýsingar um verkefnið koma á næsta fund.
2.
Mælingar á grynnslum og höfninni
Sigurður gerir grein fyrir málinu. Sagði frá hugmynd um kaup á mælingartækjum. Nánari upplýsingar um verkefnið koma á næsta fund.
3.
Viðhaldsdýpkun í höfninni
Sigurður gerði grein fyrir samskiptum við Siglingastofnun, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun um losun efnis við Stapaklett. Næst fer málið fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sveitarfélagsins. Kostnaðaráætlun fyrir lagningu dælulagnar kynnt.
4.
Verksamningur um viðhaldsdýpkun
Sigurður kynnti núverandi verksamning. Hafnarstjórn óskar eftir fundi með Siglingastofnun um málið.
5.
Gjaldskrá fyrir Hornafjarðarhöfn
Sigurður kynnti hugmyndir um breytingar á gjaldskrá. Reynir lagði til að leiga á lóð fyrir gáma yrði hækkuð. Ákveðið að laga umrætt svæði til á nýju ári.
Framlögð gjaldskrá samþykkt með áorðnum breytingum.
6.
Framkvæmdir og viðhald við höfnina
Sigurður upplýsti að von sé á tölum í zinkun á Miklagarðsbryggju og Álaugareyjarbryggju fljótlega. Jafnframt var rætt um kostnað við endurbætur á Hellisvita. Samþykkt að fara í endurbætur á syðri flotbryggju og óskað er eftir verðhugmyndum fyrir næsta fund. Jafnframt samþykkt að gera áætlun um malbikun á Krosseyjarvegi.
7.
Farþegaskipamál.
Sigurður og Valdemar upplýstu um ferð sína á kaupstefnu á Mairsaille í sl. mánuði. Einnig upplýsti Sigurður um áætlun um hvað farþegar af skemmtiferðaskipum skilja eftir sig í hagkerfinu við hverja komu. Rætt um frekari markaðssetningu, m.a. með því að nálgast útgerðir skemmtiferðaskipa utan kaupstefna.
8.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Reynir upplýsti að verkstjóri í Áhaldahúsi komi með veitumál á næsta fund.
Hannes ræddi um vöntun á aðgengi að sorpílátum á bryggjunni.