Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

156. fundur
17. október 2013 kl. 17:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir 1. varamaður
Óskar Arason forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Hjalti Þór Vignisson (HÞV) bæjarstjóri
Örn Arnarson 2. varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Framkvæmdir og viðhald við höfnina
Málsnúmer 201106046

Björgvin Óskar Sigurjónsson og Björn Þór Imsland komu á fund undir þessum lið.  Fóru yfir framkvæmdir og viðhaldsáætlun vitans í Lambhelli.  Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2014.

Sigurður fór yfir tilboð frá Rósabergi í viðgerð á Dengsabryggju, að upphæð 830 þúsund krónur með vsk.  Sagði að leitað hafi eftir tilboðum til annara aðila sem ekki hafi skilað inn verðhugmyndum. Hafnarstjórn samþykkir framlagt tilboð.

2.
Erindisbréfi hafnarstjórnar 2013
Málsnúmer 201304053

Farið yfir erindisbréf hafnarstjórnar með tilliti til veitna.

Formaður leggur til að í erindisbréfi verð felldur út texti sem vísar til ábyrgðar hafnarstjórnar á veitum og það verði skilgreint betur sem hlutverk bæjarráðs.

Samþykkt.

3.
Farþegaskipamál
Málsnúmer 201212040

Sigurður lagði fram skýrslu um Evrópukaupstefnuna sem fram fór í Hamborg í Þýskalandi, almenn umfjöllun um framtíðina í markaðssetningu og árangur markaðssetningar fram að þessum.

Undir þessum lið var rætt um lagfæringar á norðurgarði við hafnarkjaftinn.  Forstöðumanni falið að fylgja málinu eftir við Vegagerðina.

4.
Aðstaða fyrir fjarðabáta
Málsnúmer 201308005

Lögð fram verðskrá Króla á flotbryggjum og fingrum fyrir fjarðbáta, farið yfir kostnað og möguleika í stöðuni.  Kostnaður í heild er áætlaður um 8 m.kr.  Í umræðum var rætt um hvort megi fá notaðar bryggjur.  Forstöðumanni falið að kanna málið.

5.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036

Almenn umræða um lóðamál og skipulag við höfnina.

Sigurður gerir grein fyrir að upptekt á flotbryggjum frestast til vors vegna vinnu við sæstreng á Suðurfjörur.

Hafnarstjórn þakkar fráfarandi hafnarstjóra Hjalta Þór Vignissyni fyrir ánægjulegt samstarf og vel unnin störf.

Hjalti Þór Vignisson þakkar einnig fyrir gott samstarf við Hafnarstjórn.