hafnarstjórn Hornafjarðar
159. fundur
17. desember 2013
kl.
17:00
-
19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Hannes Ingi Jónsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Vignir Júlíusson
fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Karl Sigurður Guðmundsson
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Dagskrá
1.
Tilboð í dráttarvindu í Björn Lóðs
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna, forstöðumaður fer yfir málið og gefur Ara Jónssyni orðið til útskýringar hvernig málið stendur og hvað veldur þeim töfum sem orðnar eru á verkinu, Vegna verkefnastöðu hefur Foss ekki getað unnið verkið, Ari óskar eftir að fá að fresta afhendingu á verkinu fram til marsloka.
Hafnarstjórn samþykkir að veita Foss þann frest sem um er beðið, en leggur áherslu á að verkið dragist ekki umfram það.
Hafnarstjórn samþykkir að veita Foss þann frest sem um er beðið, en leggur áherslu á að verkið dragist ekki umfram það.
2.
Stefna í hafnarmálum 2014-
Stefán Ólafsson mætti undir þessum lið og fer yfir stöðu mála í framtíðarstefnu Hornafjarðarhafnar, segir frá vinnunni og hugsanlegum breytingum. Umræður um kjörorð hafnarinnar, rætt um fjárhagslega stöðu hafnarinnar í samhengi við stefnumótunina, farið yfir feril stefnumótunarinnar og næstu skref, ýmsum þáttum í aðgerðaráætluninni og stefnunni velt upp og lagðar til breytingar, rætt um umferðarmálin við höfnina og bílastæðamál. Rætt um niðurlag stefnunnar, ákveðið að Stefán geri þær breytingar á stefnunni sem um var rætt og sendi fundarmönnum til yfirlestrar.
3.
Gír og vélbúnaður í Björn lóðs
Forstöðumaður leggur fram verð sem fékkst úr verðkönnun um vél og gíra í Björn Lóðs, grófar tölur sem gefa hugmynd um kostnað sem leggja þarf í þegar farið verður í að skipta um vélar og gíra í Birni Lóðs.
4.
Viðhald á bryggjum kynning Zink
Forstöðumaður fer yfir ferilinn í kynningu frá Köfunarþjónustunni og kynnir verðhugmynd frá Köfunarþjónustunni um mat á bryggjuþiljum Hornafjarðarhafnar.
Frestað til næsta fundar.
Frestað til næsta fundar.
5.
Landbrot á Suðurfjörum
Forstöðumaður fer yfir ferilinn í málinu og nýjustu samskipti við Vegagerðina, það lítur út fyrir að Vegagerðin ætli að leggjast í að klára rofvörnina á komandi vetri.
Forstöðumanni falið að vinna að umsókn um framkvæmdaleyfi í námu í nágrenni Skinneyjar sem er á aðalskipulagi.
Forstöðumanni falið að vinna að umsókn um framkvæmdaleyfi í námu í nágrenni Skinneyjar sem er á aðalskipulagi.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Talað um Bláfánaverkefnið, ákveðið að taka ekki þátt verkefninu að sinni.
Mikligarður og aðstaða fyrir Hornafjarðarhöfn, með verkstæði, slöngu og rafmagnskaplageymslu.
Upplýst um stefnubreytingu á nýtingu á Miklagarði, stefnt er að Mikligarður renni til rekstrar Hornafjarðarsafna.
Hafnarstjórn óskar eftir að skil fari fram sem fyrst.