hafnarstjórn Hornafjarðar
157. fundur
14. nóvember 2013
kl.
17:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Hannes Ingi Jónsson
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Karl Sigurður Guðmundsson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun Hornafjarðarhafnar 2014
Haukur Ingi Einarsson mætti undir þessum lið og fór yfir fjárhagsáætlun hafnarinnar fyrir 2014, farið yfir framkvæmdaáætlun, og hornið við Dengsabryggju, umræða um ástand hafnarmannvirkja, rætt um zinkun bryggja, hafnarstjórn óskar eftir að fá niðurstöður úr verðkönnun inn á næsta fund.
Rætt um útleiðslu á smábátabryggjum, starfsmanni falið að ræða við RARIK um málið fyrir næsta fund.
Fjárhagsáætlun fyrir Hornafjarðarhöfn 2014 samþykkt.
2.
Umsókn um lóð að Ófeigstanga 11
Hafnarstjórn fjallar um umsókn á lóð að Ófeigstanga 11, hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við úthlutun lóðarinnar, en bendir á að uppi eru hugmyndir um færslu Óslandsbryggjunnar til suðurs. Hafnarstjórn óskar eftir því að umsækjanda verði gerð grein fyrir því máli.
3.
Stefna í hafnarmálum 2014-
Farið yfir vinnufund um framtíðarstefnu Hornafjarðarhafnar, hráar niðurstöður eru komnar og hafa verið sendar öllum þátttakendum vinnufundarins.
Lagt til að Stefán Óloafsson komi á næsta fund og kynni stöðuna.
4.
Aðstaða fyrir fjarðbáta
Sigurður greinir frá að hann hafi haft samband við yfirvöld á Egilsstöðum um kaup á flotbryggjum, þær eru ekki falar og í miklu lamasessi.
Farið yfir málið og það verður áfram í vinnslu.
5.
Gír og vélbúnaður í Björn lóðs
Farið yfir málið og rætt hvort ekki þurfi að setja kaup á nýjum gírum og vélum í framtíðar áætlun.
Málið kynnt og hafnarstjórn óskar eftir að fá verðhugmynd í gíra og vélar fyrir næsta fund.