Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

153. fundur
16. apríl 2013 kl. 16:30 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Nína Sibyl Birgisdóttir aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Karl Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Örn Arnarson 1. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Karl Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Erindisbréf nefnda
Málsnúmer 200806010

Bryndís Bjarnason sat fundinn undir þessum lið.  Lagt fram erindisbréf hafnarstjórnar.  Hafnarstjórn telur eðlilegt að málefni veitna og áhaldahúss færist til bæjarráðs í ljósi skipulagsbreytinga sem hafa verið gerðar á rekstri þessara stofnana.  Jafnframt gerðar breytingar á orðalagi í kaflanum er varðar ábyrgð og verksvið.  Starfsmönnum falið að leiðrétta drögin með framkomnum breytingum og senda til hafnarstjórnar að því loknu.  Hafnarstjórn samþykkir drögin með áorðnum breytingum og vísar til bæjarráðs.

2.
Verksamningur um viðhaldsdýpkun
Málsnúmer 201205013

Sigurður gerði grein fyrir samskiptum um málið undanfarnar vikur.  Áætlað er að dýpka 50.000 rúmmetra í ár skv. gildandi samningi sem framlengja þarf á milli aðila og að dýpkunarfélagið sjái um lagningu dælulagnar að Stapakletti, alls að upphæð 13.141.250 kr, skv. tilboði dags. 16. apríl 2013.  Hafnarstjórn samþykkir framlagðan samning með fyrirvara um að gengið verði frá samningi um dælingu samhliða.

3.
Framkvæmdir og viðhald við höfnina
Málsnúmer 201106046

Sigurður gerði grein fyrir áætlaðri slippferð til Seyðisfjarðar.  Leitað var eftir tilboðum frá þremur aðilum.  Hagstæðasta tilboðið kom frá Stjörnustál á Seyðisfirði.  Tilboð samþykkt.

Sigurður lagði fram kostnaðaráætlun fyrir viðgerð á Hellisvita.  Samþykkt að taka málið aftur á dagskrá eftir sumarleyfi hafnarstjórnar.

4.
Innsigling um Hornafjarðarós
Málsnúmer 200803042

Hjalti fer yfir samskipti við Siglingastofnun síðustu vikna um málið.  Upplýsti að Siglingastofnun hefur fengið verkfræðinema til að taka saman þau rannsóknargögn sem nú liggja fyrir og leggja grunn að vöktunarverkefni fyrir breytingar á Grynnslunum og innsiglingunni.

5.
Umsókn um framkvæmd á stækkun athafnasvæðis.
Málsnúmer 201304024

Hjalti, Örn og Reynir viku af fundi undir þessum lið. Formaður fól Nínu fundarstjórn undir þessum lið og leitaði eftir samþykki fundarins um það.  Samþykkt.  Sigurður gerði grein fyrir framkomnu erindi um stækkun á lóð Skinneyjar Þinganes í Krossey.  Óskin felur í sér að Krosseyjarvegur lokast að hluta.  Ástæða hugmyndarinnar er að þróa áfram vinnslur félagsins og tengja saman hús sem fyrir eru til að breyta framleiðsluferlum með auknum afköstum, öryggi starfsfólks og fleira að leiðarljósi eins og fram kemur í erindinu.

Hafnarstjórn telur að Skinney Þinganes eigi að fá að þróa starfsemi sína eins eðlilegt þykir en telur nauðsynlegt að framkvæmdaraðili fari í þá vinnu að skipuleggja svæðið.  Það verði síðan hlutverk umhverfis- og skipulagsnefndar og bæjarstjórnar að halda utan um opið samráðsferli sem breyting á skipulaginu krefst.

6.
Mælingar á grynnslum og höfninni
Málsnúmer 200906008

Sigurður upplýsir að keypt hefur verið nýtt mælingatæki að Trimble gerð sem kemur í staðinn fyrir eldra tæki af sömu gerð, nýja tækið nýtist eins og eldra tækið bæði við landmælingar og sjómælingar, Ísmar tekur eldra tækið upp í kostnað á nýju tæki, Vignir vinnur að leiðréttingu á hæðarpunktum í Hvanney og við höfnina, í samvinnu við landmælingar Íslands.

7.
Farþegaskipamál
Málsnúmer 201212040

Sigurður segir frá ferð á kaupstefnu til Miami og taldi hann þá ferð hafa gengið vel, vilyrði fyrir skipakomum 2015 og 2016 fengust á fundum í framhaldi af ráðstefnuni, Gert er ráð fyrir breyttu fyrirkomulagi á Miami kaupstefnuni á næsta ári, þar sem að einungis er gert ráð fyrir starfsmanni Cruise Iceland á sýningarbásnum, en öllum höfnum er heimilt að mæta á sýninguna og ráðgera fundi með sínum viðskiptavinum í kringum kaupstefnuna. Sigurður fór yfir kynningaráætlun Hornafjarðarhafnar og er búið að staðfesta þátttöku okkar í Seatrade Hamburg í haust, eftir þá kaupstefnu verður endurskoðuð kynningaráætlun fyrir Hornafjarðarhöfn.

8.
Aðalfundur Cruise Iceland
Málsnúmer 201304020

Aðalfundur Cruise Iceland er ráðgerður 8. maí næstkomandi í Reykjavík. Hafnarstjórn gerir tillögu um að Reynir Arnarson og Sigurður Guðmundsson verði fulltrúar Hornafjarðarhafnar og formaður hafnarstjórnar fer með atkvæði hafnarinnar og forstöðumaður til vara. Sigurður fer í framhaldinu á alþjóðlega ráðstefnu um farþegaskipamál sem haldin verður í Hörpu.

9.
Starfsmannamál hafnarinnar
Málsnúmer 200804075

Sigurður gerir grein fyrir að starfsmaður sem hafi starfað á höfnini í samvinnu við virk hafi ráðið sig í fast starf og að Sigurður horfi nú eftir manni til sumarafleysinga á höfnini.

10.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036

Engin önnur mál tekin fyrir.