hafnarstjórn Hornafjarðar
161. fundur
25. febrúar 2014
kl.
13:00
-
14:45
Björn Lóðs
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Hannes Ingi Jónsson
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður K. Gylfadóttir
Dagskrá
1.
Landbrot á Suðurfjörum
Vignir Júlíusson starfsmaður hafnarinnar og Jóhann Þór frá Vegagerðinni sátu fundinn undir þessum lið.
Skoðaðar voru aðstæður við Suðurfjörur. Vignir og Jóhann lýstu bráðabirgðaaðgerð sem farið verður í á næstu dögum til að hefta landbrot. Einnig fóru þeir yfir hugmyndir að framtíðarlausn; varnargarði og akstursleið út í Hvanneyjarvita.

2.
Framkvæmdir og viðhald við höfnina
Björn Þór Imsland umsjónarmaður fasteigna sat fundinn undir þessum lið.
Björn fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir við Hellisvita. Gerð útboðsgagna er á lokastigum og stefnt er að opnun tilboða í byrjun apríl.
Björn fór yfir fyrirhugaðar framkvæmdir við Hellisvita. Gerð útboðsgagna er á lokastigum og stefnt er að opnun tilboða í byrjun apríl.
3.
Aðalfundur Cruise Iceland
Fundargerð Cruise Iceland lögð fram til kynningar. Aðalfundur Cruise Iceland verður á Ísafirði 23. maí n.k. formaður bar upp tillögu um að formaður og Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður Hornafjarðarhafnar verði fulltrúar hafnarinnar á þeim fundi til vara, Sigurður Ægir Birgisson og hafnarstjóri. Kom fram að kynningarferð fyrir söluaðila ferða með minni skemmtiferðaskipum er í kjölfar fundarins á Ísafirði. Forstöðumaður hafnarinnar hefur óskað eftir að Hornafjörður verði heimsóttur í þeirri ferð. Kom einnig fram að fjórar komur eru staðfestar árið 2014 og ein árið 2015. Skýrsla um komu skemmtiferðaskipa til Hafnar er í vinnslu. Ekki verður farið til Miami í ár, þátttaka okkar verður í gegnum Cruise Iceland en farið verður á evrópuráðstefnuna í Barcelona í haust.
Rætt var um framkvæmdir sem þyrfti að fara í til að auka snúningsrými og draga úr sandburði inní höfnina.
Rætt var um framkvæmdir sem þyrfti að fara í til að auka snúningsrými og draga úr sandburði inní höfnina.
4.
Deiliskipulag í Krossey
Reynir Arnarson og Sigurður Ægir Birgisson viku af fundi undir þessum lið.
Deiliskipulag í Krossey kynnt fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við deiliskipulagið.
Deiliskipulag í Krossey kynnt fyrir hafnarstjórn. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við deiliskipulagið.
5.
Önnur mál hafnarstjórnar.
Sigurður Ægir benti á að lagfæra þarf fríholt undir löndunarkrana.