Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

160. fundur
4. febrúar 2014 kl. 17:00 - 19:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson formaður
Hannes Ingi Jónsson aðalmaður
Valdemar Einarsson aðalmaður
Páll V. Ólafsson aðalmaður
Friðþóra Ester Þorvaldsdóttir 1. varamaður
Óskar Arason forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Ásgerður Kristín Gylfadóttir bæjarstjóri
Vignir Júlíusson fulltrúi starfsmanna
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður Gylfadóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Stefna í hafnarmálum 2014-
Málsnúmer 201307048
Stefán Ólafsson verkefnastjóri sat fundinn undir þessum lið. Stefán fór yfir ferli vinnunar og þær breytingar sem gerðar hafa verið frá því stefnan kom síðast til umræðu á fundi nefndarinnar. Stefnan er samþykkt með áorðnum breytingum.
2.
Landbrot á Suðurfjörum
Málsnúmer 201201071
Vignir Júlíusson og Sigurður Guðmundsson fóru yfir nýjustu upplýsingar af landbroti á Suðurfjörum dags. 4.2.2014 kl.16:06. og samskipti við Vegagerðina vegna málsins. Verið er að leita allra leiða til að fá fjármagn til að fara í framkvæmdir. Vignir leggur til að haft verði samband við verktaka og fengin ráðgjöf og kostnaðaráætlun um bráðabirgðaaðgerðir til að verja strandlengjuna og þau mannvirki sem að eru á staðnum. Formaður Hafnarstjórnar leggur til að hvatt verði til þess að Vegagerðin hefji þegar vinnu við hönnun varnarinnar og gerð útboðsgagna. Hafnarstjórn samþykkir þessar tillögur.
3.
Viðhald á bryggjum - Zink
Málsnúmer 201311052
Farið yfir tilboð frá Köfunarþjónustunni ehf í ástandsskoðun á stálþiljum. Starfsmönnum falið að ganga til samninga við tilboðsgjafa. Einnig rætt um fjölgeislamælingar sem Köfunarþjónustan býður uppá en hafa hingað til verið keyptar af Siglingastofnun. Starfsmönnum falið að afla upplýsinga um kostnað við fjölgeislamælingar í gegnum Köfunarþjónustuna.
4.
Gír og vélbúnaður í Björn lóðs
Málsnúmer 201311026
Formaður fór yfir að ekki er stefnt að kaupum á þessum vélbúnaði í fjárhagsáætlun 2014 aðeins er verið að afla upplýsinga. Hannes Ingi lagði fram upplýsingar sem hann hefur aflað og verða teknar með í skoðunina. Umræður um málið.
Ester Þorvaldsdóttir og Vignir Júlíusson viku af fundi kl. 18:01.
5.
Dælulögn milli Krosseyjar og fiskimjölsverksmiðju
Málsnúmer 201111020
Björgvin Sigurjónsson frá Verkfræðiþjónustunni ehf sat fundinn undir þessum lið. Sigurður fór yfir samskipti við starfsmann Skinneyjar-Þinganess hf varðandi frágang og hæðarsetningu akstursleiðar Óslandsmegin við höfnina. Björgvin fór yfir mælingar og áhrif á lóðir við hækkun. Hafnarstjórn leggur áherslu á að frágangur eftir framkvæmdirnar sé vandaður og ástand akstursleiðar verði ekki síðra en áður en hafist var handa en gerir ekki athugasemd við hækkun um allt að 15 cm.
6.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Málsnúmer 201211036
Valdemar spurði hvernig staðan er í endurnýjun á spili og gerði kaup á bifreið fyrir höfnina að umtalsefni. Sigurður segist hafa haft samband við verktaka og verkið sé í vinnslu. Umræður sköpuðust um bifreiðamál hafnarinnar.