Fara í efni

hafnarstjórn Hornafjarðar

165. fundur
3. júlí 2014 kl. 17:00 - 00:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Valdemar Einarsson formaður
Sigurður Einar Sigurðsson varaformaður
Bryndís Hólmarsdóttir aðalmaður
Reynir Arnarson aðalmaður
Páll V. Ólafsson 1. varamaður
Ragnar Logi Björnsson 1. varamaður
Sigurður Ægir Birgisson 1. varamaður
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Óskar Arason forstöðumaður Hornafjarðarhafnar
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Björn Ingi Jónsson Bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Kjörbréf og fundargátt kynning nýrrar hafnarstjórnar 2014
Málsnúmer 201406075
Bryndís Bjarnarson upplýsinga-og gæðastjóri kynnti fundargátt og hlutverk nefndarmanna.
2.
Erindisbréfi hafnarstjórnar 2013
Málsnúmer 201304053
Sigurður Guðmundsson afhenti gögn sem inniheldur lög og reglur ásamt erindisbréf nefndarmanna. Farið var yfir erindisbréfið, helstu áherslur og verksvið nefndarinnar. Kom fram að Siglingastofnun er ekki lengur til heldur heyra málefnin nú undir Samgöngustofu og Vegagerðina. Reynir Arnarson nefndi að kort af hafnarsvæði hefur ekki verið uppfært í samræmi við fyrri ákvarðanir Hafnarstjórnar. Borin upp tillaga af fundartíma nefndarinnar 2. fimmtudagur í mánuði klukkan 16:00 og hún samþykkt.
3.
Landbrot á Suðurfjörum
Málsnúmer 201201071
Sigurður Guðmundsson fór yfir minnisblað eftir fund sem hann og Reynir Arnarson þáverandi formaður áttu með Vegagerðinni 22.maí síðast liðinn.
Kom fram hjá þeim ákveðnar efasemdir um að þetta væri nógu mikið fjármagn til að klára verkið en gert er ráð fyrir um 20 milljónum króna í verkið. Kom fram að nauðsynlegt er fyrir Hafnarstjórn að gera ráð fyrir sínu framlaga en það mun vera 15% af heildarkostnaði.
4.
Innsigling um Hornafjarðarós
Málsnúmer 200803042
Sigurður Guðmundsson fór yfir helstu niðurstöður í rannsóknum á grynnslunum. Kom fram að reiknað er með að lokaskýrsla verið tilbúin í annari viku september skýrsluhöfundar hafa sýnt því áhuga að kynna niðurstöður sínar. Hafnarstjórn telur mikilvægt að halda málþing þar sem rætt verður um niðurstöður skýrslunnar. Einnig að mikilvægt væri að hagsmunaaðilar hefðu tök á að kynna sér innihald skýrslunnar fyrir málþingið svo umræður á málþinginu skiluð góðum árangri.
Starfsmönnum falið að undirbúa málþing þann 10. september.
5.
Stefna í hafnarmálum 2014-2019
Málsnúmer 201307048
Sigurður Guðmundsson dreifði stefnu í hafnarmálum 2014-2019 og fór yfir undirbúning við gerð stefnunnar. Reynir Arnarson taldi að eitt af því fyrsta sem ný Hafnarstjórn þarf að gera er að fara yfir skipulagsmálin nokkur atriði eru með dagsetningar á árinu 2014.
Starfsmanni falið að setja sig í samband við arkitektastofur til að afla verðupplýsinga og skal þetta gert í samstarfi við umhverfis- og skipulagsfulltrúa.
6.
Farþegaskipamál
Málsnúmer 201212040
Sigurður Guðmundsson sagði frá aðalfundi Cruise Iceland sem haldinn var á Ísafirði í maí síðastliðinn hér hafi verið áætlanir um komu fjögurra skemmtiferðarskipa nú í sumar. Kom einnig fram að leggja á meiri áherslu á komu minni skemmtiferðaskipa sem hentar vel til komu Hafnar nú þegar hafa átta skemmtiferðaskip boðað komu sína næsta sumar. Kom einnig fram að kostnaður við kynningar á höfninni hér er álíka mikill og tekjur hafnarinnar af komu skemmtiferðaskipa. Miðað við áætlaðar komur á næsta ári má ætla að tekjur verði meiri en kostnaður. Umræður sköpuðust um þátttöku hafnarinnar í þessu verkefni og hve mikið þetta er að skilja eftir í samfélaginu einnig þau tækifæri sem væru til staðar.