hafnarstjórn Hornafjarðar
164. fundur
16. maí 2014
kl.
17:00
-
00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Reynir Arnarson
formaður
Sigurður Ægir Birgisson
varaformaður
Hannes Ingi Jónsson
aðalmaður
Valdemar Einarsson
aðalmaður
Páll V. Ólafsson
aðalmaður
Gísli Karl Ágústsson
1. varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
bæjarstjóri
Óskar Arason
forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Ásgerður K. Gylfadóttir
Dagskrá
1.
Afhending Miklagarðs, Hornafjarðarsöfn.
Vala Garðarsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar sat fundinn undir þessum lið. Hafnarstjóri afhenti forstöðumanni Menningarmiðstöðvarinnar lyklavöldin af Miklagarði. Formaður óskaði Menningarmiðstöinni til hamingju. Vala upplýsti að styrkur sem barst í Miklagarð sé skilyrtur til endurbóta á gluggum húsins og verði farið í það í sumar. Valdemar spurði hvort hægt sé að byrja á endurbótunum þó teikningar séu ekki tilbúnar. Vala upplýsti að það sé hægt, fyrirmynd sé í upprunalegum gluggum í Verbúðinni.
2.
Landbrot við vélaverkstæði fiskimjölsverksmiðju
Sigurður Guðmundsson forstöðumaður Hornafjarðarhafnar kynnti málið ásamt Björgvini Ó. Sigurjónssyni. Óskað var eftir verðtilboðum í grjótvörn. Verð barst frá einum verktaka Ólafi Halldórssyni. Kostnaðaráætlun er 905.000 kr. Tilboð Ólafs með efni kr 702.000 og kr. 502.840 ef sveitarfélagið leggur til efni. Hafnarstjórn samþykkir að ganga til samninga við Ólaf á grunni lægra tilboðsins.
3.
Tilboð í dráttarvindu í Björn Lóðs
Formaður greindi frá því að spilið er komið í notkun og reynist vel.
4.
Kranaleiga Breiðdalsvík
Formaður greindi frá því að kraninn sé í góðu ásigkomulagi og leigugreiðslur hafi borist samkvæmt reikningum. Leiga ársins 2013 hefur ekki borist enda reikningurinn ný farinn.
5.
Farþegaskipamál
Lögð fram yfirlitsskýrsla um móttöku skemmtiferðaskipa til kynningar.